Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 08.01.2009, Page 6

Fjarðarpósturinn - 08.01.2009, Page 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 8. janúar 2009 Orðrómur hefur verið í gangi síðustu vikur um að loka eigi skurðstofum St. Jósefsspítala Sól vangi í Hafnarfirði. Óvissan er mikil og veldur óþarfa spennu hjá starfsmönnum og skjól stæð - ingum okkar. Heilbrigðisráðherra hefur ákvörðun ar vald - ið. Hann hefur dregið að halda fund með starfs mönnum síðan fyrir jól og enn dregur hann ákvörðunina. Hann og hans ráðu - neyti gera sér senni - lega ekki grein fyrir því starfi sem er unnið á þessari stofn un. Á árinu 2007 voru gerð ar 3464 aðgerðir á skurð deild inni og árið 2008 voru þær 3925. Hvar ætlar Heilbrigðisráðherra að láta framkvæma þessar aðgerðir? Hver er ávinningur við að loka skurðdeild St. Jósefsspítala - Sólvangs? Fyrir 3 árum var tekin ákvörðun af Heil brigðis - ráðu neytinu um að sameina St. Jósefspítala við Sólvang. Sú ákvörð un var tilkynnt með stutt - um fyrirvara og markmiðin með henni voru óljós. Á þeim tíma var óskað eftir svörum um hverju sú sameining ætti að skila en lítið var um skýr svör. Hvað kostar að sundra góðri og afkastamikilli skurðdeild? Öll sú kunnátta og reynsla sem er meðal lækna, hjúkrunar fræð - inga og annars starfsfólks á skurð- og svæfingadeild St. Jósefs spítala er dýrmæt. Það er kennt í allri stjórnun að það kosti 9-12 mánaða laun að þjálfa nýjan starfsmann. Á skurðdeildinni er mikil starf semi sem öll er unnin á dagvinnutíma. Það eru mikil afköst á þessari deild, einnig er óhætt að fullyrða að á þessari stofnun eru framkvæmdar ákveðn ar aðgerðir fyrir minni kostnað en á öðrum stofnunum, sem má rekja til eftirfarandi aðstæðna: • Lítil yfirbygging • Stuttar boðleiðir innanhúss sem skilar sér í auknum afköstum • Mikil reynsla, samhæfing og metnaður fagfólks sem skilar sér í auknum afköstum og betri árangri á aðgerðum. • Mikil og náin samvinna sérþjálfaðs starfsfólks leiðir til færri mistaka. • Mikil kostnaðarvitund meðal starfsmanna, betri nýting á aðföngum og tækjum stofnunarinnar. Á skurð- og svæfingadeild starfa 24 sérfræðingar sem allir eru framarlega í sinni sérgrein. Hjá okkur eru gerðar aðgerðir á sjúklingum sem ekki þarfnast gjörgæslu eftir aðgerðir. Taflan neðst sýnir þær sér - greinar og þann fjölda aðgerða sem framkvæmdar hafa verið síðastliðin 2 ár. Ef af þesssari ákvörð un verður er það aðför að hags - mun um kvenna. Hvar á að framkvæma þann fjölda aðgerða sem fram kvæmdar eru í kvensjúkdómum á St. Jósefsspítala? Í dag er biðlistinn eftir aðgerð hjá kvensjúk dóma - læknum um 400 konur. Á St. Jósefsspítala hefur verið starfrækt öflugt grindarbotns - teymi síðastliðin 13 ár. 70% kvenna á aldrinum 25 til 65 ára hafa vandamál í grindarbotni. Með aldrinum slaknar á band - vef um líkamans, vandamál koma upp við þvagleka, hægðar - losun og samlíf. Hlutverk teym - isins er að ákveða meðferð á því vandamáli sem viðkomandi ein - staklingur hefur í grindarbotni. Í teyminu eru 2 kvensjúk dóma - læknar, meltingalæknar og ristil- og endaþarmsskurðlæknar. Það starfa 4 kvenskurðlæknar á skurð deildinni með mikla fag - lega reynslu og mikinn metnað fyrir hönd stofnunarinnar. Mikil ánægja og aukin lífs - gæði er meðal þeirra sjúklinga sem fá þessa þjónustu. Þetta er eðlilega hópur sem ekki kemur fram og tjáir sig um árangur aðgerðar. Reynslan hefur verið sú að vandamál tengd grindarbotni eru bæði feimnismál hjá viðkomandi einstaklingum og skerða veru - lega lífsgæði þeirra. Fjölgun aðgerða án yfirvinnu Árið 2008 voru gerðar 877 aðgerðir vegna skýs á augasteini, árið 2007 610 aðgerðir. Við þessa aukningu var aldrei unnin yfirvinna, einungis mark - vissara skipulag á starfsseminni sem má heimfæra á mikla starfsreynslu og fagmennsku þeirra sem koma að þessum aðgerðum. Einnig eru gerðar gláku að - gerðir og aðgerðir vegna augn - skekkju. Augnaðgerðir hafa ver - ið gerðar í 20 ár á stofnuninni fyrir mun minni kostanað en samskonar aðgerð á Lands - spítala. Í ágúst 2007 kom beiðni frá Heilbrigðisráðuneytinu um að vinna á biðlista vegna tann við - gerða barna í svæfingu. Stofn - unin tók þessari beiðni mjög vel og vann hratt að undir búningi þess ara aðgerða. Síðan er búið að framkvæma 128 tann við - gerðir í svæfingu. Ég leyfi mér að efast um að þessi fram kvæmd hafi fengið slíka af greiðslu á mörgum stofnunum. Öll aðstaða er til að gera að - gerðir vegna mjaðmar- og hnjáliðaskipta. Þar má minnka biðlista verulega. Umönnun og eftirfylgni skjól - stæðinga okkar á hand lækninga - deild eftir aðgerðir hefur verið mjög rómuð af öllum sem þar hafa notið þjónustu. Hagstæð og afkastamikil eining St. Jósefsspítali er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, þetta er góð stærð á sjúkrahúsi til rekst - urs, einnig til að ná sem bestri teng ingu við skjólstæðinga okkar og til starfsfólks. Það kostar að framkvæma þess ar aðgerðir sem við gerum árlega. Er það hugmyndin að spara á einum stað og eyða því á öðrum stað og þar með rústa þessari einingu og þeirri fram - leiðni sem er á skurðdeild St. Jósefsspítala? Eða á ekki að framkvæma þessar aðgerðir? Á að flytja þessa reynslu eitthvað annað án þess að hafa starfsfólk með í undirbúningi eða miðla upplýsingum til okkar, mikil leynd hefur hvílt yfir þessu öllu. Af hverju eru niðurstöður ekki kynntar? Hver er niðurstaða svo kallaðr - ar Guðjónsnefndar, sem sett var á stofn til að fara yfir störf Kragasjúkrahúsa, hvernig kom St. Jósefsspítali út úr þeirri vinnu? Getur heilbrigðis ráð herra ekki staðið frammi fyrir ákvörðun sinni og haldið fund með ráðamönnum og starfs - mönnum? Hver er hagræðingin? Óstaðfestur orðrómur er að til standi að flytja starfsemi skurð - deildar til Keflavíkur. Eigum við að gjalda fyrir þau mistök sem gerð voru þegar 2 nýjar skurð - stofur voru byggðar í Keflavík? Þar er húsnæðið en vantar sjúkl - inga og sérhæft starfsfólk. Hver er sparnaðurinn við að rústa starfsemi afkastamikillar skurðdeildar, sem staðsett er á höfuðborgarsvæðinu, þar sem mikill meirihluti sjúklinga, aðstandenda og starfsfólks býr, og flytja til Keflavíkur? Hvað segja Hafnfirðingar um þá ákvörðun að skerða verulega starfsemi spítalans sem hefur verið í hjarta Hafnarfjaðar í 82 ár. Spítalinn var reistur af St. Jósefssystrum, sem skiluðu gríðarlega óeigingjörnu starfi, Hafnfirðingum og öðrum lands - mönnum til heilla áratugum saman. Vilja bæjarbúar að þessi starfsemi hverfi úr bænum? Hvar eru ráðherrar og þingmenn sem Hafnfirðingar eiga? Höfundur er deildarstjóri skurð deildar St. Jósefsspítala Sólvangs Sundæfingar vor 2008 styrkir barna- og unglingastarf SH Sundæfingar fyrir 6 ára og eldri eru hafnar á vorönn, en við getum bætt við nýjum sundmönnum (á öllum aldri) í flest alla hópa. Námskeið fyrir 5 ára byrja 14. janúar (f. 2003) Námskeið 1 er á miðvikudögum og föstudögum kl. 18.20 í Suðurbæjarlaug. Námskeið 2 er á mánudögum og fimmtudögum kl. 18.20 í Suðurbæjarlaug. Námskeið fyrir 4 ára byrja 14 janúar (f. 2004) Námskeið 3 er á miðvikudögum kl. 19 í Suðurbæjarlaug. Námskeið 4 er á föstudögum kl. 19 í Suðurbæjarlaug. Sundknattleikur Æfingar eru í Ásvallalaug á mánudögum og miðvikudögum kl. 20 Allar frekari upplýsingar og skráning er á skrifstofu SH í Ásvallalaug, sími 555 6830. Sundfélag Hafnarfjarðrar • www.sh.is • Ásvöllum 2 • sími 555 6830 Hvað er Heilbrigðisráðherra að hugsa? Sérgreinar eru : Fjöldi aðgerða 2007 Árið 2008 Almennar skurðlækningar 227 198 Augnlækningar 791 1013 Bæklunarlækningar 539 549 Háls nef og eyrnalækningar 410 428 Kvenlækningar 1211 1289 Lýtalækningar 253 258 Tannlækningar 33 97 Ragnhildur Jóhannsdóttir L j ó s m . : G u ð n i G í s l a s o n

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.