Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Síða 24

Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Síða 24
24 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 24. apríl 2013 Gleðilegt sumar kæru bæjarbúar! Dalshrauni 11 S. 555-2215 Hafnfirska fréttablaðið www.fjardarposturinn.is Reykjavíkurvegi 64 • www.hlif.is Dalshrauni 24 • www.steinmark.is Strandgötu 11 • www.vg.is Lækjargötu 34a • www.stodtaekni.is www.hraunbuar.is • 565 0900 Útilífsskóli Hraunbúa Hraunvallaskóli tók um miðjan apríl í fyrsta sinn þátt í Íslandsmóti barnaskólasveita í skólaskák og lenti í 3. sæti með 23 vinninga. Fyrir skólann kepptu þeir Brynjar Bjarkason, Helgi Svanberg Jónsson, Burkni Björnsson og Þorsteinn Emil Jónsson. Brynjar, Helgi og Burkni eru allir fæddir árið 2001 en Þorsteinn Emil árið 2004. Þetta var glæsilegur árangur hjá strákunum í móti með næst mestu þátttöku frá upphafi, en alls tóku 45 lið þátt. Enda spurðu menn ­ Hvaðan komu þessir? Verð launin sem þeir hlutu fyrir utan bronsið var frír aðgangur á Árna messu sem fram fór í Stykkishólmi viku eftir mótið. Í 3. sæti á Íslandsmóti í skólaskák Hraunvallaskóli með eina af bestu barnaskólasveitum í skák Brynjar Bjarkason, Helgi Svanberg Jónsson, Burkni Björnsson og Þorsteinn Emil Jónsson Ég hef verið spurður að því af hverju ég styðji DÖGUN eitt af þessum nýju framboðum, ástæðan er sú að ég hef fylgst með þessu fólki sem nú hefur safnast saman og myndað þetta pólitíska afl DÖGUN sem er í raun ekki nýtt afl. Þarna hafa samein­ ast eldhugar úr ýmsum áttum sem öll hafa það eina markmið að gera Ísland að betri stað að búa á fyrir okkur sem höfum farið höllum fæti undir stjórn pólitískra afla sem hugsa mest um innri burð ar viði en minna um hags­ muni okkar sem búum landið. Ég virði það að þau sem standa að DÖGUN hafa af mikilli óeigingirni staðið vaktina eftir „hrun“ fyrir þá sem minna meiga sín, þau hafa staðið að mót mæla­ fundum, safnað undir skrift um gegn samþykki á Icesave, barist gegn kvótakerfinu og birt greinagerðir og rök gegn því óréttlæti sem fólk hefur orðið fyrir af aðgerðum eða aðgerðar­ leysi stjórnvalda, þetta er fólkið sem á málefnalegan hátt hefur staðið vaktina fyrir okkur sem viljum búa á Íslandi og halda því í byggð fyrir afkomendur okkar. Nú hefur fólkið á bak við DÖGUN unnið saman í meira en ár og sett saman stefnuskrá sem tekur á þeim mál­ efnum sem mér hugn­ ast og hefur lausnir að málum sem varða mína hags muni og þeirra sem vilja Íslandi og Íslend ing um ásættan­ lega fram tíð, þetta er hópur sem hefur bakgrunn og reynslu til að sitja á þingi og vinna þjóðinni til heilla, ef þeim er akkur í því að nýta mína krafta og að fá nafn ið mitt á framboðs­ lista þá er það vel kom ið, ég met mikils það sem vel er gert og þegar það er gert af einlægni. Þegar stórt er spurt er LÝЭ RÆÐI svarið. Höfundur er í 8. sæti á lista Dögunar. Af hverju DÖGUN? Ægir Björgvinsson Á tónleikum Þrastanna í Víðistaðakirkju á sunnudaginn voru landalögin leikin, ein kenn­ is lög hinna ýmsu sveita og nutu tónleikagestir einstakrar leið­ sagnar Gísla Einarssonar sem kom fram í nýrri lopapeysu eftir hvert lag og voru þau ekki fá. Þegar Gísli ætlaði að geysast með kórinn í enn einn afkimann risu Lionsmenn á fætur og stöðvuðu allar söngáætlanir. Birtust þeir með hinn forláta Gaflara sem sat á trjábúti úr Hellisgerði en hann er einkenni Gaflara Hafnarfjarðar sem Lionsmenn útnefna á hverju ári. Í tilefni 101 árs sögu kórsins útnefndu þeir Karlakórinn Þresti sem Gaflara ársins 2013 og geta því kórfélagar, hafn firskir sem aðrir og fæddir í heimahúsi í Hafnarfirði sem annars staðar kallað sig Gaflara í heilt ár. Annars var kirkjan þéttsetin og hlýddu menn hugfangnir á lög landans og ekki síst frá­ sagnir og góðlátlegt grín Gísla Einarssonar sem fékk tónleika­ gesti oftar en ekki til að detta í góðlátlegan hlátur. Gaflari ársins eru Þrestir Lionsklúbbur Hafnarfjarðar útnefndi Karlakórinn Þresti Björgúlfur Þorsteinsson, formaður Lionsklúbbs Hafnarfjarðar, Jón Trausti Harðarson, formaður Þrasta og Gissur Júní Kristjánsson frá Lionsklúbbnum. Lopaklæddur Gísli með „söng­ mönnum í mörgæsabúningum“. Ein af mörgum lopapeysunum. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Sjö íþróttamenn frá Firði, íþróttafélagi fatlaðra í Hafnar­ firði, urðu Íslandsmeistarar um helgina á Íslandsmóti Íþrótta­ sambands fatlaðra í sundi sem haldið var í Laugardalslaug um helg ina. Að auki setti boð sundssveit kvenna nýtt Íslandsmet í 4x100 metra fjórsundi. Sveitina skip­ uðu þær Kristín Ágústa Jóns­ dóttir, Þóra María Fransdóttir, Aníta Ósk Hrafnsdóttir og Kolbrún Alda Stefánsdóttir. Þrír sundmenn frá Firði undir búa sig nú af kappi fyrir opna breska sundmeistaramótið sem fer fram 25.­27. apríl í Sheffield á Englandi. En þang­ að fara þau Aníta Ósk Hrafns­ dóttir, Kolbrún Alda Stefáns­ dóttir og Hjörtur Ingvarsson. Íslandsmet og sjö Íslandsmeistarar Hjörtur Ingvarsson er á leið til Englands að keppa.

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.