Fjarðarpósturinn - 09.07.2009, Page 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 9. júlí 2009
Reglusöm móðir með eitt barn
óskar eftir 3. herb íbúð í Hf. frá
1. ágúst. Langtímaleiga.
Greiðslugeta 80- 90.000 á mán.
Heiti reglulegum greiðslum.
Skoða allt. S. 662 0384. Íris
Til leigu 50 m², neðri hæð í
einbýli. Eitt svefnherbergi, sjón -
varpsherbergi/stofa, eldhús og
bað. Bílastæði við hús. Sér
inngangur, rafm og hiti innifalið.
Leigist eingöngu reyklausum og
reglusömum aðila. Leiga 80 þ.
kr/mán. 3 mán fyrirfram. Uppl.
síma 565 0599 / 690 0499
2 rúm fást gefins ef þau eru sótt.
Eitt Ikea rúm, 1,2x2 m m/springdýnu
og einbreitt rúm m/svampdýnu.
Uppl. í s. 822 0287.
2ja mánaða gamalt barnahjól
(hvítt) fyrir 9-12 ára selst á
20.000 kr. (upprunalegt verð
38.000 kr.). Ábyrgðarskírteiti fylgi.
Bleyjur (fyrir nýfædd) 500 kr pk,
16 kg+ 1000 kr pk.
Sími 699 4613.
Oolong er 100% hreint te.
Brennslan 157% meiri en af grænu
tei. Mjög vökvalosandi, dregur
stór lega úr sykurþörf. 50 daga
skammt ur (100 pokar) á 3.800 kr.
siljao@internet.is 557 6120 og
845 5715.
Við erum tvær 14 ára stelpur í
Hafnarfirði og höfum mjög
mikinn áhuga á að passa börn,
1-6 ára. Við höfum passað saman
frá því í 6. bekk. Guðrún hefur far -
ið á Rauðakrossnámskeiðið „Börn
og umhverfi“. Getum passað frá
byrjun ágúst. Uppl. í s. 8497799
(Guðrún), 6941395 (Andrea),
8613825 (Vigdís móðir Guðrúnar).
Kötturinn Kondjó týndist úr pöss -
un á Furuvöllum á laugardags -
morgun. Hann er 3ja ára, svartur
og hvítur og mjög ljúfur. Er með
græna hálsól með bjöllu og merki
og er sárt saknað. Sími 865 5140.
Svartur adidas jakki með gylltum
röndum hvarf úr kvennaklefanum
í nýju sundlauginni á Álftanesi. Í
vasa jakkans var svartur gsm-sími
af Nokia gerð. Uppl. má veita í
s. 665 8928 (Jóhann).
Grá/svört barnakerra fannst á
Melabraut. Uppl. í s. 894 2551.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s 5 0 0 k r .
Tapað-fundið og fæst gefins: F R Í T T
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a .
Húsnæði óskast
Tapað - fundið
Gefins
Barnapössun
Húsnæði í boð
Til sölu
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann JónassonSverrir Einarsson Jón G. Bjarnason
Í Fjarðarpóstinum í síðustu
viku kemur fram að bæjarstjóri
Hafnarfjarðar sé ósáttur við
bókun Vinstri grænna við af -
greiðslu á endurskoðaðri fjár -
hags áætlun. Forsaga
málsins er sú að eftir
efna hagshrunið síð -
ast liðið haust ákváð -
um við Vinstri græn
að taka þátt í gerð
fjárhagsáætlunar fyrir
árið 2009. Það er
sjaldgæft að minni -
hluta flokkur taki þátt
í gerð fjárhagsá ætl -
unar en óvenjulegar
að stæður kalla á óvenju leg
vinnubrögð. Við fjár hags áætl -
unarvinnuna var settur á stofn
sérstakur vinnuhópur með full -
trúum allra flokka þar sem farið
var ítarlega yfir mögu legar
sparnaðarleiðir. Sjálf stæð is -
flokkurinn dróg sig fljót lega út
úr þeirri vinnu. Upphafleg fjár -
hagsáætlun var því lögð fram af
Sam fylkingunni með fulltingi
Vinstri grænna ásamt sam -
eiginlegri bókun. Við þann
gjörn in virðist meirihluti Sam -
fylkingar hafa eignað sér af -
stöðu og málfrelsi bæjarfulltrúa
Vinstri grænna við endurskoðun
á fjárhagsáætlun.
Vinstri græn hefur frá upphafi
ákveðið að leggja sitt af mörk -
um við gerð fjárhagsáætlunar í
samráði við alla flokka í bæjar -
stjórn og mun halda því áfram
en áskilur sér að sjálfsögðu rétt
til þess að leggja sínar pólitísku
áherslur inn í þá vinnu í formi
bók ana eða með örðum hætti.
Undirbúningur að endur -
skoðun fjárhagsáætlunar fór
fram í bæjarráði þar sem sviðs -
stjórar bæjarins mættu með
tillögur að frekari sparnaði fyrir
sín svið. Á þeim fundum fór
ekki fram pólitísk stefnumótun
um aðferðir við annars vegar
niður skurð og hins vegar tekju -
aukningu bæjarins. Á bæjar -
ráðsfundi sem haldinn var sólar -
hring fyrir bæjarstjórnarfund,
lagði Samfylkingin síðan ein -
hliða, fram tillögu að 511 millj -
óna króna niðurskurði sem skipt
var niður á ólík svið en ekki
útfærð nánar. Þessari
endur skoðaðri fjár -
hags áætl un var vísað
til bæjarstjórnar til af -
greiðslu. Á bæjar -
st jórnar fundinum
greiddi bæjarfulltrúi
Vinstri grænna endur -
skoðaðri fjár hags -
áætlun atkvæði sitt
og lagði fram bókun
ásamt Sjálf stæðis -
flokki.
Meirihluti Samfylkingar
reidd ist svo við bókun Vinstri
grænna að hann ákvað að hefna
sín og lagði til að pólitískir
áheyrn arfulltrúar í ráðum bæj -
arins yrðu skornir burt í nafni
sparnaðar. Þessi ráðstöfun hefði
bitnað á Vinstri grænum, sem á
einu tvo pólitísku áheyrnar full -
trúana. Frá síðustu sveitars tjórn -
arkosningum hefur minni hluti
bæjarstjórnar, Vinstri græn og
Sjálfstæðisflokkur, haft með sér
skrif legan samning um kosn -
ingar í nefndir og ráð. Til að
koma í veg fyrir að vera úti -
lokuð frá helstu ráðum bæjarins
lagði Samfylkingin til að Vinstri
græn myndu svíkja þennan
samn ing, fella tvo af fulltrúum
Sjálf stæðisflokks og koma sín -
um fulltrúa að í stað þeirra.
Bæjar fulltrúi Vinstri grænna
hafn aði því að taka þátt í þessum
ódrengilega pólitíska leik og
neitaði að svíkja skriflegan
samn ing minnihlutans. Ekkert
varð því úr niðurskurði áheyrn -
arfulltrúa en nú snýr meiri -
hlutinn upp á sannleikann með
því að hæðast að bæjarfulltrúa
Vinstri grænna fyrir að vilja ekki
kjósa sjálfa sig í bæjarráð. Já,
hún er skrítin tík þessi pólitík og
ekki alltaf geðfeld.
Höfundur er bæjarfulltrúi
Vinstri grænna
Skrítin tík þessi pólitík
Guðrún Ágústa
Guðmundsdóttir
Ríkisstjórn Íslands er búin á
10 dögum að koma aðalmáli til
stuðnings og greiðslu af banka -
hruninu í framkvæmd, eða
þannig?
Hver var sú fram -
kvæmd? Jú, meðal
annars að rýra
greiðsl ur frá Trygg -
inga stofnun ríkisins
til aldraðra. Ríks -
stjórnin þurfti ekki
neitt samkomulag
þar um, nei bara
ákveðið sí svona með
10 daga fyrirvara.
Meira er í farvatninu til að
ganga í skrokk á eldri borg -
urum.
En hvað með þá er stóðu fyrir
og áttu allan þátt í banka -
hruninu? Í Bandaríkjunum er
nýbúið að dæma aðal snill -
inginn í Enron í yfir 100 ára
fanga vist.
En hér á landi ganga snill -
ingarnir um torg og götur bís -
perrtir eins og ekkert hafi skeð.
Hvernig væri að yfirvöld
færu nú að gera eitthvað í þeirra
svindli og t.d. frysta eignir
þess ara snillinga er komu
bankahruninu á koppinn.
Síðustu daga hafa komið upp
nöfn helstu fjármála snill ing -
anna er lánuðu sjálfum sér ekki
eina eða tvær milljónir, nei
hundr uð milljóna og bera svo
ekki ábyrgð á neinu. Ég álit að
sumir þingmenn væru búnir að
láta af störfum í alvöru vest -
rænum lýð ræðisríkjum, vegna
tengsla við svo -
nefnda fjár mála snill -
inga eins og hér á
landi eru sannarlega.
Allar rannsóknir á
þessu bankahruni
ganga ótrúlega hægt,
hvað skyldi vera búið
að koma miklum
fjármunum í undan -
skot?
Svo eru fjölskyldu -
tengsl, vina tengsl og alls konar
tengsl ekki til að flýta fyrir.
Aftur og aftur kemur í ljós að
allar eftirlitsstofnanir svo sem
Seðla bankinn, Fjármála eftir -
litið og ríkisstjórnir hafa brugð -
ist stórlega sínu eftirlits hlut -
verki.
Svo eru þingmenn vorir í
sand kassaleik í Icesave málinu,
geta ekki tekið á þessum mál -
um af skynsemi heldur leika
endalausan loddaraleik, sumir
hverjir í það minnsta.
Ég get ekki séð annað en að
við verðum að samþykkja
ábyrgð á þessum Icesave samn -
ing annað er bara ekki í
stöðunni að mínu mati.
Höfundur er fyrrv.
loftskeytmaður.
Eldri borgarar
aðalfórnarlambið?
Jón Kr.
Óskarsson
VIÐHALDSVINNA
Get bætt við mig verkefnum,
bæði úti- og innivinnu.
Tilboð eða tímavinna.
Upplýsingar gefur
Jónas K. Eggertsson
sími 895 9570
Enn einu sinni lögðu Hauka -
stelpurnar FH-inga. Nú á
Kaplakrika. Eftir að Haukar
höfðu skorað, sótti FH nær
stanslaust að marki Hauka en
höfðu ekki árangur sem erfiði.
Leikurinn var fjörugur og
skemmtilegur á að horfa.
Kannski má kenna um léleg -
um merkingum og ónógri
fræðslu sem veldur því að
árekstrar á hringtorgum eru
algengir. Mjög gjarnan virða
menn ekki rétt þeirra sem eru á
innri akrein og ónóg notkun
stefnuljósa hjálpa ekki til. FH-
torgið er svo heldur ekki vel
hannað torg.
Kunnáttuleysi í hringtorgum
Árekstrar á FH-torgi allt of algengir
Minni bíllin er þarna í rétti.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
FH var nálægt því að jafna
en ekki vildi boltinn inn enda
vörn Haukanna þétt.
Haukar lögðu FH 1-0
Þrátt fyrir látlausar sóknir tókst FH ekki að jafna