Prentarinn - 01.03.1987, Page 17
Prentformagerð, prentun og bókband.
Með sameiningu iðngreina eins og nú
stendur fyrir dyrum hjá okkur erum við
að stíga heilladrjúgt skref í þá átt að
tryggja að bókagerðarmenn séu ávallt
þeir hæfustu til að fást við gerð prent-
gripa. Samhliða þessum sameigingum
iðngreina hefur átt sér stað stöðug um-
ræða um aðlögun námsins og er ýmislegt
sem bendir til þess að hægt verði að
koma því kerfi á í skólanum að námið sé í
stöðugri endurnýjun. í því sambandi er
bæði horft til samvinnu skólans og at-
vinnurekstrar og markvissrar náms-
gagnagerðar, en þar mun fræðslusjóður-
inn skipa stórt hlutverk, sem leiðandi afl.
Atvinnuöryggið verður þó ekki einungis
tryggt með öflugri grunnmenntun. Huga
verður sérstaklega að uppbyggingu end-
urmenntunarinnar, hún verður að vera
stöðug og í takt við tímann. í því sam-
bandi bindum við jafnframt miklar vonir
við Fræðslusjóðinn, en fleira verður þó
að koma til, svo sem velvilji og skilning-
ur skóla og þess opinbera.
Atvinnureksturinn, bókagerðarfyrir-
tækin, verða líka að leggja sitt af mörk-
um í endurmenntunarmálunum. Fyrir-
tækin hafa vissar skyldur samkvæmt
samningum gagnvart sínu starfsfólki, en
fleira verður að koma til. Þau verða að
vera tilbúin til að taka þátt í endur-
menntuninni með því að leggja fram
tækjakost sinn. Ógerningur er að ætla að
skólinn geti keypt inn allar þær tækninýj-
ungar sem á markaðinn berast og er því
óhjákvæmilegt annað en að fyrirtækin
leggi hér lið. Ánægjulegt er til þess að
vita að sum þeirra hafa þegar lýst yfir
fullum vilja í þessu sambandi. Dæmi um
slíka samvinnu er þegar að finna á ný-
liðnu starfsári, en þá fór fram námskeið í
bókbandi í bókbandssal ísafoldarprent-
smiðju. Þó ísafold hafi þarna verið ein
með á síðasta starfsári er rétt að taka
fram að margar aðrar prentsmiðjur voru
reiðubúnar og verður það örugglega nýtt
á næstunni.
Ef við höldum áfram á þeirri braut
Ársreikníngur Lífeyrissjóðs
bókageröarmanna
ÁRITUN ENDURSKOÐENDA :
Ársreikning þennan fyrir Lífeyrissjóö bókagerðarmanna hefi ég endur-
skoðað. Ársreikningurinn hefur að geyma yfirlit um breytingar á hreinni
eign fyrir árið 1986, efnahagsreikning hinn 31.desember 1986, fjármagns-
streymi ársins 1986 ásamt skýringum og sundurliðunum nr. 1 - 23.
Við framkvæmd endurskoðunarinnar voru gerðar þær kannanir á bókhaldi
og bókhaldsgögnum, sem ég taldi nauðsynlegar.
Pað er álit mitt, að ársreikningurinn sé gerður í samræmi við lög og
góða reikningsski1avenju og gefi glögga mynd af rekstri LÍfeyrissjóðs bóka-
gerðarmanna á árinu 1986, fjárhagsstöðu hans 31.desember 1986 og breytingu
á hreinu veltufé árið 1986.
Reykjavík, 25.febrúar 1987.
ENDURSKOÐUNARSKRIFSTOFAN HF.,
löggiltur endurskoðandi.
Við undirritaðir, kjörnir endurskoðendur Lífeyrissjóðs bókagerðarmanna,
höfum yfirfarið ársreikning sjóðsins tyrir árið 1986 og leggjum til að hann
verði samþykktur.
Reykjavík, ty 1987.
ÁRITUN STJÓRNAR :
Stjórn Lifeyrissjóðs bókagerðarmanna staðfestir hér með ársreikning
sjóðsins fyrir árið 1986 með undirritun sinni.
Reykjavik, á3. wLv**• ^ 1987.
j^onrrtiö^- 73/
arnaScrL'
PRENTARINN 3.7.'87
17