Prentarinn - 01.10.1984, Page 11
Ameríka Ameríka
. . . og þorpið
Cripple Creek er lítið „yfir-
gefið“ þorp uppí fjöllunum.
Hálfgerður draugabær. Þorpið
virðist þó vera að lifna við
smátt og smátt fyrir tilstilli
ferðamanna. Þó þorpið virðist
ekki hafa mikið uppá að bjóða
er saga þess merk og vert að
hennar sé minnst. Áður fyrr
var Cripple Creek heimsins
stærsti gullgrafarabær og það
var hann frá 1894 þar til fyrri
heimsstyrjöldin skall á. Staður-
inn bauð uppá þrjár járnbraut-
ir, þrjú söngleikahús og
ónefndan fjölda „gleðihúsa“.
í Cripple Creek er svo kallað
„Magich Lanterna" leikhús.
Með hljóði og myndum er hin
landfræðilega og félagslega
saga staðarins rakin. Gullið
bókstaflega flæddi uppá yfir-
borðið. Hinn mikli fjöldi
gullfundarstaða voru fljótlega
„keyptir" af þeim „stóru“.
Gullleitarmennirnir urðu
verkamenn í stað þess að verða
miljónerar. Námumennirnir
mynduðu með sér verkalýðsfé-
lög, en tilraunir þeirra til að
bæta kjörin voru brotnar á bak
aftur með hervaldi ef annað
ekki dugði.
Þorpsblaðið Cripple Creek
Gold Rush var heimsótt. Lítið
blað sem kemur út í 1500 ein-
- í kjallaranum undir ritstjórninni
snýst gamla prentvélin. Sá tími er
liðinn að fréttir af gullfundum,
gleðihúsum og slagsmálum séu
aðalefni blaðsins. Nú eru það mest
upplýsingar til ferðamanna og
auglýsingar eftir týndum köttum
sem fylla síður blaðsins.
tökum einu sinni í viku. Sami
maður skrifar og prentar blað-
ið. Konan hans sér um dreif-
ingu og þess háttar. Fleiri
starfa ekki að framleiðslu
blaðsins. Vélakosturinn mundi
sóma sér vel á mynjasafni.
Sjálf prentvélin er frá fyrri
hluta aldarinnar en þjónar þó
vel sínum tilgangi enn.
PRENTARINN 4.4.'84
11