Fjarðarpósturinn - 17.07.2008, Síða 2
Síðasta sýningarhelgi í
Hafnarborg
Árni Gunnlaugsson hæstaréttar lög -
maður hefur verið ötull í að mynda
Hafn firðinga en um 50 ár eru síðan
hann fór að taka myndir af eldra fólki á
förn um vegi í Hafnarfirði, aðallega af
þeim Hafnfirðingum sem lengi höfðu
átt þar heima. Hvatinn að þessum
ljósmynd um voru ljósmyndir eftir
Gunnar Rúnar frá árunum 1940-50 en
þær er að finna í tveimur bókum
Magnúsar Jónssonar kennara.
Á sýningunni eru um 400 ljósmyndir
af um 500 eldri Hafnfirðingum, sem
teknar voru á árunum 1960-92 og eru
allar svart hvítar. Myndirnar eru úr
safni 612 ljósmynda úr þremur bind -
um bókar Árna, ,,Fólkið í Firðinum”.
Síðasta sýningarhelgi.
Sýning Byggðasafnsins í Hafnarfirði
Hundrað þar sem eru til sýnis
ljósmyndir sem spanna hundr að ára
sögu Hafnarfjarðar kaup staðar ásamt
örsögum lýkur um helgina.
Sýning í Syrpu
Í Galleríinu Syrpu á 2. hæð Strandgötu
39 stendur yfir sýning á verkum þeirra
Bjarna Þ. Þórarinsson og Guðmundar
Odds Magnússonar. Sýningin er opin
virka daga kl. 12-18 og eru gestir
hvattir til að hringja dyrabjöllunni.
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 17. júlí 2008
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Eru fornminjar ekki í hávegum hafðar í
Hafnarfirði? Mér varð hugsað til Hafnarfjarðar
þegar ég sá frétt um safnaverðlaunin og reyndi að
ímynda mér hvað Hafnarfjarðarbær gæti fengið
rós í hnappinn fyrir. Ég er ekki viss um að bærinn
hafi yfir höfuð komist inn á listann. Hafnarfjörður
á sér merka sögu, sögu atvinnulífs og búskapar
við erfiðar aðstæður. Allt í kringum okkur eru
minjar búskapar og útræðis en sjaldgæft er að sjá
merktar fornminjar í bæjarlandinu eða minjar sem
vert er að varðveita. Mikil saga er eflaust farin forgörðum í miðbæ og
þar sem þegar hefur verið byggt. Lengi var lítið hugsað um að
varðveita söguna og margt var rifið á sjöunda og áttunda áratugnum,
hús sem vel hefði mátt varðveita en ekki var talin ástæða til þess.
Suðurtraðir heim að Ófriðarstöðum/Jófríðarstöðum hafa verið
skemmdar algjörlega að nauðsynjalausu og aðallega vegna þess að
bæjaryfirvöld hafa verið að sniðganga byggingarreglugerð og koma
sér hjá að fara eftir öllum leikreglum. Ber ekki einhver ábyrgð í
svona máli? Í hverju felst ábyrgðin? Halda menn bara áfram eins og
ekkert hafi ískorist?
Er ekki mál að linni að framkvæmdir verði undirbúnar með meiri
forsjá en hingað til? Það er eitthvað að stjórnsýslunni. Það segir einn
bæjarfulltrúi sem finnst brotið á sér við niðurrif trjáa. Þá er bara
tvennt í stöðunni: Krefjast úrbóta strax eða fella meirihlutann í næstu
kostningum því hann ber ábyrgðina. Hvort vilja fulltrúar meiri -
hlutans? Eflaust fyrri kostinn en þá verða menn líka að bretta upp
ermarnar. Við viljum dugmikla bæjarfulltrúa sem þora að hafa
skoðanir og fylgja þeim eftir. Erum við með svonleiðis bæjarfulltrúa?
Kannski þeir sýni okkur það núna?
Guðni Gíslason
www.hafnarfjardarkirkja.is
Sunnudagurinn 20. júlí
Morgunsöngur kl. 10.30
Prestur: sr. Kjartan Jónsson, héraðsprestur
Morgunkaffi í safnaðarheimilinu eftir stundina.
Allir velkomnir
Víðistaðakirkja
Helgistund á sumarkvöldi
sunnudaginn 20. júlí
kl. 20:00
Prestur: Sr. Kjartan Jónsson
Einsöngur: Eyjólfur Eyjólfsson
Organisti: Arngerður María Árnadóttir
Helgihald fellur niður vegna sumarleyfa
frá 27. júlí – 31. ágúst.
www.vidistadakirkja.is
Ökumanni vörubifreiðar hefur
líklega brugðið illilega er krani
sem festur var aftan við pall
bílsins rakst á brú á Reykjanes -
braut, yfir Strandgötu. Köstuðust
gangstéttarhellur út á götuna og
festingar kranans gáfu eftir og
hékk kraninn aftur úr vöru -
bifreið inni.
Umferð raskaðist ekki mikið
og fljótlega bar lögreglu að sem
aðstoðaði við að hreinsa götuna
og tók svo skýrslu af ökumann -
inum. Lítið tjón varð á brúnni.
Vörubílstjóri gleymdi
krananum uppi
Ók undir brú með kranann uppi
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Virðingar -
leysi og
aðgerðar -
leysi
Íbúi á Vesturgötu kvartar
sáran undan aðgerðarleysi
Hafn arfjarðarbæjar og lög -
reglu sem ekki bregst við
kvört unum hans við að lagt er
upp á tún við Bungalowið,
alveg upp að girðingu hjá
íbúanum. Þarna sé alls ekki
ætlast til þess að bílar séu og
íbúinn undrast svör lögreglu
sem segir fólk þurfi að vera
þolin mótt á meðan bygg ingar -
fram kvæmdir á Norður bakka
standi yfir.
Ógirt bygg -
ingar svæði
við Kirkjuvelli
Íbúar við Kirkjuvelli kvarta
sáran yfir gegnumakstri og
hraðakstri í götunni. Við
götuna er einnig verið að
byggja og þar er verið að gera
djúpa grunna en ekkert hindrar
börn í að fara inn á svæðið en
svæðið er algerlega ógirt þrátt
fyrir kvartanir íbúa.
Lækur snyrtur
og
göngustígur
gerður
Unnið er að gerð nýs göngu -
stígs meðfram læknum sem
liggur neðan við gamla Set -
bergshverfið. Jafnframt er
verið að lagfæra sjálfan lækjar -
farveginn, til að gera hann
snyrti legan.
Verður gönguleiðin með -
fram læknum mjög skemmti -
leg og hlýtur að gleðja margan
bæjarbúann.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n