Prentarinn - 01.03.1987, Síða 4
Yfirlit yfir slarfsemi
FBM1986-1987
Enn setjumst við niður og lítum yfir
liðna tíð. Aðalfundur er æðsta stofnun
félags okkar, þar eru liðnir atburðir
vegnir og metnir, þar leggjum við línur
um starfið framundan. Pað er því aug-
Ijóst hversu mikilvægt það er að félags-
menn taki þátt í störfum aðalfundarins.
Við höfum ekki alltaf verið ánægð með
þátttökuna í aðalfundum samtaka okkar
og stundum hefur þeirri hugmynd verið
hreyft hvort ekki sé eðlilegt að þátttaka
sé tryggð með kosningu fulltrúa frá
hverjum vinnustað, þó fundurinn yrði að
sjálfsögðu opinn öllum öðrum félags-
mönnum jafnframt. Kosning slíkra full-
trúa ætti ef til vill að gilda um alla félags-
fundi, kosningin gæti verið til árs í senn.
Þetta fyrirkomulag mundi tryggja lág-
marks þátttöku á öllum fundum auk þess
sem það mundi endurspegla þær skoðan-
ir sem uppi eru hjá félagsmönnum á
hverjum tíma.
Auk kjarabaráttunnar og allmerkra
kjarasamninga á síðasta starfsári hefur
starfsemin einkennst af tvennu: Endur-
bætur á félagsheimilinu hafa staðið yfir
allan tímann bæði innan húss sem utan
og síðan hefur undirbúningur 90 ára af-
mælis samtaka okkar tekið sinn tíma.
Vissulega hefur margt annað skipað veg-
legan sess og verður vikið að því í þessu
yfirliti. Á síðasta aðalfundi var undir-
strikað hversu mikilvægt hlutverk verka-
lýðsfélagsins er á tímum þegar harðnar á
dalnum og fólk lendir í efnahagslegum
þrengingum, á vonarvöl. Þetta er því
miður ástæða til að árétta hér og nú. Fé-
lagsmenn FBM hafa ekki frekar en ann-
að verkafólk farið varhluta af þeim álög-
um sem stjórnvöld hafa lagt á fólk. í því
sambandi hefur fólk að sjálfsögðu oft
leitað til félagsins og er ánægjulegt til
þess að vita að oft hefur tekist að greiða
götu þess bæði í raunverulegri merkingu
sem og í andlegri. Svo sem vikið er að í
leiðara þessa blaðs er ljóst að verkalýðs-
hreyfingin ber hér sína ábvrgð. Staða
hennar hefur verið veik og þeir sem í for-
svari eru hafa ekki gert það sem þurfti til
Ársreikningar FBM og sjóða í
vörslu þess árið 1986
ÁRITUN ENDURSKOÐENDA :
Ársreikning þennan fyrir Félag bókageróarmanna og sjóói i vörslu þess
hefi ég endurskoóaó. Ársreikningurinn hefur aó geyma rekstrarreikning árs-
ins 1986 fyrir Félag bókageróarmanna, Sjúkrasjóó bókageróarmanna og Fræóslu-
sjóó FBM, efnahagsreikninga 31.12.1986, fjármagnsstreymi ársins 1986 fyrir
sömu aóila og skýringar nr. 1 - 17.
Vió framkvæmd endurskoóunarinnar voru geróar þær kannanir á bókhaldi
og bókhaldsgögnum, sem ég taldi nauósynlegar.
Þaó er álit mitt aó ársreikningurinn sé í samræmi vió lög félagsins og
góóa reikningsskilavenju og gefi glögga mynd af rekstri félagsins og sjóó-
anna á árinu 1986, fjárhagsstöóu hinn 31.desember 1986 og breytingu á hreinu
veltufé árió 1986.
Reykjavik, 26.mars 1987.
ENDURSKOÐUNARSKRIFSTOFAN HF.
rlnar M. Erlingsson,
löggiltur endurskoóandi.
Vió undirritaóir, kjörnir endurskoóendur Félags bókageróarmanna, höfum
yfirfarió ársreikning félagsins og sjóóa i vörslu þess fyrir árió 1986, höfum
ekkert fundió athugavert og leggjum til aó hann verói samþykktur.
ÁRITUN STJÓRNAR :
Reykjavík, 1987.
Reykjavik, 1987.
1 stjórn Félags bókageróarmanna,
4
PRENTARINN 3.7.'87