Fjarðarpósturinn - 27.11.2008, Page 1
Það ætti að kæta bæjarbúa í
allri neikvæðri umræðunni þegar
jólaþorpið verður opnað á
laugar daginn og kveikt verður á
jólatrjánum frá Frederiksberg og
Cuxhaven. Kveikt verður á Cux -
haven trénu kl. 15 við Óseyrar -
bryggju og á danska trénu á
Thorsplani kl. 17.
Mikið verður um dýrðir, leik -
atriði, söngur og tónlist á Thors -
plani auk þess sem boðið verður
upp á fjölbreytta dagskrá víða
um bæinn.
Upplestur verður í bóka safn -
inu, Ellen og KK verða í bæjar -
bíói, tónleikar verða í Hafn ar -
borg, í Tónkvísl við gamla Lækj -
ar skóla og víðar. Flest ir við -
burðir eru kynntir hér í blaðinu
og dagskrá jólaþorpsins má finna
á bls. 5.
Þetta er í sjötta sinn sem jóla -
þorpið er starfrækt og nú hefur
verið sköpuð götu stemmn ing þar
sem húsunum er raðað á nýjan
hátt. Gott pláss er í miðjunni og
opið út á Strand götuna. Það
verður því nóg pláss fyrir útijóla -
ballið sem verður kl. 15 á sunnu -
daginn en áður getur fólk hlýtt á
Samúel Aron Laufdal, sigur -
vegar ann í hæfi leikakeppni
félags miðstöðva, atriði úr Bugsy
Malone og Naflakusk svo eitt -
hvað sé nefnt.
ISSN 1670-4169
Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
w w w. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
45. tbl. 26. árg. 2008
Fimmtudagur 27. nóvember
Upplag 9.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi
www.as.is
Sími 520 2600
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Jólin komin í Fjörðinn
Kveikt á tveimur jólatrjám á laugardaginn
siggaljosmyndari.is
Opið kl. 8-18
símsvari kvöld og helgar
Jólahandbók fylgir blaðinu 4. desember!
Starfsmenn bæjarins hafa sett upp jólaþorpið eins og venjulega.