Fjarðarpósturinn - 12.06.2008, Síða 7
Félagar í Lionsklúbbnum
Ásbirni komu færandi hendi á
Sólvang um daginn er þeir færðu
hjúkrunarheimilinu 2 ný og
fullkomin rúm ásamt hliðar borð -
um. Mjög aðkallandi er að fá ný
rúm fyrir vistfólk og eru þessu
rúm með fyrstu rúmunum í átaki
að bæta aðbúnað vistfólksins.
Vistmaður sem blaðamaður
ræddi við hafði fengið rúmið til
reynslu og sagði hann allt annað
og betra að sofa í því og ekki síst
að umgangast það enda rafstýrt.
Lionsklúbburinn Ásbjörn er 35
ára í ár og að sögn lions mann -
anna er öflugt starf í klúbbnum.
Klúbburinn hefur áður styrkt
Sólvang með höfðinglegum
gjöfum í kapellu staðarins en
klúbburinn styrkir árlega verðug
verkefni hér í bæ.
Verðmæti rúmanna tveggja er
tæp ein milljón kr. og með stærstu
styrkjum Lionsklúbbsins.
FH liðið hefur fengið til liðs
við sig öflugt teymi til að annast
þjálf un annars- og meistara -
flokks kvenna, á keppnis tíma -
bilinu sem nú er ný hafið. Aðal -
þjálfari er Jón Þór Brands son en
honum til full tyngis eru tveir
aðstoðarþjálfarar, þau Arna
Stein sen og Orri Þórðarson. Að
auki hafa Silja Úlfarsdóttir frjáls -
íþróttaþjálfari og Eiríkur Þor -
varðarson markmannsþjálfari
séð um séræfingar.
Jón Þór, Arna og Orri eru öll
reyndir þjálfarar sem hafa þjálf -
að yngri flokka og meistara -
flokka um árabil, ýmist hjá FH
eða öðrum liðum, með mjög
góðum árangri.
Iðkendafjöldi stúlkna og
kvenna í knattspyrnu hjá FH er
um 300. Metnaður og áhugi
þeirra hefur verið mikill og
árangurinn eftir því jafnt heima
sem heiman, og margir titlar
bæst í safnið á síðustu árum. Að
sögn Helgu Friðriksdóttur form.
meist ararflokksráðs kvenna
legg ur knattspyrnudeild FH
mikla áherslu á að skapa þeim
umgjörð og aðbúnað til knatt -
spyrnuiðkunar sem er til fyrir -
myndar og eins og best verður á
kosið hér á landi. Hún segir
stefnu félagsins að ráða ætíð
hæfustu þjálfara til verksins, og
er mikill fengur fyrir FH að hafa
fengið þau Jón Þór, Örnu og Orra
til liðs við félagið til að taka þátt
í því öfluga starfi sem þar fer
fram og áframhaldandi upp -
bygg ingu meist araflokks
kvenna.
Fimmtudagur 12. júní 2008 www.fjardarposturinn.is 7
Nýr heilsuleikskóli
HAMRAVELLIR
Kæru nágrannar!
Nýji leikskólinn, Hamravellir
verður vígður núna í júní.
Okkur vantar fleiri kennara, fagstjóra listgreina, fagstjóra íþrótta,
leiðbeinendur og matráð í þann efnilega og skemmti lega starfs -
mannahóp sem nú þegar er kominn. Nú er tækifæri fyrir fólk á
Völlunum og aðra Hafnfirðinga til að taka þátt í að þróa heilsu -
stefnu í nýjum leikskóla frá upphafi. Þá er e.t.v. hægt að spara
bens ín, efla heilsuna og hjóla eða ganga í vinnuna. Leikskólinn er
fjögurra deilda skóli með frábærri aðstöðu bæði fyrir börn og starfs -
fólk. Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um störfin.
Nánari upplýsingar veitir Salvör Jóhannesdóttir
í síma 617-8991. Rafrænar umsóknir er hægt
að leggja inn hjá www.skólar.is
17. júní nálgast og óhætt er að
segja að við Hafnfirðingar
höfum þjófstartað hátíðar höld -
un um með glæsilegri afmælis -
hátíð. En gleðin heldur áfram og
þjóð hátíðardagur okk -
ar Íslendinga mun ekki
svíkja Hafnfirðinga í
ár frekar en árin á
undan. Boðið verður
uppá fjölbreytta dag -
skrá og allir eiga að
geta fundið eitthvað
sér til skemmtunar
þenn an dag. Grunn -
dagskráin verður með
hefðbundnu sniði með
helgistund í Hellisgerði og
skrúð göngu á Víðistaðatún, þar
sem skemmtun verður fyrir alla
fjölskylduna og leiktæki út um
allt. Birgitta og Magni mæta
ásamt leikskólabörnum frá
Stekkjar ási og skemmta með
söng og leik. Um morguninn
verð ur frjálsíþrótta- og knatt -
spyrnu mót í Kaplakrika og
Byggða safn Hafnarfjarðar verð -
ur með sýningar. Ég vil sér -
staklega benda bæjarbúum á
endur opnaða Beggubúð og ný -
upp gerða Bungalowið. Þegar
húmar að, tekur við kvöld -
dagskráin á Thorsplani þar sem
eng in annar en Páll Óskar stígur
á stokk og Ný Dönsk „hjálpar
okkur upp“ og kóngurinn Bubbi
mætir svo fátt eitt sé nefnt.
Þó verður eitt og annað nýtt af
nálinni þetta árið og ber að nefna
tónleika í list- og veitingastöðum
bæjarins. Í Hafnarborg spilar
Kári Árnason djassgeggjari og
mun Kristjana Stef -
áns dóttir söngkona
leggja honum lið. Á
Til verunni verður
Rún ar Georgsson
saxó fónleikari staddur
ásamt undirleikara.
Strengja kvartettinn
Reg in spilar fyrir gesti
Súfistans og hljóm -
sveitin Mojito tekur
lagið fyrir gesti
Aroma. Í Gamla Vínhúsinu
verður svo að finna Hammond -
kvart ettinn Jón Sigurðsson. Það
verð ur líf og fjör á hverju horni
mið bæjarins og ég vil hvetja alla
til að taka þátt í þeirri frábæru
stemmn ingu sem er að myndast í
okkar fallega miðbæ.
Dagskráin verður send í öll hús
og einnig verður hægt að nálgast
hana á www.hafnarfjordur.is.
Hér hefur eingöngu verið stiklað
á stóru þannig að ég hvet
bæjarbúa til að kynna sér hina
veg legu dagskrá vel.
Við sjáumst galvösk og glöð á
17. júní!
Höfundur er formaður íþrótta-
og tómstumdanefndar og
þjóðhátíðarnefndar
Hafnarfjarðarbæjar.
17. júní nálgast
Margrét Gauja
Magnúsdóttir
Öflugt þjálfarateymi
meistara- og 2. flokks kvenna í knattspyrnudeild FH
Þjálfararnir Orri Þórðarson, Arna Steinsen og Jón Þór Brandsson.
Erla M Helgadóttir, hjúkrunarstjóri, Hallgrímur Guðmundsson,
Brandur Sigurðsson, Einar Ágústs son, Friðrik Ólafur Guðjónsson,
Óli Rafn Sumarliðason frá Lionsklúbbi Hafnarfjarðar og Árni
Sverrisson forstóri Sólvangs. Á myndina vantar Birnu Flygenring
framkvæmdastjóra hjúkrunar.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Lionsklúbburinn Ásbjörn gaf rúm
Vistmenn hæstánægðir með nýju rúmin
Á 11 ára afmæli Rótarý klúbbs -
ins Straums í Hafnarfirði afhenti
klúbburinn í fyrsta sinn hvatn -
ingar verðlaun sem verður fram -
vegis árlegur viðburður. Í ár var
ákveðið að Geir Bjarnason, for -
varnarfulltrúi fengi verðlaunin
og tók hann við verðlaununum á
morgunfundi klúbbsins sl.
fimmtudag. Fær hann verðlaunin
fyrir gott starf sitt í forvarna -
málum í Hafnarfirði
Á liðnum vetri ákváðu klúbb -
félagar að efna til hvatningar -
verð launa og samþykkt var að
hvatn ingarverðlaunin skyldu af -
hent þeim aðila eða aðilum, sem
klúbbfélögum þættu hafa gegnið
skrefi framar en aðrir í viðleitni
sinni til að láta gott af sér leiða í
Hafnarfirði og vera öðrum fyrir -
mynd og hvatning. Mark mið
hvatningarverðlaunanna er
þann ig bæði að benda á það sem
mikils er virði og eins hitt, að
hvetja aðra til dáða, hvern á sínu
svið eða sínum stað í mannlífinu.
Hvatn ingar verðlaunin endur -
spegla þann ig hugsjón Rótarý
sem felst í fjórprófinu.
Verðlaunagripurinn er unnin af
Fríðu Jónsdóttur, gullsmið, félaga
í klúbbnum og byggir hún gripinn
á merki og nafni klúbbs ins.
Rótarýklúbburinn Straumur verðlaunar
Geir Bjarnason fékk fyrstu hvatningarverðlaun klúbbsins fyrir forvarnarstarf
Geir Bjarnasong og Þorhallur Heimisson, forseti Straums
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n