Prentarinn - 01.10.1984, Side 14
Vígslubiskup
veitir
biblíunni
viðtöku
Séra Friðrik Rafnar vígslubiskup tók við gjöfinni fyrir hönd kirkjunnar og
þakkaði hana:
Fyrir hönd Flóladómkirkju, Hólastiptis hins forna og hinnar íslenzku kirkju
sem heildar, vil ég færa hér fram innilegustu þakkir fyrir þessa höfðinglegu og
ágætu gjöf, sem Hið íslenzka prentarafélag hefir fært dómkirkjunni, þó ég
hinsvegar geti ekki annað en minnst þess jafnframt, að raunalegt er það, að
þurfa að þiggja slíka gjöf, svo augljós vottur sem það er um afturför þá og
niðurlægingu sem norðlenzk menning og kirkjulíf hefir komist í á liðnum öldum,
að héðan skuli hafa glatast með öllu dýrgripir þeir, sem vott bera um stórhug
og dugnað hinna fyrstu brautryðjenda prentlistarinnar hér á landi. En einmitt
þessvegna er þessi ágæta gjöf ennþá kærkomnari og skal þess betur þökkuð,
sem hún sýnir líka þess betur skilning og velvilja prentarastéttarinnar og
ræktarsemi hennar til þessara bernskustöðva hinnar svörtu listar hér á landi.
Hafið hugheilar þakkir. . . Megi sú góðvild og skilningur prentarastéttarinnar
sem einkennir þessa gjöf, alltaf lýsa sér í störfum hennar, athöfnum og
framkvæmdum. Þá verður hún áfram eins og hingað til, ein þjóðfélagsins
þarfasta stétt.
Prestastefnan þakkar gjöfina
LANDSSÍMI ISLANDS
SlMSKEYTI frá Reykjavík
Nr. 4955... 45 ORÐ 27/6 1940
Formaóur Hins íslenzka prentarafélags
Reykjavík
Prestastefnan þakkar hina sannauðugu gjöf
hinna islenzku prentara Hólakirkju til handa
um leió og hún minnist starfs prentlistar-
innar i þágu islenzkrar kristni og þess
frelsis, framfara og fagnaóar sem hún hefir
um aldir fært á vegu íslenzkrar þjóóar.
Sigurgeir Sigurósson
Gjöfinni
valinn
staður
Guðbrandsbiblíu var valinn staður á
gröf Guðbrands biskups Þorlákssonar í kór
dómkirkjunnar. Eins og áður er getið, er
biblían í haglega smíðuðu skríni úr völdum
viði. Skrfnið er smíðað af Helga Hallgríms-
syni, en útskurð annaðist Ágúst Sigur-
mundsson.
Á framhlið skrínisins er letrað gotnesku
letri:
Guðbrandsbiblía
Prentuð 1584
Prentstaður: Hólar í
Hjaltadal
Á bakhlið skrínisins er skráð með nú-
tímaletri:
Minningargjöf á fímm hundruð ára afmæli
prentlistarinnar frá prentarastétt Islands
Jónsmessa 1440 — 24. júní 1940
Biblían hvflir opin á skríninu. Áður en
hún var lögð í það, var bókin opnuð „af
handa hófi“, og kom upp opnan með 42.
og 43. kap. í Spádómsbók Jesaja. En í
upphafi 43. kapítula, sem var sá staður, er
fyrst var lesinn, þá er bókin hafði verið
opnuð, segir m. a. svo:
„Ottast þú eigi, því að ég frelsa þig; ég
kalla á þig með nafni, þú ert minn. Gangir
þú gegnum vötnin, þá er ég með þér, gegn-
um vatnsföllin, þá skulu þau ekki flæða
yfir þig; gangir þú gegnum eld, skalt þú
eigi brenna þig, og loginn skal eigi granda
þér“.
14
PRENTARINN 4.4.'84