Fjarðarpósturinn - 09.07.2009, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 9. júlí 2009
Deilur sem sprottnar eru upp á milli
Grindavíkur og Reykjanesbæjar skipta okkur
Hafnfirðinga kannski ekki neinu máli. Við
erum jú búin að selja hlut okkar í HS orku og
veitum en hver veit nema við eignumst hlut í
OR sem aftur á hlut í HS? Þarna enduróma í
fjöllunum græðgi og pólitísk misnotkun á
valdi og fær mann til að hugas um það hvað
gerist þegar sveitarfélög sameinast. Verður þá
einn hópurinn kúgaður til hagsbóta fyrir annan? Þó við höfum átt
í leiðindum við Grindjána vegna grasbíta í Krýsuvík þá get ég ekki
annað en haft samúð með þeim. Þar hefur allt verið upp í loft í
pólitíkinni og ekki skrýtið að menn nái ekki að vara sig á Árnanum
í Reykjanesbæ. Þarna er enn eina ferðina verið að einkavæða og
það er svo skrýtið að það var að undirlagi íslenska ríkisins sem HS
fyrirtækin geta verið að komast í erlenda eigu. Ríkið gat ekki unnt
sveitarfélögunum að kaupa hlut ríkisins, græðgin var of mikil.
Ekki svo að skilja að sveitarfélögin hefðu ekki selt hæstbjóðenda!
þau voru jú búin að selja skólana sína sum.
Nú er bæjarstjórnin komin í langt, langt sumarfrí. Eins langt og
samþykktir Hafnarfjarðar leyfa. Þá starfar bæjarráð og lífið verður
léttara á meðan ekki er útvarpað og sjónvarpað frá fundunum.Við
eigum eftir að sjá hvar niðurskurðarsveðjan sveiflast og eins gott
að verða ekki fyrir. Vonandi getum við ræktað grænmeti í
garðinum og loks er hætt að dæla skolpi í höfnina svo við getum
veitt okkur til matar eins og fleiri. Það þarf að herða sultarólina í
sameiginlega kerfinu á sama tíma og við horfum upp á það að
tugir Kínverja eru fluttir inn til að setja klæðningu á tónlistar- og
ráðstefnuhús! Það er ekki heil brú í hugsun mannanna.
Við þurfum að hugsa jákvætt til framtíðarinnar, hugsa í mögu -
leikum - hvaða möguleika getum við skapað okkur með jákvæðri
hugsun og framsýni. Gjaldeyrissparnaður er gríðarlega nauðyn -
legur og við þurfum að hugsa til allra mögulegra leiða til að
komast hjá og minnka innkaup erlendis frá. Þar er af miklu að taka
enda erum við háð innflutningi og takmarkað er hversu mikill
viðsnúningurinn getur orðið. En við getum sjálf stuðlað að
sparnaði. Spörum og kaupum íslenskt!
Guðni Gíslason.
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNARFJARÐAR
SÍMI 565 9775 - ALLAN SÓLARHRINGINN - UTH.IS
Frímann Andrésson
útfararstjóri
hÁLFDÁN hÁLFDÁNARSON
útfararstjóri
LOFTNETS OG SÍMAÞJÓNUSTA
Viðgerðir og uppsetningar á
loftnetum, diskum, heimabíóum,
flatskjám. Síma- og tölvulagnir
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
SAUMAKONA
í Hafnarfirði
- földun - rennilásar - gardínur
- hvers kyns saumaskapur
GOTT VERÐ
Reykjavíkurvegi 22
á bak við Sjónarhól
Opið kl. 17 til 21
miðvikudagar lokað
Sími 867 2273
TÖLVUHJÁLPIN
Tek að mér vírushreinsanir,
viðgerðir, uppfærslur og
uppsetningar á PC tölvum
Mæti í heimahús
Sanngjarnt verð
Sími 849-6827
Myndlistasýning á Hrafnistu
Edda Guðmundsdóttir sýnir málverk
í Menningarsalnum á Hrafnistu í
Hafnarfirði. Sýningin verður opnuð í
dag kl. 14 og stendur til 31. ágúst.
Edda er fædd á Laugarvatni 1937
Þetta er þriðja einkasýning hennar,
auk þess hefur hún sýnt á mörgum
samsýningum.
Safnarar í Hafnarborg
Sýningin Safn(arar) er haldin í tilefni
þessa að 100 ár eru liðin frá fæðingu
Sverris Magnússonar sem lagði
grunninn að Hafnarborg. Sýningin er
mjög fjölbreytt og allir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi. Sýning stendur
til 3. ágúst.
www.babyshop.is
Selur flottu
einkanúmerin á
vagninn og hjólið
Hafnarfjarðarbær hefur gefið
út göngukort á heimsíðu sinni,
www.hafnarfjordur.is sem fólk
getur prentað út og notað. Búið
er að merkja inn þrjár áhuga -
verðar gönguleiðir 6,5 - 8,4 km
langar en kortið má að sjálf -
sögðu nota við aðrar leiðir enda
eru slóðar merktir inn á kortið.
Göngukort á vefnum
Hægt að prenta út og nota í gönguferðum
Þann 1. júlí sl. voru 40 ár
liðin síðan álframleiðsla hófst á
Íslandi er kveikt var á fyrsta
kerinu í álverinu í Straumsvík.
Á afmælisdaginn voru hlið
álversins opnuð fyrir gestum og
var starfsemin kynnt og boðið
upp á veitingar. Tæki og tól
voru til sýnis og starfsmenn
sýndu listir sínar á sumum
þeirra með misjöfnum árangri.
Gríðarlega fjölmennt var
enda hafði athöfn in verið kynnt
vel og rútur voru frá Tjarnar -
völlum.
Gestkvæmt í Straumsvík
Álversfólk tók vel á móti fólki á 40 ára álframleiðsluafmæli í Straumsvík
Fjölmargt var til skemmtunar fyrir unga og aldna.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Gamli og nýi tíminn
Í blíðviðrinu í Miðbænum
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n