Prentarinn - 01.10.1984, Qupperneq 5
Forseti ASÍ á útifundi FBM og fleiri félaga.
Hinn fjölmenni útifundur á Lækjartorgi.
Á samningafundi.
hefði ekki haft þá stöðu til glæsilegra
átaka í 4 vikna verkfalli, ef við hefðum
hikað í upphafi.
Kristján Thorlacius formaður
BSRB sagði líka á baráttusamkom-
unni í Sigtúni 23. september: „Þið
bókagerðarmenn standið nú í eldlín-
unni; þið eruð brimbrjótar íslenskrar
verkalýðshreyfingar í dag“. Hann
skildi hver staðan var.
Þegar litið er á átökin í samhengi er
ljóst að hér var um að ræða atburða-
rás, sem stigmagnaði þá möguleika,
sem fyrir hendi voru hjá þessum sam-
tökum, uns atvinnurekendur og ríkis-
vald þeirra varð að láta undan. Það
sem á skorti að meiri og tryggari sigur
ynnist var, að önnur samtök verka-
lýðsins bættust í hópinn og fylktu liði
uns fullskipað var. Það hefði án nokk-
urs efa ráðið úrslitum varðandi
kauptrygginguna. Fyrir öllum þeim,
sem gerðu sér grein fyrir því hvernig
málin stóðu þegar bókagerðarmenn
sömdu eftir sex vikna verkfall og
BSRB eftir fjórar vikur í verkfalli, eru
vinnubrögð verkalýðssambandanna
„hinn óttalegi leyndardómur“, sem
fáir skilja og engum finnst boða gott.
En dýrkeypt reynsla færði hinu unga
félagi bókagerðarmanna sjálfstraust
og sjálfsvirðingu, sem ekki verður
þurkuð út með hefndaraðgerðum
ranglátra stjórnvalda né taumlausri
ágirnd og yfirgangi atvinnurekenda.
Aðeins þess skulum við minnast að
sýta ekki orðinn hlut og eyddar krón-
ur, heldur hugsa um og skilja sam-
hengi þeirra hluta, sem gerðust og
draga af því réttar ályktanir:
Verkfallstíminn var rétt valinn, ann-
ars hefðum við ekki brotið hefðina,
unnið okkur sjálfstæða samningsstöðu
og gert mögulega þá kraftmiklu og
breiðu samstöðu, sem náðist með
BSRB og skila mun á sínum tíma því
sem á skortir í kauptryggingu og sóma-
samlegum lífskjörum.
Stefán Ögmundsson.
jBOHWföggjy
BLE£Rr[BF»
k u irO rSTKii
’nl '8 iNii Wll f F r tttthsj rr?m
Y