Prentarinn - 01.03.1987, Page 3

Prentarinn - 01.03.1987, Page 3
Verkafólkið og pólitíkin Þegar þetta er skrifað liggja úrslit alþingiskosninga ekki fyrir og því enn óljósara um myndun ríkisstjórnar í kjölfar þeirra. Áhrif verkafólks á stjórn landsins hafa verið afar takmörkuð um langan tíma, pólitísk áhrif verkalýðs- hreyfingarinnar býsna bágborin. Þetta er slæmt í Ijósi þeirra staðreynda að forsendur þess að þær réttarbætur sem verkalýðshreyfingunni hefur tekist að knýja fram í samningum og í gegnum löggjafarvaldið haldi, eru þær að pólitísk staða verkalýðshreyfingarinnar sé sterk. Það er deginum Ijósara að svo er ekki í dag. Aðgerðir stjórn- valda á nýliðnu kjörtímabili hafa verið svo gerræðislegar í garð verkafólks að ekkert sannar betur veika stöðu hreyf- ingarinnar, enda hefur hún setið aðgerðarlaus hjá. Stjórnvöld hafa bókstaflega getað boðið verkalýðshreyf- ingunni uppá hvað sem er, eins og dæmin sanna. [ kosningunum voru nokkrir í framboði sem jafnframt hafa valist til forsvars innan verkalýðshreyfingarinnar, það sem vekur athygli í þessu sambandi er að þá er að finna á nær öllum framboðslistum. Er ekki einmitt þarna að leita hins pólitíska veikleika? Menn í verkalýðshreyf- ingunni eru að halda að það sé sama í hvaða stjórnmála- flokki þeir hasla sér völl útfrá hagsmunum verkafólks. Staðreyndin er sú að við búum við stéttarskiptingu á (s- landi. Verkafólk getur ekki reitt sig á aðra en sig sjálft og þau pólitísku samtök sem lýsa yfir fullum stuðningi við hagsmuni verkafólks og starfa í samræmi við það. Spurn- ingin ersú, eru þessi pólitísku samtökstarfandi í landinu? Er ekki tímabært að verkalýðshreyfingin taki pólitíkina til alvarlegrar umfjöllunar í því augnamiði að geta varið hagsmuni verkafólks? Mín tillaga er sú að hafist verði handa strax með ráðstefnuhaldi og þrotlausri fræðslu um gildi hins pólitíska starfs í samfélagi sem í eðli sínu er andstætt hagsmunum verkafólks enda við stjórnvölinn handhafar auðsins. Trúnaðarmenn á námskeiði í Ölfusborgum. Á slíkum samkom- um ætti að ræða um pólitíska stöðu verkafólks. Barátta í 90 ár Hátíðarhöldum vegna 90 ára sögu samtaka bóka- gerðarmanna er nú lokið, þau tókust í alla staði afar vel. Okkur bárust margar góðar kveðjur og eru þær þakkaðar heilshugar. Félagsmenn færðu félaginu veglega gjöf, sjónvarp og myndbandstæki. Sérstök ástæða er til þess að fagna þessari gjöf því hún sýnir að samtök okkar eru lifandi og hún sýnir að félagsmenn vilja byggja upp starfið enn betur. Nú skal ný tækni fjölmiðlunar tekin í notkun. Félagsmenn skulu geta komið í nýuppgert félagsheimili sitt og notið fræðslu um hin ólíkustu efni með aðstoð nýrrar tækni. Níutíu ár og við erum enn í stuttbuxunum, þrotlaust, en ánægjulegt starf bíður okkar. Samstaða og aftur samstaða og okkur mun takast að breyta þjóðfélg- inu til hagsbóta fyrir vinnandi fólk. Til hamingju bóka- gerðarmenn. -mes prentprinn I MALGAGN FÉLAGS BOKAGERÐARMANNA PRENTARINN - málgagn Félags bókageröarmanna • Utgefandi FBM, Hverfisgötu 21 • Ritstjóri: Magnús Einar Sigurðsson • Setning, filmu- vinnsla, prentun og bókband: Prentsmiöjan ODDI hf. • Letur: Times og Helvetica • Hönnuöur blaðhauss: Þórleifur Valgaröur Friöriksson. PRENTARINN 3.7/87 3

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.