Fjarðarpósturinn - 08.01.2009, Blaðsíða 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 8. janúar 2009
HERÞJÁLFUN
VILTU KOMAST Í BESTA FORM LÍFS ÞÍNS?
Herþjálfunarvöllurinn er sérútbúinn og sniðinn að þjálfun almennings.
Herþjálfun er alhliða þjálfun og ein besta, árangursríkasta og skemmtilegasta þjálfun
sem völ er á. Herþjálfunin reynir á þol, þrek og styrk bæði líkamlegan og andlegan auk
þess sem brennslan er í hámarki. Heragi ríkir á æfingum og þjálfarar sjá til þessað
hver og einn þjálfi að ystu mörkum. Þú öðlast meira sjálfstraust, meiri sjálfsaga og
aukinn viljastyrk.
Herþjálfunarvöllurinn er sérútbúinn og sniðinn að þjálfun almennings. Námskeiðin eru
uppbyggð eftir getu hvers og eins og henta því bæði byrjendum og lengra komnum.
Kíktu á heilsuakademian.is til að sjá hvenar næstu námskeið hefjast, en einnig er hægt
að byrja hvenær sem er svo lengi sem pláss leyfir.
Vertu fyrst(ur) til þess að skrá því takmarkaður fjöldi kemst á hvert námskeið.
DANSSKÓLI BIRNU BJÖRNS
Frábært dansnám fyrir 6-10 ára og 11-15 ára börn.
Dansskóli Birnu Björns býður upp á frábært dansnám í Íþróttahúsi
Lækjarskóla í Hafnarfirði þar sem áhersla er lögð á faglega kennslu.
Aðalgrunnurinn er jassballett og tækniæfingar, styrktar og liðleikaþjálfun
ásamt kennslu í mismunandi dansstílum t.d. jass, street-jass, hip hop,
freestyle, söngleikjadansi o.fl.
Allir nemendur koma fram á glæsilegri nemendasýningu í Borgarleik -
húsinu á vorin.
Kennarar skólans eru allir danshöfundar, atvinnudansarar með mikinn
metnað.
FIT-PILATES
Fit-Pilates þjálfar djúpvöðva líkamans, sem gefur langa fallega vöðva, flata kviðvöðva, grönn
læri, sterkt bak, betri líkamsstöðu og aukinn liðleika.
Skemmtilegar æfingar. Mjög
styrkjandi. Móta flottar línur
líkamans. Enginn hamagangur og
læti, en virkilega vel tekið á.
Fólk fær ekki aðeins meiri orku,
heldur einnig betri vörn gegn
meiðslum vegna fleiri virkra vöðva,
betra jafnvægis og meiri liðleika.
Frábært æfingakerfi.
UM NÁMSKEIÐIN
Ný námskeið
hefjast 19. janúar!
Staður: Íþróttahús Lækjarskóla, Hafnarfirði
Nánari upplýsingar í síma 594 9666
og á www.heilsuakademian.is