Prentarinn - 01.10.1984, Side 3
Augljóst er að gera verður stórátak í endur-
menntunar- og menntunarmálum okkar starfsgreina.
Allir virðast gera sér grein fyrir þessari brýnu þörf og
hafa gert nokkuð lengi, hins vegar hefur gengið
grátlega seint að koma á markvissu starfi í þessu
sambandi.
Á sínum tíma varð uppi fótur og fit í okkar félagi,
þegar tveir félagsmenn, óiðnlærðir, hugðust fá að
taka sveinspróf í viðkomandi iðngreinum samkvæmt
hinni svokölluðu 10 ára reglu.
í framhaldi af þeirri umræðu sem þá skapaðist í
félaginu var ákveðið að félagið beitti sér fyrir því að
óiðnlærðum félögum sem starfað hefðu í tilskilinn
tíma væri gefinn kostur á að taka þátt í námskeiði
sem lyki með sveinsprófi. Meiningin var að þessum
námskeiðum yrði komið á fljótt, en í þessu máli eins
og öðrum er að þessum málaflokki lúta varð reynslan
sú, að málin gengu hægt fyrir sig.
Hvað um það, nú er ákveðið að þessi námskeið
hefjist í byrjun árs 1985 og verða þau fyrst um sinn
fyrir óiðnlærða félaga í bókbandi og setningu, sem
unnið hafa sex ár eða lengur í viðkomandi starfs-
grein.
Námskeiðin sem rekin verða með „öldunga-
deildarsniði" verða vonandi til þess að hleypa nýju
blóði í endurmenntunar- og menntunarmál stéttar-
innar.
1984
Umbrotasamt ár er nú að kveðja. Þessa árs verður
lengi minnst, enda opinberaðist á því, svo um mun-
aði, að landið byggja tvær þjóðir: Verkafólk sem
skapar arðinn og verður samt að leggja á sig
ómælda yfirvinnu og vinnuálag til þess að skrimta og
hin þjóðin sem hirðir arðinn og engu vill sleppa.
Félag bókagerðarmanna og BSRB lögðu sitt af
mörkum til að uppræta þetta misrétti. Sú barátta mun
halda áfram að borga sig, hún var ekki einasta
alvarleg aðvörun til auðstéttarinnar, hún hleypti jafn-
framt nýju lífi í Alþýðusambandið, sem alltof lengi
hefur legið í þyrnirósarbeðnum, ef marka má niður-
stöður þings ASÍ.
Að öllu samanlögðu er því ástæða til bjartsýni,
verkafólk mun sækja sinn rétt. -mes
PRENTARINN - málgagn Félags bókageröarmanna • Útgefandi FBM,
Hverfisgötu 21 • Ritstjóri: Magnús Einar Sigurösson • Setning, filmu-
vinnsla, prentun og bókband: Prentsmiðjan ODDI hf. • Letur: Times og
Helvetica • Hönnuður blaðhauss: Þórleifur Valgarður Friðriksson.
PRENTARtNN 4.4.'84
3