Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 17.07.2008, Side 3

Fjarðarpósturinn - 17.07.2008, Side 3
Eldri borgarar eru þeir nefndir sem eru 60 ára og eldri. Í Hafnar - firði eru til samtök eldri borgara, Félag eldri borgara í Hafn arfirði og nýlega tók þar við for mennsku Jón Kr. Óskarsson sem hefur látið sig málefni eldri borg ara varða og það er sagt að það gusti af Jóni í hópi eldri borgara. Í Félagi eldri borgara (FebH) eru nú um 770 manns en alls voru um síðustu ára mót 3230 manns, 60 ára og eldri í Hafnarfirði, 1514 karlar og 1716 konur. Í viðtali við Fjarðarpóstinn seg - ist Jón Kr. Óskarsson vilja fjölga félögum verulega. „Við viljum fjölga félögum í tvö þúsund,“ seg ir Jón og segir mikil vægt að félagið fái aukið húsnæði. „Við höfum enga sérað stöðu fyrir félag ið en í dag deilum við að - stöðu með starfs mönnum Hafnar - fjarðar bæjar í Hraunseli.“ Segir Jón að þegar hafi verið skipuð samstarfsnefnd Hafnar fjarðar - bæj ar og félagsins til að skoða húsnæðismálin í Hraunseli. En Jón segist vilja sjá starf á fleiri stöðum í bænum en í könnun sem Hafnarfjarðarbær lét gera í mars og apríl á þessu ári kem ur fram eindreginn skoðun meðal eldri borgara að þörf væri á nýrri félagsmiðstöð en um 56% þátttakenda voru á þeirri skoðun þrátt fyrir að könnunin væri gerð meðal fólks í Hraunseli og í húsnæði aldraðra að Hjallabraut 33 og í Höfn. „Við viljum bjóða upp á aukna dagskrá. Um þessar mundir erum við að setja saman dagskrá næsta starfsárs og ég hvet eindregið þá sem vilja koma ábendingum á framfæri um námskeið og aðra dagskrárliði að hafa samband við mig í síma 895 6158 eða í tölvupóst á etrade@simnet.is og einnig ef menn vilja skrá sig í félagið.“ Ítrek ar Jón að allir 60 ára og eldri Hafnfirðingar eru hjartanlega velkomnir í félagið. Fjölbreytt starf Nefndir Félags eldri borgara bera ábyrgð á fjölbreyttu starfi félagsins. Af nefndum má nefna ferðanefnd, dansnefnd, spila - nefnd, göngunefnd, íþróttanefnd, menningarmálanefnd, púttnefnd, þorrablótsnefnd og kórstarf en öflugur kór Félags eldri borgara er starfandi og þar eru nýjar söng raddir ávallt velkomnar, sér - staklega karlaraddir. Boðið er upp á glerskurð, tré - skurð, myndmennt, boccia, félags - vist, bridge, leikfimi, línu dans, pílukast, sauma og fl. og hug - myndir eru uppi um fleiri nefndir, s.s. skáknefnd og djass nefnd en Jón er mikill djass aðdáandi. Í fyrrgreindri könnun kom einn ig fram vilji fyrir aðgangi að heit um mat í hádeginu, hár - greiðslu- og fótstnyrtingu en einn ig kallaði fólk eftir fjöl - breyttara félagsstarfi og viku - legum viðtalstíma við hjúkrunar - fræðing Sumarfrí Jón segir stjórnina vilja skoða hvort ekki eigi að auka starfið á sumrin en húsið er lokað frá júlíbyrjun og til 11. ágúst. Göngu hópurinn er þó í fullu starfi, sömuleiðis ferðanefndin og stendur hún t.d. fyrir ferð á Njálu slóðir sem verður farin áður en þetta birtist og ferð í Við - ey 13. ágúst. Félagið þarf aðstöðu „Það þarf að útvega aðstöðu svo fólk geti komið alla daga, fengið sér kaffisopa, lesið blöð og spjallað saman,“ segir Jón og bendir á að erfitt sé að samnýta rými í Hraunseli. Segir Jón aðspurður að skoða þurfi verka - skiptingu á milli félagsins og Hafnarfjarðarbæjar. Félagið hafi að stöðu í Hraunseli en hafi hvergi sér rými og starfsfólkið sé starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar, ekki félagsins. Segir Jón nauð - synlegt að félagið hafi eigin skrifstofu og að stjórn og nefndir geti fundað þar. Fjölmörg mál - efni bíði og leggur Jón áherslu á að félagið eigi að vera sýnilegra í baráttu fyrir bættum kjörum aldraðra, slíkt eigi ekki bara að eftirláta Landssambandi eldri borgara. Baráttumál aldraðra Jón segist vonast eftir því að skrifað verði undir samning um byggingu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða á Völlum en hjúkruna - rrýmum hefur fækkað í Hafnar - firði á undanförnum árum. „Einn ráðherrann, Ingibjörg Sólrún Gísla dóttir, sagðist í byrjun kjörtímabils ætla að byggja þau 400 hjúkrunarrými sem upp á vantaði í landinu, á 18 mán - uðum, en lítið hefur gerst,“ segir Jón og er greinilega ekki ánægð - ur með sinn flokksmann í þess - um málum. Tryggja þarf öldruðum lág - markslífeyri. Endurskoða þarf skattlagningu lífeyristekna og ósanngjarnt að greiða skulu á ný skatta af lífeyri og fullan skatt af fjármagns - tekjum sem lagst hafa á lífeyri. Eldri borgarar eiga að geta hald ið heimili sem lengst með góðri heimaþjónustu og heima - hjúkrun sem þyrfti að vera undir sama hatti en er nú undir forystu sveitarfélaga annars vegar og ríkis hins vegar. Virðisaukaskattur af lyfjum verði lækkaður eða felldur niður. Það er greinilegt að það er mikill hugur í Jóni enda segist hann vera kominn til þess að efla félagið, félagslega og til hags - muna fyrir eldri borgara. www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 17. júlí 2008 Hafnfirðingar athugið! Strandgötu 37 • sími 565 4040 • Gerum við skartgripi. • Gyllum og hreinsum. • Rafhlöðuskipti á staðnum. • Gerum göt í eyru á meðan beðið er. www.lovedsign.is • www.nonnigull.is F j a r ð a r p ó s t u r i n n 0 8 0 4 Verslum í heimabyggð! Kominn til þess að breyta Jón Kr. Óskarsson, formaður Félags eldri borgara í Hafnarfirði Fótboltaáhugamönnum gefst kjörið tækifæri á að sjá skemmti - legan fótbolta því FH tekur á móti CS Grevenmacher frá Lúxemborg í kvöld á Kapla - krikavelli kl. 19.15. Grevenmacher varð Lúxem - borgarmeistari árið 2003 og bikarmeistari 2008 og búast má við skemmtilegum leik þar sem FH á að eiga þokkalega mögu - leika á sigri en þá þarf liðið að ná fram töfrum fyrri umferða Íslands mótsins. FH-ingar hafa njósnað um liðið en á heimasíðu Greven - macher kemur fram að aðstoðar - þjálfari FH hafi mætt á leik í Consorf til að fá mynd af leik strákanna frá Mósel. Fjörugt á pöllunum FH-ingum veitir ekkert af góðum stuðningi og hafnfirskir boltaáhugamenn eru hvattir til að mæta í Kaplakrika til að hvetja FH til sigurs. FH-búðin verður opin frá kl. 16 þar sem hægt er að kaupa ýmsan FH-varning og miða á leikinn. Frítt er fyrir yngri en 16 ára. Aðgengi að gömlu stúkunni hefur verið erfitt vegna bygg - ingaframkvæmda en gengið er að henni fá aðkomunni við Flata - hraun, meðfram nýju stúkunni og vestur fyrir völlinn. Ný að - koma hefur verið gerð að svæð - inu á móts við Skútahraun. Evrópuleikur á Kaplakrikavelli í kvöld FH tekur á móti CS Grevenmacher frá Lúxemborg Jón Kr. Óskarsson, formaður Félags eldri borgara í Hafnarfirði. L j ó s m . : G u ð n i G í s l a s o n Frá Evrópuleik gegn KB í fyrra. L j ó s m . : G u ð n i G í s l a s o n Sigurður Magnússon bæjar - stjóri á Álftanesi tók fyrstu skóflu stungu að nýrri við - byggingu við Álftanesskóla sl. fimmtudag. Viðbyggingin, sem verður byggð í þremur til fjórum áföngum, mun stækka skólann til muna og bæta aðstöðu fyrir nemendur og starfsmenn. Síðasta skólaár voru u.þ.b. 450 nem - endur í skólanum og þurfti að notast við sex lausar bráða - birgðastofur. Með hinni nýju við byggingu er gert ráð fyrir að skólinn geti rúmað 600 nem - endur. Í fyrsta áfanga viðbyggingar - innar, sem nú er verið að hefjast handa við, verða byggðar ellefu skólastofur fyrir bóknám og sér - greinar norðan við skólann. Á milli kennslueininga verða úti - garðar þar sem hægt verður að útfæra umhverfisfræðslu utan - dyra. Áætlað er að taka hluta af skólastofunum í notkun í árslok 2009. Í öðrum áfanga verður byggt mötuneyti, bókasafn og fjö lnota salur en framkvæmdir við þann áfanga eru fyrirhugaðar á árinu 2010. Í þriðja og fjórða áfanga, þar sem hönnun er í undir búningi, er svo gert ráð fyrir endur nýjun stjórnsýslu - rýmis og bygg ingu fyrir Tón - lista skóla Álfta ness. Álftanesskóli stækkaður Útigarður fyrir umhverfisfræðslu Sigurður Magnússon bæjarstjóri ávarpar viðstadda þegar framkvæmdir hófust við viðbyggingu Álftanesskóla.

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.