Fjarðarpósturinn - 08.01.2009, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 8. janúar 2009
Að standa við orð sín, sann -
leikann og ekkert nema sann -
leikann. Þegar þú hefur heit -
bund ið þig markmiðum þínum
og áformum þá er besta leiðin
eða eina leiðin til að ná mark -
miðum sínum að standa við gef -
in loforð. Þegar við stöndum við
gefin loforð erum við að sanna
að við séum trúverðug og
traustsins verð og þá byrjum við
að treysta bæði sjálfum okkur,
öðrum og tilverunni.
Ekki hægt að mæta of seint
Ein af orkufrekustu aðgerðum
lífsins er að fresta og svíkja
sjálfan sig. Bara það að mæta á
þeim tíma sem við sögðumst
ætla að mæta á eða vakna á þeim
tíma sem við vorum búin að
ákveða daginn áður getur reynst
sumum mikið mál að standa við.
Það er ekki hægt að mæta OF
seint. Það er bara hægt að mæta
nógu seint til að viðhalda
skortinum í lífi okkar og þá
virðingu sem við höfum fyrir
sjálfum okkur.
Ef við mætum seint þá er það
bara vegna þess að við ætlum að
mæta seint, við erum alltaf að
reyna að græða 5 mínútur t.d.
með því að setja í eina þvottavél
áður en við leggjum af stað eða
sofa 5 mínútur lengur. Þar af
leið andi erum við alltaf á síðustu
stundu og að flýta okkur sem er
mjög orkufrekt. Þegar við sitjum
í bílnum á leiðinni og sjáum fram
á það að við verðum sein þá
byrjum við ekki aðeins að
spenna okkur upp í herðunum og
keyra hraðar heldur einnig
byrjum við að búa til lygasögu til
þess að réttlæta eða afsaka það af
hverju við erum sein.
Við mætum sem sagt á
tilsettum tíma þegar við ætlum
okkur það t.d. í flug þegar við
erum að fara til útlanda.
Í hvert sinn sem við mætum
seint, frestum því að borga reikn -
inganna okkar, ljúgum eða svíkj -
um okkur sjálf eða aðra minnkar
sjálfsvirðing okkar hvort sem við
gerum okkur grein fyrir því eða
ekki. Við erum alltaf að taka að -
eins út af orkureikningnum
okkar. Það fer orka í það að vera
seinn og vera alltaf að flýta sér,
ljúga eða fresta.
Vertu traustsins verður
Til þess að endurheimta
orkuna okkar aftur þá verðum
við að byrja á því að standa við
gefin loforð. Bara það að gefa
okkur loforð um að vakna á
tilteknum tíma á morgnanna og
standa svo við þau loforð er góð
byrjun.
Þegar við segum sannleikann
og ekkert nema sannleikann
byrj ar orka okkar og tíðni að
breytast og við byrjum að treysta
okkur og öðrum. Við byrjum líka
að treysta tilverunni og að það
sem við löðum að okkur er alltaf
það besta, alveg sama hversu
krefj andi það virðist vera á
meðan á því stendur. Þannig
losum við okkur við kvíða,
streitu, spennu og ótta. Að vera
sagt upp í vinnunni, verða gjald -
þrota og ganga í gegnum hjóna -
skilnað eru dæmi um krefjandi
verk efni en með því að treysta
því að það besta verði erum við
að minnka kvíða og ótta. Við
lærum að sjá tækifærin í lífinu.
Stattu með sjálfum þér
Með því að byrja á að standa
með sjálfum okkur og standa við
gefin loforð getum við breytt
orku okkar. Í hvert skipti sem
við stöndum við loforð okkar
verðum við orkumeiri og við
förum að treysta okkur, við
sönnum fyrir sjálfum okkur að
okkur sé treystandi eitt loforð í
senn. Við hvetjum ykkur til að
reyna þetta sjálf, gefa ykkur
loforð, standa við það og finna
áhrifin.
Höfundarnir eru rope yoga
kennarar hjá elin.is
Elín
Sigurðardóttir
Margrét Ýr
Einarsdóttir
Heilsuþáttur í boði Fjarðarpóstsins og Elín.is
Trúfesta, heiðar leiki,
hollusta og tryggð
Auglýsing í Fjarðarpóstinum borgar sig! Auglýsingasíminn er 565 3066
Boðið er upp á ókeypis fjármálanámskeið
í samvinnu við Neytendasamtökin.
Námskeiðin eru ókeypis en nauðsynlegt
er að skrá sig til þátttöku. Hámark
þátttakenda er 25 manns á hvert
námskeið.
Námskeiðin verða sem hér segir;
12.janúar kl. 17.00 – 19.30
22.janúar kl. 13.00 – 15.30
Nánari upplýsingar og skráning eru í síma
585 5500 eða með tölvupósti á netfangið
info@hafnarfjordur.is
Fjármálanámskeið
Dagana 9. og 12. janúar munu
starfsmenn Þjónustumiðstöðvar
Hafnarfjarðar annast hirðingu jólatrjáa í
bænum. Þeir bæjarbúar sem vilja nota sér
þessa þjónustu eru vinsamlega beðnir um
að setja jólatrén út fyrir lóðarmörk.
Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar.
Jólatrén fjarlægð
Hef hafið störf
að Dalshrauni 11
Almenn fótaaðgerð, vörtumeðferð,
spangameðferð, hlífðarmeðferð
Tímapantanir í s. 867 4205
Get komið í heimahús ef fólk á ekki heimangengt!
Carita snyrting, Dalshrauni 11, Hafnarfirði
Jónína
Símonardóttir
fótaaðgerðarfræðingur
Alls tóku 13 þúsund manns
þátt í jólaleik Fjarðar og Strand -
götunnar. Þetta er í fyrsta skipti
sem þessir aðlilar vinna saman
að leiknum en Fjörður hefur
staðið fyrir svona leik í nokkur
ár.
Aðalverðlaunin voru 10 reið -
hjól og fjórir 50 lítra dælu lyklar
frá Atlantsolíu. Stærsti vinn -
ingurinn var reiðhjól með öllum
búnaði ásamt hjólreiða klæðnaði
alls að verðmæti 295.000 kr. Auk
þess voru 78 gjafabréf í vinning
frá verslunum og þjón ustu -
aðilum. Nöfn vinningshafa er að
finna á heimasíðu Fjarðar
www.fjordur.is
Jólaverslun gekk vel en var
eðlilega minni verslun en í fyrra
en þá var metár.
13 þúsund tóku
þátt í jólaleik
Mettþátttaka í jólaleik Fjarðar og Strandgötunnar
Albert Már Steingrímsson, framkv.stjóri Fjarðar ásamt Maríu
Einarsdóttur sem hreppti stærsta vinninginn og Ágústu
Hilmarsdóttur sem hlaut reiðhjól.
Þefuðu uppi
kanna -
bisræktun
Lögreglumenn voru við vett -
vangsvinnu í iðnaðarhverfinu
við Móhellu þegar megn
kanna bislykt lagði frá húsi í
nágrenninu. Við vettvangs -
könn un kom í ljós að talsverð
kannabisræktun var í húsinu.
Við leit komu í ljós 20 kanna -
bisplöntur í fullri ræktun. Einn
mað ur á þrítugsaldri hefur
verið yfirheyrður í tengslum
við málið og hefur hann viður -
kennt að hafa staðið að rækt -
uninni. Málið telst upplýst og
lokið að hálfu lögreglu.
Kristrún best
Kristrún Sigurjónsdóttir,
leik maður Hauka, var valin
besti leikmaður fyrri hluta
Íslandsmóts kvenna í körfu -
bolta en Haukar sitja á toppi
Iceland Express-deildarinnar.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n