Prentarinn - 01.10.1984, Qupperneq 12

Prentarinn - 01.10.1984, Qupperneq 12
Guðbrandsbiblía 400 ára Merkisár í sögu íslenskrar bóka- geröar. Árið 1984 er mikið merkisár í sögu ís- lenskrar bókagerðar. Pá eru liðin 400 ár frá því lokið var vinnu við „eitthvert mesta prentlistarafrek hér á landi“ eins og Hall- björn orðaði það í útvarpserindi 1940, um prentunina á biblíu Guðbrands biskups Þorlákssonar. Prentarinn ætlar nú að minnast þessa afreks með tvennu móti. í fyrsta lagi verð- ur farið nokkrum orðum um það merki- lega framtak íslenzkra bókagerðarmanna að minnast 500 ára afmælis prentlistar- innar í heiminum með einskonar „píla- grímsför" að Hólum í Hjaltadal, árið 1940. Þar var biblía Guðbrands merkust gjafa. Þegar Þjóðverjar réðust með heri sína inn í Danmörku og Noreg og Bretar síðar hertóku ísland urðu margir tvíátta um rétt- mæti þess að efna til slíkrar ferðar og fagnaðar sem henni fylgdi. En að loknum allmiklum fundarhöldum varðandi þau sjónarmið, að hætta við allt saman, urðu úrsiit þau að eindreginn vilji reyndist fyrir því að halda við fyrri stefnu og ganga tvíefldir til starfa. Allt var þetta ferðalag hið merkasta, þótt ekki verði saga þess sögð hér nú. Gott ágrip af henni er að finna í desemberblaði Prentarans 1940. Kvikmynd var gerð af ferðalagi og at- burðum. Var hún unnin af Kjartani Ó. Bjarnasyni og Sigurði Tómassyni. Vönduð leiðarlýsing var gefin út, samin af formanni Hólanefndar, Ólafi B. Erlingssyni. Barm- merki var mótað úr silfri af Óskari Gísla- syni gullsmið eftir uppdrætti Hafsteins Guðmundssonar. Síðar kom út bókin Prentlistin 500 ára: „Gefin út sem handrit að tilhlutan Hins íslenzka prentarafélags á kostnað ísafoldarprentsmiðju h. f.“ Hluti af upplagi bókarinnar var fagurlega lýstur af Hafsteini Guðmundssyni. í öðru lagi verður útgáfu Guðbrands- biblíu minnst með endurbirtingu á merki- legri grein, sem prentarinn og skáldið Guðmundur Magnússon (Jón Trausti) rit- aði í 6. árgang Prentarans undir heitinu „Hólabiblíurnar gömlu“. Þar segir Guð- mundur m. a. um Guðbrandsbiblíu: „Biblía þessi er prýðilegasta bókin, sem nokkurn tíma hefur verið prentuð á íslandi, og stendur í engu að baki því allra bezta, sem birtist á sama tíma í þeim löndum, sem prentlistin hafði þá lagt undir sig“. H. í. P. kýs 11 manna undirbún- ingsnefnd að Hólaferð. Bókagerðarmenn sameinast Á fyrsta fundi nefndarinnar var ákveðið að leita samvinnu við Félag íslenzkra prentsmiðjueigenda um þessar minningarathafnir, svo og félög bókbandssveina og bókbandsmeistara. Öll þessi félög tóku vel boði H. í. P. um þátttöku í nefndarstörfum og lögðu til menn í nefndina. Það þótti og sýnt, að nefndarstörfin myndu verða allumfangsmikil, og því var það ráð tekið að bæta fjórum prenturum í nefndina og skipta henni í fimm undirnefndir, er hver um sig fékk ákveðið hlutverk í hendur. Pessir voru í nefndunum: Stjórnarnefnd: Ólafur Erlingsson, formaður, Porsteinn Halldórsson, ritari, Jón Pórðar- son, gjaldkeri. Útgáfunefnd: Stefán Ögmundsson, Hafsteinn Guðmundsson, Jón H. Guðmundsson. Ferðanefnd: Vilhelm Stefánsson, Albert J. Finnbogason, Sigmar Björnsson. Dagskrárnefnd: Hallbjörn Halldórsson, Kjartan Ó. Bjarnason, Óskar Guðnason. Fjárhagsnefnd: Þorvaldur Þorkelsson, Kristján Ágústsson, Guðmundur H. Pétursson. Frá Félagi íslenzkra prentsmiðjueigenda tóku þátt í nefndarstörfum: Steindór Gunnarsson, Henrik W. Ágústsson. Frá Félagi bókbandsiðnrekenda: Porleifur Gunnarsson. Frá Bókbindarafélagi Reykjavíkur: Jens Guðbjörnsson, Aðalsteinn Sigurðsson. Auk nefndarmanna sátu oft fundi nefndarinnar þeir Magnús H. Jóns- son, formaður H. í. P., og Gunnar Einarsson, form. F. í. P. Hólanefnd hélt alls tíu fundi, og auk þess héldu undirnefndirnar fjölda funda. Til marks um starfið má geta þess, að síðasti fundur Hólanefndar stóð yfir í sex klukkustundir! 12 PRENTARINN 4.4.'84

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.