Fjarðarpósturinn - 29.10.2009, Síða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 29. október 2009
Það mátti heyra á bæjarstjórnarfundi á
þriðjudag hversu bæjarfulltrúar eru háðir
þrýstihópum. Guðrún Ágústa (VG) sagði það
hreint út að í málefnum íþróttafélaga yrði
maður að passa sig hvar stigið væri niður. Það
var varla broslegt að heyra bæjarfulltrúa
samþykkja 300 þús. kr. niðurskurð á ferða -
þjónustu fatlaðra á sama tíma og 2,7 milljónir
kr. voru settar í flýti framkvæmdir á bílaplani
fyrir kvartmíluklúbb og 27 milljónir kr. í áhorfendastúku til að
fullnægja reglum KSÍ. Varla er hægt að kenna því um að 8 af
bæjarfulltrúunum 11 voru konur að þessu sinni, eða hvað? Aðeins
einn þorði að standa gegn þessu, Haraldur Þór Ólason (D og fyrrv.
form. körfuknattleiksdeildar Hauka). Flokksfélagi hans, Rósa
Guðbjarts dóttir (fv. form. knattspyrnudeildar Hauka) taldi að
jafnræði í stuðningi við íþróttafélögin væri mikilvægari en
niðurskurður nú þegar alls staðar er skorið niður. Guðrún Ágústa
(VG, vel tengd Haukum og uppalin í FH) taldi það 27 millj. kr. virði
að fá Haukana til að spila í Hafnarfirði. Aðrir bæjarfulltrúar þögðu
þunnu hljóði. „Ditto“ voru svo rökin fyrir bílaplani kvartmílu -
klúbbsins. Stúkubyggingin hlýtur svo að verða boðin út enda sam -
þykkt að framkvæmdirnar færu eftir samþykktum fram kvæmda ráðs
en fram kom að þær yrðu í umsjón Hauka en undir eftirliti
framkvæmdasviðs bæjarins. Íþróttafélögin leggja út fyrir
framkvæmdunum en Hafnarfjarðarbær greiðir með jöfnum
greiðslum á næstu 3 árum sín 90% á móti 10% íþróttafélaganna.
Svona er pólitíkin í dag eins og hún alltaf hefur verið og kreppan
virðist engu breyta þar um. Fatlaðir verða bara að vera meira heima
og börnin skemur í skóla svo jafnræði raskist ekki á milli íþrótta -
félaganna. Sjóndeildarhringurinn er ekki stærri en þetta.
Guðni Gíslason.
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Sunnudagur 1. nóvember
Allra heilagra og
allra sálna messa kl. 11
Minnst látinna.
Sr. Þórhallur Heimisson sóknarprestur leiðir stundina.
Barbörukór Hafnarfjarðar syngur.
Organisti Guðmundur Sigurðsson.
Sunnudagaskóli
fer fram í safnaðarheimilinu á sama tíma
Víðistaðakirkja
sunnudagurinn 1. nóvember
Messa kl. 11
Látinna minnst.
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur.
Prestar:
Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir
og sr. Árni Svanur Daníelsson.
Barnaguðsþjónusta kl. 11
Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna,
fer fram í loftsal kirkjunnar.
Kyrrðarstundir á miðvikudögum kl. 12.00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
www.vidistadakirkja.is
LOFTNETS OG SÍMAÞJÓNUSTA
Viðgerðir og uppsetningar á
loftnetum, diskum, heimabíóum,
flatskjám. Síma- og tölvulagnir
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Sendibílaþjónusta í 25 ár!
Benni Ben. • 893 2190
Upplestur í bókasafninu
Á föstudaginn kl. 18 verður
upplestur í Bókasafni Hafnarfjarðar.
Elín Guðmundsdóttir les úr unglinga -
bók inni Aftur til Pompei eftir sænska
rithöfundinn Kim M. Kimselius. Höf -
undur verður á staðnum og spjallar
við gesti.
Síðasta sýningarhelgi
Sýningunni Lífróður - Föðurland vort
hálft er hafið lýkur á sunnudag í
Hafnarborg. Á sýningunni eru verk
eftir tæplega þrjátíu íslenska
listamenn sem endurspegla hafið á
ýmsan hátt. Verkin á sýningunni birta
mynd af hafinu sem náttúrufyrirbæri
en túlka einnig mikilvægi þess fyrir
sjálfsmynd þjóðarinnar og afkomu
Íslendinga. Þannig eru á sýningunni
verk sem fást við tengsl okkar við
náttúruna og hugleiðingar lista -
mannanna um félagsleg og pólitísk
viðfangsefni sem tengjast hafinu.
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir kvik -
myndasafn Íslands myndina Berlin
Ecke - Schönhauser í leikstjórn Ger -
hards Klein.
Á þriðjudaginn kl. 20 verður sýnd
myndin 8½ í leikstjórn Federico
Fellini. Federico Fellini (1920 – 1993)
er einn þekktasti kvikmyndahöfundur
Evrópu á sjötta og sjöunda áratugn -
um. Myndin segir frá kvikmynda -
gerðarmanninum Guido sem reynir
að hvílast en hefur engan frið fyrir
fyrrverandi starfsfólki sínu. Saga um
mann og ímyndunarafl hans og
konurnar sem eru snilldarlegur hluti
af því.
Ársfundur Hraunavina
Laugardaginn 31. október kl. 14 í
Haukshúsi, Álftanesi. (Við golf -
völlinn).
Ljósmyndasýning
Þórarinn Örn Egilsson hefur opnað
ljósmyndasýningu á veitinga staðn -
um Tilverunni. Sýningin er opin virka
daga 9.30-12 og 18-22.30, lengur
um helgar.
Powertalk fundur
Deildarfundur ITC Írisar verður
haldin mánudaginn 2. nóv. kl. 20 í
safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju.
Á dagskrá fundarins er ræðukeppni
milli félaga í deildinni. Gestir eru
ávallt velkomnir á fundi án allra
kvaða.
Árangur með
Herbalife
Aukin orka -
Betri líðan
Gerður Hannesdóttir
gsm 865-4052
ghmg@internet.is
Pantaðu frían
prufupakka!
Tölvuþjónusta Rthor
Fartölvuviðgerðir
og almennar tölvuviðgerðir.
Kem í heimahús
Ódýr og góð þjónusta
Sími: 849 2502
SAUMAKONA
í Hafnarfirði
- földun - rennilásar - gardínur
- hvers kyns saumaskapur
GOTT VERÐ
Reykjavíkurvegi 22
á bak við Sjónarhól
Opið kl. 17 til 21
miðvikudagar lokað
Sími 867 2273
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNARFJARÐAR
SÍMI 565 9775 - ALLAN SÓLARHRINGINN - UTH.IS
Frímann Andrésson
útfararstjóri
hÁLFDÁN hÁLFDÁNARSON
útfararstjóri
Kaffisetur
Samfylkingarinnar 60+
í Hafnarfirði
alla þriðjudaga og
föstudaga kl. 10-12
Strandgötu 43
Rjúkandi kaffi og meðlæti.
Fjörugar og lýðræðislegar
umræður um fjölbreytt málefni.
Allir velkomnir