Fjarðarpósturinn - 09.07.2009, Side 3
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 9. júlí 2009
www.nagrannavarsla.is
Bæjarhraun 6 • 220 Hafnarfjörður • Sími 520-8003 • www.stilling.is
Kúplingar
Sendibílaþjónusta í 25 ár!
Benni Ben. • 893 2190
Sumarsund
fyrir hressa krakka, og foreldra
Sumarsundskóli Sundfélags Hafnarfjarðar í Ásvallalaug
Sundfélag Hafnarfjarðrar • www.sh.is • Ásvöllum 2 • sími 555 6830
Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 5-14 ára
og standa yfir í tvær vikur eða 10 skipti.
Einnig verða námskeið fyrir 3-4 ára með foreldrum.
Aðalkennari er Örn Arnarson.
Næstu námskeið:
13. júlí - 24. júlí
Allar upplýsingar um námskeiðin og innritun má finna á heimasíðu SH www.sh.is
Nú eru síðustu tækifæri til að skrá.
Allt er að verða fullt!
styrkir barna- og unglingastarf SH
ÍR sigraði í heildar stiga -
keppni Meistarmóts Íslands í
frjálsum íþróttum sem haldið
var á Kópavogsvelli um helg -
ina. Hlaut liðið 40.207 stig og
þar með titilinn Íslands meistari
félagsliða í frjál síþróttum. FH
varð í 2. sæti með 38.163 stig,
en þessi lið höfðu talsverða
yfirburði. Næsta lið, Breiðablik
var með 17.610 stig.
FH hlaut langflest stig í
karlaflokki, 30.239. ÍR í 2. sæti
með 17.606 stig og í 3. sæti var
Breiðablik með 7.546 stig.
Í kvennaflokki hlaut ÍR flest
stig eða 22.601. Í öðru sæti var
Ármann með 12.282 stig og í
þriðja sæti varð Breiðablik með
10.064 stig. FH endaði í 6. sæti
með 7.924 stig.
Á síðasta ári sigraði FH
heildarkeppnina og hlaut þá
46.772 stig en ÍR 27.483 í öðru
sæti.
Besti árangur mótsins
Þeir Bergur Ingi Pétursson og
Óðinn Björn Þorsteinsson báðir
úr FH náðu besta árangri
mótsins hjá körlum og voru
jafnir með 1.018 stig. Bergur
þeytti sleggjunni 69,78 m og
Óðinn varpaði kúlunni 18,30 m.
Jóhanna Ingadóttir úr ÍR
vann besta árangur mótsins í
kvennaflokki í langstökki með
6,17 m. Sá árangur gefur 1.024
stig, skv. stigatöflu IAAF.
FH Íslandsmeistari félagsliða karla
ÍR náði titlinum af FH í samanlögðu á Meistaramóti Íslands í frjálsum
Karlalið FH sigraði með miklum yfirburðum.
Aðeins sóttu þrír prestar um
stöðu sóknarprests Hafnar -
fjarðarkirkju, núverandi prestur
við kirkjuna, sr. Þórhallur
Heim isson, sr. Þórhildur Ólafs,
fv. prestur við Hafnar fjarðar -
kirkju og eiginkona sr. Gunn -
þór sem nú hefur látið af störf -
um og sr. Sigurður Arnar son,
sem verið hefur sendiráðs prest -
ur í Bretlandi. Tíu manna val -
nefnd úr prestakallinu ásamt
prófasti Kjalarnessprófastdæmi
völdu sr. Þórhall Heimisson en
Sigurður Arnarson hafði dregið
um sókn sína til baka. Lagði
nefnd in tillögu sína fyrir biskup
sem skipar í stöðuna til fimm
ára frá 1. júlí sl.
Ljóst er því að auglýsa þarf
nú stöðu prests við kirkjuna,
arftaka Þórhalls og þá er búist
við mun fleiri umsóknum. Hefð
hefur myndast fyrir því að
sækja ekki gegn sitjandi presti
eða presti sem færir sig til innan
eigin kirkju og skýrir það
hversu fáir sóttu um. Engin slík
hefð hindrar umsóknir um
stöðu prests sem nú hefur
losnað.
Sr. Þórhallur ráðinn
sóknarprestur
Hans staða við Hafnarfjarðarkirkju auglýst
Sr. Þórhallur Heimisson
Bergur Ingi kastar sleggju. Óðinn Björn kastar kúlu.
L
j
ó
s
m
.
:
M
a
g
n
ú
s
H
a
r
a
l
d
s
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
M
a
g
n
ú
s
H
a
r
a
l
d
s
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
M
a
g
n
ú
s
H
a
r
a
l
d
s
s
o
n
Gert við
Sundhöllina
Unnið er að löngu tíma bær -
um lagfæringum utanhúss á
Sundhöll Hafnarfjarðar, Laug -
inni eins og hún var alltaf köll -
uð. Mun hún vonandi skarta
sínu fegursta í lok sumars enda
nýtur sundhöllin enn vinsælda.
Hún er með góðu sólbaðssvæði
og mjög stórum heitum pottum.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n