Fjarðarpósturinn - 18.09.2008, Blaðsíða 10
Stofnfundur sjálfseignar stofn -
unarinnar Starfsendurhæfing
Hafn arfjarðar var haldinn 2.
septem ber sl. Að stofnuninni
standa Hafnarfjarðarbær, Starfs -
mannafélag Hafnarfjarðar,
Verka lýðsfélagið Hlíf og Sjúkra -
þjálfarinn.
Í samtali við Fjarðarpóstinn
segir Anna Guðný Eiríksdóttir,
sem staðið hefur að undirbúningi
stofnunarinnar, að mikið hafi
verið rætt um þörfina á endur -
hæfingarúrræðum en öryrkjum
hefur fjölgað hér á landi meira en
í nágrannalöndum okkar og
atvinnuþátttaka þeirra hefur
verið lítil. Það sé mjög slæmt því
fólk einangrist og eftir því sem
fólk sé lengur frá vinnu sé
erfiðara að hefja störf á ný.
Starfsendurhæfingin er ætluð
fólki sem vill komast á ný inn á
vinnumarkaðinn t.d. í kjölfar
veikinda, slysa eða félagslegra
erfiðleika. Þetta getur verið fólk
sem er á örorku eða endur -
hæfingarlífeyri, fólk sem notið
hefur réttinda úr sjúkrasjóðum
stéttarfélaga, fólk sem er á bótum
hjá svæðisvinnumiðlun eða
sveitarfélagi eða ungt fólk með
litla menntun og án starfs.
Starfsemin verður í samstarfi
við Námsflokka Hafnarfjarðar,
Flensborgarskóla og fleiri aðila.
Úrslit:
Fótbolti
Karlar:
FH - Fram: (miðv.dag)
Magni - ÍH: 2-4
FH - Valur: 3-0
Þór - Haukar: 1-1
Handbolti
Karlar:
Haukar - Valur: 25-21
Næstu leikir
Fótbolti
20. sept. kl. 14, Grenivík
ÍH - Tindastóll
(2. deild karla)
20. sept. kl. 16, Ásvellir
Haukar - Stjarnan
(1. deild karla)
21. sept. kl. 16, Kaplakriki
FH - Keflavík
(úrvalsdeild karla)
24. sept. kl. 16.30, Kaplakriki
FH - Breiðablik
(úrvalsdeild karla)
Handbolti
18. sept. kl. 19.30, Akureyri
Akureyri - FH
(úrvalsdeild karla)
20. sept. kl. 14, Ásvellir
Haukar - Stjarnan
(úrvalsdeild kvenna)
20. sept. kl. 16, Ásvellir
Haukar - Stjarnan
(úrvalsdeild karla)
20. sept. kl. 16, Seltjarnarnes
Grótta - FH
(úrvalsdeild kvenna)
Íþróttir
Til leigu 3ja herbergja íbúð á
Vallarbraut (Hvaleyraholti). íbúðin
er 85 m² og er laus 1. nóvember.
Verð 145. þús pr. mánuð.
Uppl. gefur Björn s. 896 2591,
buknavellir@hive.is
Til leigu 3ja herb. íbúð við
Álfaskeið frá 1. nóv 2008 til 1.
mars 2009. Íbúðin leigist með
öllum húsbúnaði. Rafmagn,
hússjóður og hiti innifalið í leigunni.
Uppl. í s. 565 0843 eða 893 1746
Herbergi til leigu á góðum stað í
Hafnarfirði. Í Hraunbyrgi, heimili
skátafélagsins, er laust herbergi til
áramóta, jafnvel lengur. Herbergið
er með handlaug, sameiginlegar
sturtur, wc, eldhús, borðsalur og
setustofa með sjónvarpi.
Aðeins reyklausir og reglusamir
einstaklingar koma til greina.
Uppl. hraunbuar@hraunbuar.is eða
hjá Ingu Maríu í s. 690 3566.
32 ára reyklaus og stundvís maður
óskar eftir vinnu. Allt kemur til
greina. Getur byrjað strax.
Uppl. í s. 896 4434, Magnús.
Ég er 13 ára stelpa og er búin að
fara á námskeið hjá RKÍ. Ég tek að
mér að passa börn flest kvöld
vikunnar og um helgar.
Anna, sími 898 8439.
Svæðameðferð – Ert þú í
líkamlegu og/eða andlegu
ójafnvægi? Svæðameðferð gæti
hjálpað þér. Er með svæða- og
þrýstipunktanudd.
Er í Haukahúsinu, Ásvöllum.
Ásta svæðanuddari, 848 3667.
Einkakennsla í bókhaldi.
Ég óska eftir einkakennslu í
bókhaldi, 1-2 klst. á viku.
Uppl. í s. 820 5244, Sara.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
Kennsla
Atvinna
Heilsa
Húsnæði í boði
Barnapössun
Eldsneytisverð
17. september 2008 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 163,1 177,9
Atlantsolía, Suðurhö. 163,1 177,9
Orkan, Óseyrarbraut 163,0 177,8
ÓB, Fjarðarkaup 163,1 177,9
ÓB, Melabraut 163,1 177,9
Skeljungur, Rvk.vegi 165,7 179,6
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð um olíufélaganna.
N1 gefur ekki upp verð á heimasíðu.
Að auki getur verið í boði sérafsláttur.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann JónassonSverrir Einarsson Jón G. Bjarnason
Fimmtudagur 18. september 200810 www.fjardarposturinn.is 1983-2008
Fáðu þér orkuríkan hristing
í fyrramálið
Elma: 846 6447 – 555 4750
SÖLUSTÖRF
Frjáls vinnutími, árangurstengdar
tekjur. Hentar fólki um allt land sem
auka- eða aðalstarf
Uppl. 565 1045 l 865 4052 l 898 7725
Hálfdán Kristjánsson
Alhiða flutningar
896 7730
kaldeyri@simnet.is
ÞVOTTUR OG BÓN
Sápuþvottur, bón, alþrif, mössun,
djúphreinsun, vélarþvottur.
Sæki og sendi bílinn.
Góð efni og vönduð vinnubrögð.
Uppl. veitir Magnús í s. 896 4434.
Skrifstofuherbergi til leigu
Til leigu ca. 20 m² hornskrifstofa
á 2. hæð að Bæjarhrauni 2.
Glæsileg aðstaða, m.a. aðgangur að
kaffistofu og geymslu.
Uppl. í síma 696 5310.
Evrópska samgönguvikan stend -
ur nú sem hæst. Þetta er í 5. sinn
sem Hafnarfjarðarbær er þátt tak -
andi í samgönguvikunni. Yfirskrift
vikunnar þetta árið er „Hreint loft
fyrir alla“ og er svo
sann ar lega ekki vanþörf
á að við förum að hugsa
um hvernig við getum
hvert og eitt lagt eitt -
hvað að mörkum til að
minnka mengun. Í grein
sem ég skrifaði í blaðið í
síðustu viku vék ég m.a.
að nagladekkjum og
þeirri mengun sem verð -
ur af notkun þeirra. Nú
langar mig að víkja að almennings -
samgöngum.
Það er alveg kristaltært í mínum
huga að við verðum að efla al -
menn ingssamgöngur og reyna eftir
fremsta megni að gera þær að
raunhæfum valkosti fyrir fólk. Af
hverju geta Íslendingar ekki lært að
spara einkabílinn og nota strætó?
Mín tilfinning er að það þarf að
gera strætóferðir aðgengilegri og
skemmti legri, já og jákvæðara við -
horf þarf að skapast gagnvart
strætó. Ég get sagt eina skondna
sögu af kunningja mínum sem tók
alltaf strætó í vinnuna. Hann var oft
spurður að því hvort hann færi nú
ekki að fá prófið aftur. Svona geta
nú viðhorfin verið gagnvart því að
heiðvirt fólk noti strætó. Það að
nota strætó sparar ekki bara pening
í buddu notandans heldur verður
af leiddi gróðinn sá að við minnk -
um kostnað í sam göngu mann -
virkjum s.s bílastæðum
og fleiri mislægum
gatnamótum til að auka
umferðar flæð ið.
Því er spáð að bíla -
floti landsmanna eigi
eftir að aukast um þriðj -
ung á næstu 15 árum.
Það er einfaldlega of
mikið. Sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu
geta ekki, án aðkomu
ríkisins, rekið almenn ings sam -
göngur svo vel sé. Það kostar ein -
faldlega of mikið. Ríkið styrkir
ekki almenningsamgöngur hér á
landi. Engar íviljanir eru að hálfu
ríkis ins til srætó. Það er umhugs un -
ar vert að ef þú kaupir þér fólks -
flutningabíl til að aka ferða mönn -
um um landið þá færð þú 75% af
virðisauka greiddan til baka en ef
þú ætlar að nota hann í akstur
farþega stætó færðu ekki virðis -
aukann til baka. Aðflutings gjöld
eru engin af rútum. En ef bíllinn
heitir Strætó þá borgar maður að -
flutingsgjöld. Skrýtin la tína það.
Hjólreiðar eru líka valkostur sem
ætti að vera í boði, hjól sem sam -
göngutæki er fínt en það þarf að
vera pláss fyrir það á vegunum.
Það er í raun alveg stórskrýtið að
ekki skuli vera lagðar hjólabrautir
með fram nýjum vegum hér á
höfuð borgarsvæðinu og er ábyrgð
sveita félagana ekkert síðri en
Vega gerðarinnar. Við höfum verið
of lin í að krefja Vegagerðina um
hjóla braut meðfram vegum þannig
að hægt sé að nota hjólið sem sam -
göngutæki. Sportstígarnir eru af
hinu góða og vel til þess fallnir að
fara í hjólatúra sér til skemmtunar
og yndis auka en við þurfum að
gera hjólinu hærra undir höfði og
veð urfarið er orðið þannig að hægt
er að hjóla allan ársins hring.
Hafnar fjarðarbær, í samvinnu
við Mosfellsbæ og Reykjavík,
stend ur fyrir málþingi í Iðnó í
kvöld kl 20. Yfirskrift máþingsins
er hreint loft fyrir alla. Dagskráin er
auglýst hér í blaðinu. Á laugar dag -
inn munum við hjóla til Reykja -
víkur með viðkomu í Garða bæ og
Kópavogi. Farið er í þriðja sinn frá
Hafn arfirði og hefur ávallt tölu -
verð ur fjöldi fólks hjólað með,
farar stjórar eru meðlimir Íslenska
fjalla hjóla klúbbs ins. Mark mið
ferð arinnar, fyrir utan að gleðjast
saman á hjóli, er að vekja at hygli á
að hjólið er líka sam göngutæki.
Komdu með!
Höfundur er bæjarfulltrúi og
form. umhverfisnefndar Sd21.
Samgönguvika 16.-22. september
Guðfinna
Guðmundsdóttir
Starfsendurhæfing Hafnarfjarðar stofnuð
Sameiginlegir hagsmunir allra að að fólk komist í starfsendurhæfingu
Anna Guðný Eiríksdóttir
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n