Prentarinn - 01.10.1984, Side 8

Prentarinn - 01.10.1984, Side 8
farinn að reskjast. Ég vissi að hann átti mikinn þátt í kirkjubyggingunni og vann töluvert að bókasafninu, það var þegar það var í gamla barnaskólanum og Davíð Stefánsson var þá bókavörður þar. Oddur gaf mikið af bókum þangað, hann fékk alltaf 1—2 trékassa á ári með bókum frá Kaupmannahöfn og margt af þeim bókum lét hann ganga til Amtsbókasafnsins. Hann var dálítill grúskari. Hann var ekki trúaður á sama hátt og flestir, hann var það sem kallað er sóldýrkandi. P: Hvar hafði hann kynnst því? Úr bókum eða í Kaupmannahöfn? S: Ég held hann hafi komist í kynni við það í Kaupmannahöfn og eitthvað í grúski, svipað og Jón heitinn Árnason. Og ég man varla eftir að hann færi í kirkju, þó held ég að hann hafi einu sinni farið á aðfangadag í gömlu kirkjuna inni í fjöru. Þ: Hann hefur þá ekki fyrirlitið önnur trúarbrögð? S: Nei, nei, síður en svo. Börn hans voru skírð í kirkju og hann tróð ekki þess- um skoðunum sínum upp á nokkurn mann. Þ: Sástu nokkrar athafnir í sambandi við sóldýrkunina? S: Nei, það sá ég ekki. En þetta er nokkuð svipað og stjörnudýrkun, þannig að henni fylgir mikið af útreikningum. Og er þá teiknuð mynd, sem er í vissum reit- um og vissum hlutföllum og allt tölusett. Svo eru dregnar línur út frá þessu allavega og sett inn á stjörnumerki og sólmerki og annað slíkt. Þ: Er þetta þá nokkurs konar framtíð- arspá? S: Já, nokkurnveginn er það. Og þó það sé kallað sóldýrkun er það ekki að menn séu að gapa móti sólinni heldur er átrúnað- urinn á mátt sólarinnar á jarðlífið, mann- lífið og náttúruna. Sko, hérna get ég sýnt þér eitt merki, hér eru tákn og dregnar út frá því línur. Þ: Teiknaði Oddur þetta? Hér stendur O. Bj. undir. S: Já, þetta var notað til skrauts á saurblöð á bækur. Ekki bara þær bækur sem hann gaf út, þessi er frá Þorsteini M. Jónssyni, Mamma litla. En Oddur fékkst mikið við bókaútgáfu, hann gaf t. d. út fyrstu alþýðufræðslubókina: Börn náttúr- unnar. Sögur herlæknisins gaf hann út 1898. Hann gaf út góðar og vandaðar bækur. - Verkamaðurinn og Dagur Þ: Hann var líka lærður setjari. S: Já, Sigurður var vélsetjari. Þeir fengu setningarvélina 1929 og hún var eingöngu notuð fyrir bókasetningu. En það voru 2 blöð prentuð í prentsmiðjunni, það var Verkamaðurinn og Dagur og þau voru handsett. Og það var Þorkell Ottesen og við nemendurnir sem settum blöðin. Keli var mjög snaggaralegur við setninguna, eldfljótur að setja, við höfðum ekki roð við honum. Hann var léttlyndur og gaman- samur en átti til að skvetta fullmikið í sig. En hann var svo fljótur að setja að það var stórmerkilegt og svo var það svo rétt, það þurfti lítið að leiðrétta. Það var eitt, sem Oddur varaði okkur við, það var að láta lausaletrið í munninn. Þ: Var það óttinn við blýeitrunina? S: Bæði það og svo voru prentformarnir þvegnir með lút. Oddur lagði ríkt á það við okkur að stinga ekki upp í okkur leiðrétt- ingarstöfum. Menn höfðu fengið blýeitrun svo það var rík ástæða til að reka á eftir þessu. Mullersæfingar Oddur hafði þann sið á morgnana að fara út og hlaupa upp og niður brekkuna hinum megin við götuna þar sem prent- smiðjan stóð. Það var fyrsta æfing hans, því hann gerði oft leikfimisæfingar á morgnana. Að deginum til þurfti hann oft að fara í bæinn, í banka, kaupfélagið og þess háttar, en þegar hann kom til baka í prentsmiðjuna gekk hann rösklega upp úti- tröppurnar, greip um hurðarhúninn og þeytti upp hurðinni, hún gekk inn, og svo stökk hann jafnfætis upp og inn á gólf. Þetta var ein af tiltektum hans eða sérvisku sem mönnum fannst dálítið einkennileg. En allt var þetta nú meinlaust. Einu sinni ætlaði hann að læra á hjóli og Jón heitinn Benediktsson, prentari, ætlaði að kenna honum. Jón bjó rétt innan við Gróðrar- stöðina og hjólaði alltaf á milli. Hann var íþróttaunnandi og iðkaði alltaf Mullersæf- ingar allsber fyrir utan húsið heima hjá sér. Og frúrnar, sem stundum voru þarna á gönguferð, kvörtuðu undan þessum bera manni. Jæja, en Jón ætlaði að kenna Oddi á hjóli, því hann langaði til að fara um öðru vísi en fótgangandi. En Oddur hélt aidrei jafnvæginu á hjólinu svo það varð ekkert úr þessu. Þ: Las hann mikið? Heldurðu að hann hafi ekki skrifað eitthvað um sóldýrkunina sem hafi birst einhvers staðar? S: Jú, hann las geysilega mikið, tóm- stundirnar fóru varla í annað. Og hann skrifaði oft og ég hef stundum velt því fyrir mér hvað hafi orðið af því; og hann skrif- aði ýmislegt um þessa sóldýrkun. Hann átti greinar í tímaritinu Jörð en ég held að þær hafi verið um annað efni. Þ: Fékk hann stundum heimsóknir? S: Það var ekki mikið um það, helst fjölskyldan. Ég man eftir að Sigurður Guð- mundsson skólameistari, Brynleifur Tobí- asson, Steingrímur Matthíasson og Kristin, kona hans, og Sigurgeir Jónsson, sem þá var með Guðspekifélagið komu til hans. Það var þá oft í sambandi við ýmsar útgáf- ur, sérstaklega Sigurður skólameistari, því ársskýrsla Gagnfræðaskólans var alltaf gef- in út og það var með Sigurð eins og Jónas frá Hriflu, handritið var ekki læsilegt. Það var helst þetta fólk sem leit til hans. Og Halldóra Bjarnadóttir, hann prentaði Hlín og var þeim oft hjálplegur í sambandi við útgáfuna. En sjáðu til, Oddur var aldrei einmana, hann var innan um fólk alla daga í prentsmiðjunni og átti mörg áhugamál. Þ: Hvernig var sveinsprófið þitt? S: Ég var sá eini sem tók próf í prentun þetta sinn. Og eitt af verkefnunum var að prenta fjögurra lita mynd af konu hans. Hann hélt ákaflega mikið upp á hana. Hún var afar tíguleg kona og var klædd á mynd- inni eins og greifafrúrnar fyrir aldamót og þessa mynd átti ég nú að prenta eins og listamaður hefði gert það: Klissjurnar komu frá Danmörku, það var ekki byrjað þá að gera litmyndaklissjur hér á landi. Það var erfitt að prenta litmyndir þá, það vantaði svo margt sem seinna kom til að létta starfið. En þetta tókst bærilega hjá mér, og ég þakka það því að myndamótin voru úr kopar. Minnsta kosti var Oddur ánægður með prófið mitt. 8 PRENTARINN 4.4'84

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.