Fjarðarpósturinn - 09.07.2009, Side 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 9. júlí 2009
LAUS STÖRF HJÁ
HAFNARFJARÐARBÆ
Hjá Hafnarfjarðarbæ eru laus störf
sem gætu hentað þér.
Upplýsingar um störfin má finna á heimasíðu
bæjarins www.hafnarfjordur.is undir Laus störf
Silfurreynir – Sorbus inter -
media á Merkurgötu 7 er tré
júnímánaðar en það er Fjarðar -
pósturinn og Hafnarfjarðarbær
sem útnefna í sumar tré hvers
mánaðar að fengnum tillögum
frá bæjarbúum.
Tréð var fengið hjá Ingvari
Gunnarssyni, fyrsta formanni
Skóg ræktarfélags Hafnar fjarð -
ar, árið 1931. Þetta er glæsilegt
tré sem stendur bakvið húsið að
Merkurgötu 7. Silfurreynir er
algengur í eldri hverfum bæjar -
ins og mörg tré falleg. Erfitt var
að velja úr en þessi silfurreynir
er sérlega fallegur, fagurskap -
aður, tignarlegur og endur -
varpar lífi og fegurð á nær um -
hverfi sitt.
Silfurreynir er harðgerður,
hávaxinn með umfangsmikla
krónu. Hann hefur náð allt að
12 m hæð hér á landi og fer best
ef hann stendur stakur, enda
þarf mikið rými. Silfurreynir er
talinn þola loft mengun í borg -
um betur en flest ar aðrar trjá -
tegundir og get ur orðið 200 ára
gamall. Hann blómstr ar bein -
hvítum hvítum blóm í júní og
fær rauðappel sínugul ber að
hausti. Rauðir og gulir haust -
litir. Helstu veikleikar trésins
eru haustkal á ungum plöntum
og trjámaðkur.
Hægt er að tilnefna tré
júlímánaðar með tölvupósti á
berglindg@hafnarfjordur.is eða
með símtali í 585 5500.
Silfurreynir tré júnímánaðar
Bæjarbúar geta tilnefnt tré
Guðni Gíslason, ritstjóri Fjarðarpóstsins og Guðfinna Guð -
mundsdóttir bæjarfulltrúi ásamt eigendum trésins, Ragnari
Árnasyni og Ingu Dóru Jónsdóttur við silfurreyninn.
Ásvallalaug, Ásvöllum 2, Hafnarfirði • www.asmegin.net
Hef hafið störf hjá Ásmegin, sjúkraþjálfun
Tímabókun í síma
555 66 44
Haraldur Björn Sigurðsson
Fyrir skömmu héldu undan -
farar frá Björgunar sveit inni
Súlum Akureyri og Björg unar -
sveit Hafnarfjarðar æfingu við
Gullfoss.
Æfingin fólst í því að brúa
Hvítárgil við Gullfoss og koma
mönnum yfir gilið. Einnig var
markmiðið að koma mönnum á
eyjuna sem er í neðra þrepi
foss ins. Æfingin gekk að
óskum og fóru sex félagar yfir
fossinn og fjórir niður á eyjuna.
Verkefnið sem tók 9 tíma
leystu níu undanfarar frá
Hafnarfirði og sjö frá Akureyri
og leystu það vel af hendi.
Aðstæður voru frábærar en
mikið flugnager sem gerði
mönnum lífið leitt.
Æfing sem þessi gerir björg -
unarsveitarmönnum kleift að
takast á við erfið verkefni þar
sem krafist er áræðni, þekk -
ingar og mikillar reynslu.
Á köðlum yfir
Gullfoss
Áræðnir björgunarsveitarmenn yfir Gullfossi.
L
jó
s
m
.:
F
in
n
b
o
g
i
J
ó
n
a
s
s
o
n
L
jó
s
m
.:
F
in
n
b
o
g
i
J
ó
n
a
s
s
o
n
Línan er grönn og leiðin löng
og óárennileg.
Í þjónustuveri Hafnarfjarðar,
Strandgötu 6, stendur fjöl -
skyldum til boða að koma og ná
sér í Perlur Hafnarfjarðar,
skemmtilegan spurningaleik
sem leiðir fjölskylduna um
áhugaverða staði í Hafnarfirði.
Einnig er þar að finna fjöl -
breyttar hugmyndir að útiveru
ásamt kynningu á söfnum
Hafnarfjarðar – en þar er ávallt
frítt inn!
Lausnum á að skila inn fyrir
30. september og allir sem skila
inn fá viðurkenningarskjal og
nafnbótina Vinur Hafnar fjarðar.
Fjölskylduleikur í boði
FH-ingar ætla seint að fá
heimaleik í bikarkeppni karla í
knattspyrnu. Í gær drógust þeir
gegn Keflavík og verður leikið
í Keflavík 30. júlí kl. 19.15.
FH tekur á móti Fylki í kvöld
og á móti Aktobe frá
Kasasktan á miðvikudaginn
og þar á eftir gegn Keflavík í
úrvalsdeildinni á Kaplakrika.
FH fer til Keflavíkur
Evrópuleikur á miðvikudaginn gegn Aktobe
1. – Sívertsens-hús (Vesturgata 6) er elsta hús
Hafnarfjarðar, byggt á árunum 1803-1805 af Bjarna
Sívertsen sem nefndur hefur verið „faðir Hafnarfjarð-
ar“. Bjarni er líka nefndur „riddari“, hvað hét konung-
urinn sem sló hann til riddara?
2. – Gufuketillinn úr Coot við Gamla vínhúsiðTogarinn Coot frá Aberdeen var keyptur til Hafn-
arfjarðar árið 1905 og var fyrsti togarinn sem gerður
var út af Íslendingum. Í Byggðasafni Hafnarfjarðar
(Vesturgötu 8) er líkan að þessu fræga skipi. Hvert
var skráninganúmer skipsins?
3. – Beggubúð – verslunin var áður á Strandgötu 5
Svona litu margar búðir út í gamla daga en þetta hús er
varðveitt til minja enda allar innréttingar upprunalegar.
Sambyggða sjónvarpið og plötuspilarinn í glugganum
er frá um 1955-65. Hvað tegund er þetta?
4. – Árabátur ByggðasafnsinsTil eru margar gerðir árabáta. Árabáturinn sem er á
hinu sólríka plani fyrir aftan Byggðasafnið er svokall-
að tveggja manna far með Faxaflóa-lagi. Hvernig er
báturinn á litinn?
5. – Bungalowið (Vesturgata 32)Byggt sem íbúðarhús Bookless bræðra sem voru
umsvifamiklir í útgerð og fiskverkun í Hafnarfirði á
árunum 1910-1922. Úr hverju er sólinn á skónum
(nefndir reitarskór) sem notaðir voru á saltfiskreit-
unum í gamla daga?
6. – Útilistaverk við HafnarborgAð losna úr fjötrum er það frelsi? Úr fjötrum er úti-
listaverk við Hafnarborg. Finndu nafn listamannsins
við verkið.
7. – Útilistaverk á VíðistaðatúniÍ Hafnarfirði eru mörg útilistaverk og á Víðistað atúni
er alþjóðlegur höggmyndagarður. Hverjir eru það
sem breytast í steina þegar á þá skín sól?
Á Víðistaðatúni eru tvö tröll höggvin í stein. Á veg-
inum upp að Víðistaðakirkju finnur þú þau. Lista-
maðurinn er frá Húsafelli og þaðan koma steinarnir.
Náttúran og listin eru hér tvinnuð saman.
8. – Víðistaðakirkja. Kirkjan var vígð árið 1988. Allt frá vígslu Víðistaða-
kirkju 1988 hafa hinar miklu freskumyndir sem prýða
veggi hennar vakið mikla athygli, eftir hvaða lista-
mann eru þær?
9. – Bókasafnið - TónlistardeildVeistu eftir hvaða hafnfirska tónskáld lögin við Hafið
bláa hafið og Fyrr var oft í koti kátt eru?
10. – HamarskotslækurJóhannes Reykdal trésmiður virkjaði Lækinn til raf-
magnsframleiðslu í 16 hús og reisti þar síðan fyrstu
rafstöðina á Íslandi til almenningsnota árið 1904.
Hvað hét fyrsti rafvirki landsins? Þú finnur svarið á
minjaskilti við Austurgötuna
11. – Siggubær
Bærinn (1902) við Kirkjuveg 10 er kenndur við Sigríði
Erlendsdóttur sem tíu ára gömul fluttist í húsið
ásamt foreldrum sínum og bjó þar til ársins 1978.
Bærinn er varðveittur sem sýnishorn af verkamanns-
og sjómannsheimili í Hafnarfirði frá fyrri hluta 20. ald-
ar. Hvað eru margir gluggar á bænum?
12. – Hellisgerði Á virkum dögum í sumar er staðsettur Bonsai-garð-
ur í Hellisgerði. Frá hvaða landi kemur sú tegund
garðyrkju?
Lausnum má skila í Þjónustuver Hafnarfjarðar, Strandgötu 6 eða Byggðasafn Hafnarfjarðar, Vestur götu 8. Skila þarf inn lausnum fyrir 30. sept.
Allir sem skila inn fá viðurkenningarskjal og nafn-
bótina Vinur Hafnarfjarðar.
Nafn
Heimilisfang
Netfang
Sími
v
A
H
rí
h
að
Nú
Þa
á g
leik
Allt
Það
bryg
neða
arbry
að v
ánæg
Fjallið
Það g
arfjarð
allir á
og í ba
á fjallið
Skógræ
Tilvalið
ar Hafn
Hvaleyr
Spurningaleikur
Spurningaleikur fjölskyld
unnar
og hugmyndir fyrir sumar
ið!
Perlur Hafnarfjarðar
W
W
W
.V
IS
IT
H
A
F
N
A
R
F
J
O
R
D
U
R
.I
S
-
-
á
ví
ar
ns
ið
m
ór
og