Fjarðarpósturinn - 16.04.2009, Side 3
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 16. apríl 2009
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNARFJARÐAR
SÍMI 565 9775 - ALLAN SÓLARHRINGINN - UTH.IS
Frímann Andrésson
útfararstjóri
hÁLFDÁN hÁLFDÁNARSON
útfararstjóri
Kl.10:00-20:00 Straumur
Í Goðafræðamiðstöð Víkingahrings-
ins í Straumi er Haukur Halldórsson
myndlistamaður að vinna risastórar
veggmyndir úr Goðafræðinni. Víkinga-
hringurinn hefur gefið út nokkrar bækur
um goðafræði og galdra og eru þær til
sölu á staðnum auk listrænna minja-
gripa og listaverka. Umhverfi Straums
er fagurt og eru gestir hvattir til þess að
fara í gönguferð um nágrennið, fjöruna
og hraunið og endilega að taka með
sér nesti og njóta þess í salarkynnum
Straums.
Kl. 10:30 Gönguferð á Helgafell með
Ferðafélagi Íslands
Skemmtileg fjölskylduganga á þetta
fallega fjall með fróðleik um jarðfræði
og sögu.
Brottför frá Mörkinni 6 kl. 10. Einkabílar.
Lagt af stað frá Kaldárseli kl. 10:30.
Þátttaka ókeypis, allir velkomnir.
Kl.11:00-17:00 Byggðasafn Hafnarfjarðar
– Frítt í söfnin í Hafnarfirði!
Opið í fimm húsum safnsins. Pakkhúsinu,
Sívertsenshúsinu, Beggubúð, Siggubær
og Bungalóinu. Leiðsögn um sýningar
í eftirtöldum húsum: Pakkhúsinu og
Beggubúð kl. 14:30, í Sívertsenshúsinu
kl.15:30 og í Bungalóinu kl. 16:00
KL.11:00-17:00 Hafnarborg
– Frítt í söfnin í Hafnarfirði!
Guðrún Kristjánsdóttir sýnir málverk,
ljósmyndir og myndbandsverk auk þess
sem umfangsmikil innsetning sem fæst
við síbreytileg form og kvika náttúru
Íslands ásamt áhrifum veðurs á land og
menn verður til sýnis.
Kl.13:00 og 14:00 Álfagönguferðir
Sigurbjörg Karlsdóttir verður með
tvær álfagönguferðir. Farið verður frá
Byggðasafninu í Hafnarfirði kl. 13 og
aftur kl. 14. Hver ferð tekur um 45
mínútur. Verð 500 krónur fyrir fullorðna
en ókeypis fyrir börn í fylgd með full-
orðnum.
Kl.14:00-17:00 Hótel Hafnarfjörður
Opið hús frá 14 -17. Heitt á könnunni
fyrir gesti og gangandi. Kíktu við og líttu
á þetta glæsilega hótel á besta stað.
Kl. 15:00-18:00 Fjörukráin og Hótel
Víking
Hægt verður að kynna sér þetta
skemmtilega þemaveitingahús og hótel
þar sem víkingar ráða ríkjum. Tilboðs-
verð á veitingum m.a. kaffi og kleina á
400 krónur.
Kl. 16:00 Hvernig ferðuðust Íslendingar
fyrir tíma bílsins?
Kynnist þarfasta þjóninum hjá Íshestum,
komið með í klukkutíma hestaferð.
Verð 2000 krónur á mann. Léttar
veitingar til sölu.
G
ra
fí
sk
a
V
in
n
u
st
o
fa
n
-
5
5
2
0
7
0
0
– Hátíð ferðaþjónustunnar í Hafnarfirði
S K E M M T I L E G D A G S K R Á F Y R I R A L L A F J Ö L S K Y L D U N A
1 8 . A P R Í L 2 0 0 9
Fríkirkjan
Sunnudagurinn 19. apríl:
Sunnudagaskóli kl. 11
Fermingarguðsþjónusta kl. 13
Verið velkomin
í Fríkirkjuna!
www.frikirkja.is
Íslendingar fengu 6 gull, 5
silfur og 8 brons á Norður -
landa mótinu í skylmingum
með höggsverði, sem fram fór í
Örebro í Svíðþjóð um páskana.
Hilmar Örn Jónsson úr FH
sigraði í flokki U15 og Viktor
Ingi Guðmundsson úr FH
varð þriðji. Þórdís Ylfa
Viðarsdóttir úr FH sigraði í
flokki U15 stelpna en hún
sigraði félaga sinn úr FH Aldísi
Eddu Ingvars dóttur í úrslit -
um. Gunnar Egill Ágústsson
úr FH sigraði í U18, stráka en
hann varð annar í U21, karla.
Ragnheiður Guðjónsdóttir úr
FH sigraði í U21, kvenna og
Guðjón Ingi Gestsson úr FH,
faðir Ragnheiðar endurheimti
Norður landa meist aratitil sinn í
garpaflokki (40+). Ragnar Ingi
Sigurðsson keppti ekki að
þessu sinni og var í hlutverki
landsliðsþjálfara.
Alls fengu FH-ingar 5 gull, 3
silfur og 4 brons.
Sigursælt skylmingafólk
FH átti 5 af 6 gullum Íslending á NM í skylmingum
Íslenski keppnishópurinn.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
í SV - kjördæmi verða í félagsheimili
flokksins í Hafnarfirði að Norðurbakka 1a,
laugardaginn 18. apríl kl. 14 - 15.30
og ræða við gesti yfir kaffibolla og meðlæti.
Allir velkomnir.
Stjórnir Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði
Frambjóðendur í Hafnarfirði