Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 08.01.2009, Qupperneq 2

Fjarðarpósturinn - 08.01.2009, Qupperneq 2
Árshátíð sveitarfélags Þorrablót á Álftanesi Hefðbundið þorrablót Álft - nesinga verður laugardaginn 24. janúar. Afar löng hefð er fyrir þessu blóti sem árum sam an hefur verið aðal - samkoma sveitarfélagsins og eins konar árshátíð íbúanna. Það er Kvenfélagið og Lionsklúbburinn sem að venju standa sameiginlega að þorra - blótinu. Reynt er að viðhalda öllum gömlum og góðum hefðum á þessari samkomu og vanda allan undirbúning sem frekast má. Undirbúningur hefur staðið frá því í október og allt senn til reiðu að taka á móti hundruðum prúðbúinna Álftnesinga og annara gesta en blótið er öllum opið. Íþróttasalnum verður gjör - breytt í veislu- og skemmtistað eina kvöldstund með ómældri fyrirhöfn vaskra karla og kvenna. Mikil stemning er ætíð á meðal veislugesta og gleði og vinskapur ræður ríkjum. Þorramatur er auðvitað í öndvegi en þeir sem hafa annan smekk geta einnig fengið sinn veislumat. Skemmti atriði eru heima - smíðuð eins og alltaf og flutt af innfæddum og má reikna með því að þar fái hver maður sinn skammt. Á eftir verður dansinn stiginn fram eftir nóttu við undir leik Íslands einu vonar með Eyva og Stebba Hilmars í broddi fylkingar. Miðar á blótið verða til sölu í Íþrótta - miðstöð Álftaness á laugar - daginn kl. 12-15. Gest unum gefst kostur á að velja sér við - eigandi borð og sæti í salnum. Þá er nýtt ár gengið í garð, ársins sem engin ástæða er önnur en að líta björtum augum til. Flestir þurfa að aðlaga sig að „kreppunni“, sumir læra af henni, einhverjir skaðast en mikilvægt er að líta björtum augum á lífið og horfa til mögulegra tækifæra. Þess vegna óska ég gleðilegs árs. Íþrótta- og tómstundaráð Hafnarfjarðar lauk árinu með arfavitlausasta jafnréttisútspili sem ég hef lengi séð. Bætti við „Íþróttakonu Hafnarfjarðar“. Fyrir þetta var jafnræði, valið var óháð kyni. Skyldi jafnréttisnefnd hafa metið málið? Nær hefði verið að auka jafnræðið og heiðra líka leiðtoga í öðru félagsstarfi, ungt fólk sem við getum verið stolt af og keppa á öðrum forsendum en í íþróttum. Önnur sveitarfélag hafa tekið þetta upp en Hafnarfjarðarbær hefur hundsað slíkar tillögur. En nýtt ár gefur ný tækifæri til jafnréttis og jafnræðis. Það er alltaf gaman að fara á brennu og þrettándabrennur eru hluti af langri hefð hér í bæ. Haukarnir sáu um fjörugt jólaball, álfa, púka og jólasveina og skemmti fólk sér vel. Bálið var þó allt of stór ruslabrenna en vonandi var ekki verið að brenna rústir veggjatítlu - húss en ýmislegt annað en timbur var í haugnum. Neistaflugið sveif yfir bílastæðin. Ekkert eftirlit var virtist vera við bálið og börn voru alveg upp við bálið auk þess sem fullorðnir kveiktu í blysum og rakettum innan um fólksfjöldann. Svona langar mig ekki að sjá aftur á skemmtilegri hátíð. Jól og áramót liðu nokkuð friðsamlega hér í bæ og vonandi verður árið friðsamlegt þó nauðsynlegt sé að fólk tjái skoðanir sínar - friðsam lega. Guðni Gíslason 2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 8. janúar 2009 Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is Víðistaðakirkja Sunnudagurinn 11. janúar Barnaguðsþjónusta kl. 11.00 Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna. Guðsþjónusta kl. 13.00 fyrir eldri borgara í Víðistaðasókn, Garðasókn og Bessastaðasókn. Prestur: Sr. Friðrik J. Hjartar. Djáknar: Nanna Guðrún Zoëga og Gréta Konráðsdóttir Garðakórinn syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar. Skemmtidagskrá og kaffiveitingar á eftir í boði Víðistaðakirkju. Gaflarakórinn syngur undir stjórn Kristjönu Þ. Ásgeirsdóttur. Boðið verður upp á rútuferð frá Hjallabraut 33 kl. 12.40 og frá Hrafnistu kl. 12.50. Kyrrðarstundir á miðvikudögum kl. 12.00 Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir. Opið hús fyrir eldri borgara á miðvikudögum kl. 13.00 Spil, spjall og kaffiveitingar Foreldrastundir á fimmtudögum kl. 13.00 Gefandi samvera fyrir heimavinnandi foreldra. www.vidistadakirkja.is Allir velkomnir! Bragi J. Ingibergsson, sóknarprestur Sunnudagurinn 11. janúar Fjölskylduhátíð kl. 11 í umsjá sr. Gunnþórs Þ. Ingasonar og leiðtoga sunnudagaskólans. Félagar i Gleðigjöfum leika og syngja. Góðgæti í Strandbergi. www.hafnarfjardarkirkja.is Nýjar sýningar í Hafnarborg Sýningarnar Íslenskir listamenn - ljósmyndir eftir Jónatan Grétarsson og Þættir verk eftir Björgu Þorsteinsdóttur verða opnaðar í Hafnarborg, á laug - ar daginn kl. 15. Jónatan Grétarsson er ungur ljósmyndari sem leitast við að skrásetja íslenska listamenn og hefur í aðdraganda sýningarinnar tekið fjölda ljósmynda af meira en hundrað listamönnum úr öllum listgreinum og á ýmsum aldri. Björg Þorsteinsdóttir sýnir málverk og teikningar þar sem hún teflir saman efnum og tækni á nýstárlegan hátt. Sýningar í Bæjarbíói Á þriðjudaginn kl. 20 sýnir Kvik - myndasafn Íslands fyrri hluta kvik - myndarinnar Once upon a time in America í leikstjórn Sergio Leone. Epísk og ævintýraleg saga lítils glæpagengis í New York, sem nær yfir 40 ára tímabil. Orkupunktajöfnun á fundi Næsti fundur hjá Sálarrannsóknarfélaginu í Hafnarfirði verður fimmtudaginn 15. janúar. Þá munu félagar úr Sálar rann - sóknarfélaginu Liljunni kynna og gefa fólki kost á að þiggja OPJ meðferð sem er orku - punktajöfnun sem stuðlar að bættri og betri líðan. Hátíðartónleikar Rótarý Jónas Ingimundarson, sem undirbýr tónleikana hefur fengið til liðs við sig óperusöngkonuna Þóru Einarsdóttur, og saman flytja þau franskar söngperlur eftir Bizet, Fauré, Poulenc o.fl., íslensk sönglög eftir Tryggva M. Baldvinsson við ljóð eftir Þórarin Eldjárn, og loks ljúfsár lög og glæsilegar aríur eftir Rachmaninoff, Ibert, Bellini og Gounod. Á tónleikunum kemur einnig fram Melkorka Ólafsdóttir flautu - leikari. Hægt er að fá miða á tónleika kl. 16 á laugardaginn á www.midi.is Ónæðisútköll Mikill erill var hjá lögreglunni í bænum um áramótin. Talsvert var um hávaða og ónæðisútköll í heimahús. Í iðnaðarhúsi við Hvaleyrarbraut voru höfð afskipti af tveimur mönnum en annar þeirra var með talsvert magn af fíkniefnum í fórum sínum, E töflur og amfetamín. þá fannst í húsnæðinu talvert magn verkfæra sem talið er vera þýfi. Þá lokaði lögreglan partíhaldi í iðnaðarhúsnæði við Kaplahraun en þar inni voru um 150 manns en ekkert leyfi hafði verið gefið út fyrir samkomunni.Tilkynnt var um rúðubrot í söluturni í Setbergshverfi og við Hellu - hraun, í verslun við Dalshraun og leikskólanum Smáralundi. Alls var tilkynnt um 38 innbrot í Hafnarfirði í desember, þar af aðeins eitt innbrot í heimili og 17 í nóvember. 13 innbrot voru tilkynnt í desember 2007.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.