Fjarðarpósturinn - 29.10.2009, Side 1
Bæjarráð samþykkti á fundi
sínum sl. fimmtudag að fela
sviðsstjóra og skrifstofustjóra
skipulags- og byggingarsviðs
Hafnarfjarðarbæjar að taka upp
viðræður við stjórnendur ISAL
um stöðu deiliskipulags fyrir
stækkun álversins í Straumvík
og önnur þau atriði sem lúta að
útfærslu þess. Þetta er gert með
vísan til óska bæjarbúa um
atkvæðagreiðslu og hefur Hafn -
arfjarðarbær þar með staðfest að
undirskriftirnar sem skilað var
fyrir alllöngu séu nógu margar.
Málið er í undarlegri stöðu því
RioTinto Alcan lét gera deili -
skipu lags tillögu í janúar 2007
sem bæjarstjórn vísaði til af -
greiðslu bæjarbúa með kosn -
ingum. Tel ur Alcan sig aldrei
hafa fengið svar frá Hafnar fjarð -
arbæ og því sé boltinn þar.
Reglur bæjarins eru skýrar,
óski tiltekinn fjöldi eftir kosn -
ingum skal verða við því. Hins
vegar eru engar reglur um
hversu fljótt eftir að ósk berst
skuli kjósa, aðeins að kjósa skuli
eigi síðar en 2 mánuðum eftir að
bæjarstjórn tekur ákvörðun um
kosn ingar. Í raun var aldrei
kosið um stækkun álversins, að -
eins hvort sam þykkja ætti deili -
skipulagið til lögformlegs ferlis.
Ólafur Teitur Guðnason, upp -
lýsingafulltrúi RioTinto Alcan
segir að það verði örugg lega
skoð að hvort möguleiki sé á
stækkun og þá hvenær - sé vilji
fyrir því hjá Hafnar fjarðarbæ og
að þeir séu viðbúnir til við -
ræðna. Menn séu hins vegar
treg ir til að fara á ný út í kostn -
að arfreka undir búnings vinnu á
meðan óvíst hvort heim ilt verði
að stækka. Bæjarstjóri segir hins
vegar boltann hjá RioTinto
Alcan og nú þurfi að yfirfara
deili skipulagstillöguna því
ýmislegt hafi breyst frá 2007.
Óvíst er því hversu undirbún -
ingur kosninganna taki langan
tíma sé þá grundvöllur fyrir þeim.
ISSN 1670-4169
Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www. f ja rda rpos tu r inn . i s
40. tbl. 27. árg. 2009
Fimmtudagur 29. október
Upplag 10.200 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi
TÖLVUVIÐGERÐIR
STUTTUR BIÐTÍMI
Helluhrauni við Bónus
Opið til 18 alla virka daga
www.midnet.is
s: 564 0690
NEGLUR Í ANDORRU
Októbertilboð
Verð kr. 4.000 - 5.500
mjög góð ending, 4-8 vikur
ekkert loft
Kosið á ný um stækkun?
Hafnarfjarðarbær staðfestir undirskriftalista
ÁSVALLALAUG
www.asmegin.net • 555 6644
Ungbarnasund
Vatnsleikfimi
- á meðgöngu
- við stoðkerfisvanda
Hópatímar
- við stoðkerfisvanda
- eftir barnsburð
- vegna offitu
L
jó
sm
.:
G
u
ð
n
i G
ís
la
so
n
BARNAMYNDATÖKUR
JÓLAMYNDATÖKUR
Sigga ljósmyndari
Strandgötu 29
Laugardagskaffi
að Norðurbakka 1
Allt sjálfstæðisfólk velkomið
KL. 10-12 • BARNAHORN
Sjá nánar á:
http://hafnarfjordur.xd.is
Hafnfirðingar geta hugsanlega enn á ný kosið um stækkun álversins.