Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Page 4
4 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 24. apríl 2013
Í orðræðu um kvótakerfið
hefur útgerðarmönnum oft verið
lýst sem sérhagsmunaseggjum
og samtök þeirra stundum kennd
við mafíu. Ástæðan væntanlega
umsvif þeirra í samfélaginu og
ítök. Sjálfur tel ég út
gerð armenn hvorki
betri né verri en aðra
menn, en þeir sitja
vissu lega á atvinnurétti
sem malar gull. Skoð
um málið aðeins nánar.
Landsmenn hljóta að
fagna þegar eitthvað
gefur af sér í þjóðar
búið. Ekki veitir nú af.
Hinsvegar má spyrja af
hverju þessi atvinnuréttur, að fá
að veiða fisk, sé einum til
úthlutunar en öðrum ekki.
Mynd um við sætta okkur við
slíkt fyrirkomulag í öðrum út
boðum á vegum ríkisins? Fyndist
okkur það ekki skrítið ef opin
berri jarðvegsvinnu væri sjálf
krafa úthlutað til sömu verktaka
ár eftir ár?
Fiskimiðin gáfu af sér 40 millj
arða í hreinan arð 2011 og af
þessu fengu útgerðarmenn 38
milljarða en þjóðin tvo. Hlutfallið
er 5/95, eiganda auðlindarinnar,
þ.e. þjóðinni, í óhag. Útgerðin
segir auðlindagjald ekki mega
vera hærra. Í Noregi er þetta
hlutfall 50/50. Íslenzkir útgerðar
menn eru hinsvegar ósmeykir að
rukka aðra sjómenn um auð
linda gjald í hlutfallinu 20/80,
sjálfum sér í vil. Svo
búa þeir til loft bólu
hagkerfi í samvinnu
við bankastofnanir og
nota til þess veiði
réttinn. Er þá ekki gert
ráð fyrr úthlutun veiði
réttarins til eins árs í
senn eins og stendur í
lögum um stjórn fisk
veiða heldur slá þeir
einfaldlega eign sinni á
veiðiréttinn.
Sumir halda því fram að
ofangreint fyrir komu lag sé svo
hag kvæmt að ekki borgi sig að
breyta því. En hvern ig er hægt að
sann reyna slíkt þegar aðrir kom
ast aldrei að?
Lýðræðisvaktin vill stöðva
þetta einokunaraðgengi og
stjórn ar skrárverja þjóðareign
auð linda sem og nýtingu þeirra.
Þannig getum við tryggt að allir
sitji við sama borð.
Höfundur er læknir og
frambjóðandi Lýðræðis
vaktar innar í SVjördæmi.
Öll við sama borð
Lýður
Árnason
Í janúar 2008 keypti ungt par,
Barbara Rut Bergþórsdóttir og
Einar Þór Steinarsson góða
kjallaraíbúð að Fögrukinn 5.
Íbúðin var gerð upp, allt rifið út
og íbúðin varð hin glæsilegasta.
Hvergi bar á raka eða voru
ummerki um raka og unga
parið flutti inn.
Ekki hægt að ganga þurrum
fótum í íbúðinni
Sama vetur og endurnýjun
íbúðarinnar fór fram var unnið
að jarðvegsskiptum og endur
nýjun á öllum lögnum í Fögru
kinn og fljótlega eftir að flutt
var inn fór að bera á raka
skemmd um í litlum millivegg
inn í miðju húsi. Hann ágerðist
svo víðar í íbúðinni og brátt fór
svo að ekki var hægt að ganga
um þurrum fótum. Íbúðin var
orðin óíbúðarhæf og unga parið
flutti út.
Tryggingarfélag og pípu
lagningarmenn yfirfóru lagnir
sem allar reyndust í lagi. Í
byrjun júlí 2011 var grafið upp
ofan við húsið og við hliðar
þess og vönduð drenlögn lögð
en allt kom fyrir ekki. Vatnslind
hafði myndast undir húsinu.
Starfsmenn bæjarins höfðu
verið kallaðir til því neðan
jarðarvatnsrásir eru þekktar í
hverfinu og líkur voru leiddar
að því að gatnaframkvæmdirnar
hefðu breytt vatnsstraumi svo
hann færi beint að húsinu.
Í febrúar 2012 er leitað ásjár
hjá bæjarstjóra og í mars vísar
bæjarlögmaður á Sjóvá, trygg
ingarfélag bæjarins. Ítrekað er
sent á bæjarstjóra og eftir
bæjarstjóraskipti berst svar og
þau látin setja sig í formleg
samskipti við Sjóvá sem þau
gera og í október berst úr skurð
ur frá Sjóvá sem neitar ábyrgð
og segir verkið unnið í samræmi
við lög og almenn viðmið og
bærinn hafi ekki fallist á að
jarðvatn sem gæti hafa færst til
við framkvæmdina væri
meginorsök tjónsins.
Í nóvember er fundað með
lögfræðingum bæjarins og
óskir um úrbætur ítrekaðar og
óskað eftir að fá íbúð á vegum
bæjarins eða að fá fasteignagjöld
felld niður. Ekki var tekið vel í
það en fallist á að óháður mats
maður verði fenginn á kostnað
bæjar ins til að meta ástandið.
Kraf ist var undir skriftar íbúa til
staðfestingar á að matið myndi
ekki fela í sér skaðabótaskyldu
bæjarins.
Vatnsstreymi vegna
gatnaframkvæmda
Í minnisblaði frá verk
fræðistofunni Mannviti í lok
mars 2013 þar sem kemur m.a.
fram að vatn mælist í holum
sem grafnar hafa verið innan
dyra frá 33 til 51 cm frá gólf
yfirborði. Endurteknar mæl
ingar sýndu engar breyt ingar.
Líklegasta skýringin á breyt
ingu á vatnsstreymi undir hús
inu sé sú að við gatna fram
kvæmdir hafi burðarefni sem
hafi verið í götunni verið það
þétt að vatn hafi runnið eftir
götunni en eftir framkvæmdir
renni það óhindrað í gegnum
götuna og inn á lóðina. Er sagt
að steypa eins og notuð hafi
verið í gólfið árið 1952 geti
verið allt að 1 ár að þorna!
Farið í mál!
Eftir að hafa fengið þetta
minnisblað frá verkfræði stof
unni óskuðu ungu hjónin eftir
úrlausnum frá Hafnar fjarðar bæ
en 10. apríl sl. benti lög mað ur
bæjarins þeim á að fara í mál
við bæinn.
Finnst þeim viðbrögðin sem
þau hafa fengið hafa verið harka
leg, ekkert sé reynt að leið beina
þeim og aðstoða, held ur þau
hvött út í dýr málaferli.
Fordæmi séu fyrir að bærinn
hafi tekið þátt í kostnaði vegna
leka í húsnæði að Hverfisgötu
28 og því þykir þeim undarlegt
að bærinn viðurkenni ekki að
tjónið sé komið til vegna gatna
framkvæmdanna og eðlilegt sé
að bærinn taki þátt í kostnaði
vegna tjónsins.
Unga fólkið býður enn lausna
og vonast enn eftir jákvæðu
útspili frá bæjaryfirvöldum.
Með vatnselg undir húsinu
Óíbúðarhæf kjallaraíbúð eftir að gatan var endurnýjuð
Íbúðin glæsileg eftir endurgerð – en þá birtist rakinn.
Barbara Rut er ósátt við
aðkomu bæjaryfirvalda.
Í öllum holunum er vatn – 3351 cm frá yfirborði.
Þau keyptu sér kjallaraíbúð í góðu húsi í rótgrónu góðu hverfi.
Brunndæla er búin að dæla
gríðarlegu magni en vatnið
stígur alltaf á ný.
Kvöldið fyrir
sumardaginn fyrsta!
Nú er vetrarstarfi félagsins að ljúka og því
mun hið árlega lokakvöld verða haldið
miðvikudaginn 24. apríl.
Gestur kvöldsins verður Gunnar Helgason
leikari og veiðimaður. Auðvitað verður svo
happadrættið á sínum stað.
Allir velkomnir og félagar
takið endilega með ykkur gesti.
Fræðslu og skemmtinefnd
Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar
Stangaveiðifélag
Hafnarfjarðar
www.svh.is • Flatahrauni 29
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Net tekið um borð við Óseyrarbryggju.