Fjarðarpósturinn - 16.04.2009, Page 2
Hver á að leysa vandamál þjóðarinnar?
Kosn ingarnar framundan setja fólk í aðra stöðu
en í fyrri kosningum. Nú er stór vandi að leysa,
fjármagnið er mjög takmarkað og enginn trúir
þegar stjórmálamenn lofa upp í ermarnar á sér.
Nú er tími úrlausna. Hverjir geta raðað saman
púsluspilinu þannig að rétt mynd fáist. Þegar
fjölskyldan raðar saman púsluspili reynir hver
og einn að finna lausn sem passar við
heildarmyndina. Það þýðir lítið að horfa á og segja eftir á að ég hefði
gert þetta öðruvísi. Það þýðir lítið að vera með yfirlýsingar, aðeins
bein hjálp og samvinna kemur að gagni. Þetta mættu stjórnmála -
menn læra. Kannski er það vegna samstarfsleysis sem peningaöflin
náðu yfirvöldum og enginn sá hættuna. Það þýðir lítið að kalla úlfur,
úlfur. Aðeins má vara við aðsteðjandi raunverulegri hættu. Það þýðir
lítið að segja eftir á, ég kallaði úlfur, úlfur. Framundan er tími sam -
starfs, samstarf stjórnmálaflokkanna og samstarf stjórn mála manna
og „sérfræðinga“ af hvaða tagi sem er. Ég trúi ekki á patentlausnir
frekar en skyndigróða. Ég sé engan einn eða engan einn flokk sem
ræður við að leysa vanda þjóðarinnar. Ég hef ekkert meiri trú á nýju
fólki heldur en reyndu og þeim sem hafa „lent“ í vitleysunni. Þeir
reyndu hafa reynslu sem má nýta og þeir nýju hafa kraftinn sem má
virkja. Þjóðin þarf að finna sameiginlega leið að lausn vandamála
okkar. Unga fólkið þarf að geta haldið húsnæði sínu, ekki aðeins
með því að lengja í hengingarólinni. Unga fólkið, jafnt sem aðrir
þarf að sjá sólina framundan. Það þarf að kortleggja vandann en
ástæðulaust er að mála skrattann á vegginn og drepa alla von. Þjóðin
hefur lifað miklu erfiðari þrengingar. Stundum hefur hún misst
mikið en alltaf horft fram á veginn og leyst málin. Það getur hún.
Við þurfum stjórnmálamenn í forystu sem þora að vinna með fólki
í öðrum flokkum, þora að vinna þvert á alla hagsmunahópa. Nú er
tækifæri fyrir alvöru leiðtogahæfileika.
Guðni Gíslason.
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 16. apríl 2009
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Sunnudaginn 19. apríl, 1. sd. e. páska
Fermingarmessa kl. 10.30
Prestar: Sr. Kjartan Jónsson og sr. Gunnþór Þ. Ingason
Kantor: Guðmundur Sigurðsson.
Kór: Barbörukórinn í Hafnarfirði.
Sunnudagaskóli á sama tími í Strandbergi
Kyrrðarstund með kristinni íhugun
þriðjudaga kl. 17.30
í umsjá Sigríðar Hrannar Sigurðardóttur.
TÖLVUHJÁLPIN
Tek að mér vírushreinsanir,
viðgerðir, uppfærslur og
uppsetningar á PC tölvum
Mæti í heimahús
Sanngjarnt verð
Sími 849-6827
Hnýtingarkvöld
Í kvöld, 16. apríl, kl. 20 verður síð -
asta Opna hús vorsins hjá Stanga -
veiði félagi Hafnarfjarðar. Það er
hnýt ingar kvöld og eru félagar hvattir
til að mæta með hnýtingartólin.
Stofnun félags frístundamálara
Undirbúningsnefnd að stofnun félags
frístundamálara hefur nú lokið
störfum og boðar til formlegs
stofnfundar í kvöld, fimmtudags -
kvöld á Kaffi Reykjavík kl. 20. Allir
þeir sem fást við að mála eru
velkomnir.
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik -
mynda safnið The Untouchables
(1987) í leikstjórn Brian De Palma.
Á þriðjudaginn kl. 20 sýnir Kvik -
mynda safnið When a Woman As -
cends the Stairs (1960) eftir
japanska kvikmyndagerðarmanninn
Mikio Naruse. Keiko starfar sem
barmær eða nokkurs konar geisha
en er að verða full gömul fyrir starfið.
Hún verður því annað hvort að
giftast eða opna eigin bar.
Húsmæðraorlof
Húsmæðraorlof Hafnarfjarðar til -
kynn ir að enn eru nokkur sæti laus í
Suðurlandsferðina sem farin verður
dagana 25.-29. maí. Nánari upp -
lýsingar gefur Kristín s. 555 3129.
Þrastartónleikar
Karlakórinn Þrestir, ásamt Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur verður með vortón -
leika í Víðastaðakirkju á sunnu -
daginn kl. 16 og í Hafnarborg 22.
apríl kl. 20. Að auki verða tónleikar í
Grafar vogskirkju á laugardag kl. 16
og Neskirkju 23. apríl kl. 16.
Undirleikari er Jónas Þórir og
stjórnandi er Jón Kristinn Cortez.
Víðistaðakirkja
sunnudagurinn 19. apríl
Fermingarguðsþjónusta kl. 10.30
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur.
Prestur: Bragi J. Ingibergsson.
Barnaguðsþjónusta kl. 11
Fer fram í loftsal kirkjunnar.
Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna.
www.vidistadakirkja.is
LOFTNETS OG SÍMAÞJÓNUSTA
Viðgerðir og uppsetningar á
loftnetum, diskum, heimabíóum,
flatskjám. Síma- og tölvulagnir
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Erla leikur á
horn á fram -
haldsprófs -
tónleikum
Leikur eigin tónsmíð
Á laugardaginn kl. 20 verða
tónleikar í Tónkvísl, Hall steins -
sal (gamla íþróttahúsinu við
Lækjarskóla). Erla Axelsdóttir
leikur á horn verk eftir W.A.
Mozart, L. van Beethoven, F.
Strauss, P. Dukas og eigin
tónsmíð.
Meðleikari hennar á píanó
verður Ástríður Alda Sigurðar -
dóttir ásamt strengjakvartett og
blásarakvintett. Kennari hennar
er Emil Friðfinnsson.
Tónleikar Erlu eru hluti af
framhaldsprófi hennar frá Tón -
listarskóla Hafnarfjarðar.
Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
SAUMAKONA
í Hafnarfirði
- földun - rennilásar - gardínur
- hvers kyns saumaskapur
GOTT VERÐ
Reykjavíkurvegi 22
á bak við Sjónarhól
Opið kl. 17 til 21
mánud. og miðvikud. kl. 17-19
Sími 867 2273
TRÖNUHRAUNI 10 - SÍMI 565 3232
www.fjardarbon.is - fjardarbon@fjardarbon.is
Er Fjarðarpósturinn besti auglýsingamiðillinn fyrir Hafnarfjörð?
Hafnfirðingar lesa sitt blað og þar ná auglýsingar til lesendanna.
Þurfir þú að ná til Hafnfirðinga – Hafðu þá samband!
w w w . f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
auglýsingasími:
565 3066
auglysingar@fjardarposturinn.is