Fjarðarpósturinn - 02.04.2009, Síða 3
Ísaga hefur opnað afgreiðslu
á gasi við Grandatröð. Þar
hefur fyrirtækið verið með
hylkjaviðhald en á 5-10 ára
fresti eru gashylkin sandblásin,
prófuð og máluð. Að sögn
Þórðar Þorbergssonar, sölu -
manns hefur fyrirtækjum í
málmiðnaði fjölgað mikið í
bænum og ætti það að vera
fagnaðarefni að þurfa ekki til
Reykjavíkur eftir gasi en um 17
gastegundir eru í boði.
Auk gass til iðnaðar selur
Ísaga própangas fyrir heimili
og ferðalögin.
Aukin gasþjónusta í bænum
Málmiðnaður og vélaverkstæði blómstra í Hafnarfirði
Ásgeir Magnússon og Þórður Þorbergsson starfsmenn Ísaga.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 2. apríl 2009
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNARFJARÐAR
SÍMI 565 9775 - ALLAN SÓLARHRINGINN - UTH.IS
Frímann Andrésson
útfararstjóri
hÁLFDÁN hÁLFDÁNARSON
útfararstjóri
Fríkirkjan
Pálmasunnudagur
Fermingarguðsþjónustur
kl. 11 og 13
Sunnudagaskólinn
fellur niður vegna ferminga.
Verið velkomin
í Fríkirkjuna!
www.frikirkja.is
Auglýsing í Fjarðarpóstinum borgar sig!
Auglýsingasíminn er 565 3066 auglysingar@fjardarposturinn.is
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Sl. laugardag hélt Æsku lýðs -
deild Sörla í fyrsta sinn keppni
í Smala fyrir börn, unglinga og
ungmenni. Mjög góð þátttaka
var í Smalanum. Ungt fólk á
öllum aldri tók þátt. Reynsla
knapana í hestamennsku, var
frá örfáum mánuðum upp í
margra ára reynslu. Ýmis
ógleym an leg tilþrif sáust á
keppnis vellinum öllum til mik -
illa skemmtunar. Það var ekki
annað að sjá og heyra að
knöpum, áhorfendum og síðast
en ekki síst hestunum hafi
fundist virkilega gaman af að
taka þátt í Smala.
Smalinn er spennandi og
skemmtileg keppnisgrein fyrir
alla hestamenn. Ekki er gert
kröfur um hreinleika gang teg -
unda eða stillingu. Greinin ger -
ir miklar kröfur til, fimi og
hraða og skyn hestsins fyrir
ábend ingum. Þau eru einmitt
þau atriði sem mikilvægust eru
í smalamennsku og því hefur
þessi keppnisgrein hlotið nafn
sitt Smali.
Í Smala er riðin skilgreind
braut, þ.s. annars vegar hún er
afmörkuð með ýmsum gerðum
af hliðum, sem reyna á stjórnun
og fimi. Keilur afmarka hliðin
og geta þær dottið ef ekki er
farið vel og vandlega í gegnum
þau. Hins vegar er brautin opn -
ari þar sem hægt er að ríða mjög
hratt, jafnvel hleypa á stökk.
Ræðst árangur knapans af
brautartíma og felldum keil um.
Það sem er gerir Smalann ein
af skemmtilegustu keppnis -
grein í hestamennskunni er að
allir geta tekið þátt. Það þarf
aðeins að redda sér einhverjum
hesti og tolla á baki. Brautin er
hins vegar þannig byggð upp
að árangur er háður getu og
þjálfunarstigi hests og knapa.
Í flokki polla og barna sigraði
Brynja Kristinsdóttir á Fiðlu,
Ágúst Inig Ágústsson á Erta
varð annar og Kristín Helga á
Sól þriðja. Í flokki unglinga og
ungmenna sigraði Ásta
Björnsdóttir á Ísaki, Sga
Mellbin á Ási varð önnur og
Hanna Rún Ingibergsdóttir á
Lendu þriðja.
„Smali“ ný skemmtileg keppni
Einn hinn ungu keppenda í brautinni.
L
jó
s
m
.:
S
ig
rí
ð
u
r
T
h
.
E
ir
ík
s
d
ó
tt
ir