Prentarinn - 01.03.1987, Blaðsíða 19
að sá kostnaður sé vel þess virði miðað
við þær lagfæringar sem gerðar hafa ver-
ið. Nú er loksins komin afar aðlaðandi
aðstaða í húsi okkar til þess að halda úti
öflugu félagslífi á heimaslóð, hvort held-
ur við erum að tala um fundi ellegar
fræðslu- og skemmtistarf. Ástæða er til
þess að hvetja félagsmenn til að taka þátt
í þeirri starfsemi sem ætlunin er að halda
úti í félagsheimilinu.
Að lokum
í þessu yfirliti hefur verið drepið á
stærstu málaflokka sem við höfum verið
að fást við á nýliðnu starfsári. Málin eru
að sjálfsögðu mun fleiri og munu sum
þeirra sjálfsagt verða til umfjöllunar á
aðalfundinum. Til þess þó að félags-
menn geti til fulls áttað sig á öllum störf-
um sem félagið fæst við verða menn að
kynna sér fundargerðarbækur og kann-
ski ekki síður verða virkari þátttakendur
í starfseminni sem beint er út til félags-
manna auk þess sem allt frumkvæði ein-
stakra félagsmanna til aukins félagslífs er
af því góða.
Næsta ár mun einkennast af réttinda-
baráttunni, samningar eru lausir um ára-
mót. Við ætlum okkur að byggja upp
raunhæfa kauptaxta og við ætlum okkur
að tryggja lífvænlegar dagvinnutekjur.
Við ætlum okkur að ná til baka þeim
kaupmætti sem við höfum bestan búið
við og helst auka hann. Forsendur þess
að okkur takist að vinna lönd, ná mann-
sæmandi kjörum er undir samstöðu okk-
ar komið. Við þurfum nú að treysta inn-
viði félagsins og við þurfum líka að
treysta samstöðu fólks á vinnustöðun-
um. Það er óþolandi að atvinnurekendur
komist upp með að brjóta niður alla sam-
stöðu á vissum vinnustöðum og það er
ekki bara óþolandi útfrá hugsjón sam-
stöðunnar það er jafnframt staðreynd að
samstöðuleysið bitnar á kjörum fólks á
þessum vinnustöðum. Pessu verðum við
að snúa við og átta okkur til fulls á gildi
EFNAHAGSRE I K N I N G U R
E i g n i r : Skýring 1986 1985
Veltufjármunir : Sjóóur og bankainnstæóur :
Sjóóur 170.577 984.567
Bankainnstæóur, óbundnar 9 16.155.754 8.399.899
Sjóóur og bankainnstæóur 16.326.331 9.384.466
Skammtimakröfur :
Vixlar 2.016.160 1.272.675
Iógjöld, útistandandi 11.903.798 8.409.393
Fyrirframgreióslur 100.860 0
óinnheimtir vextir af skuldabréfum .. 3 4.570.511 3.697.839
Bankainnstæöur, bundnar 4.976.681 804.984
Skammtimakröfur 23.568.010 14.184.891
Veltufjármunir 39.894.341 23.569.357
Fastafjármunir :
Langtímakröfur : Skuldabréf sjóösfélaga, óverótryggó . 3 11 2.515.642 3.168.388
Skuldabréf sjóósfélaga, verötryggö
(nv. 65.156.945) 130.477.794 112.977.691
Skuldabréf annara, verðtryggó
(nv. 19.384.872) 13 20.968.635 15.867.080
Spariskírteini rikissjóós,
(nv. 22.000.000) 4 24.698.449 3.410.520
Skuldabréf Byggingarsjóós rikisins.
(nv. 30.819.312) 20 101.724.215 94.564.944
Skuldabréf Framkvæmdasjóös islands
(nv. 2.949.715) 21 25.527.945 24.476.290
Skuldabréf Byggingarsjóós verkamanna
(nv. 7.250.485) 22 11.703.676 11.013.433
Skuldabréf Ríkissjóös íslands
(nv. 10.000.000) 23 10.513.521 0
Langtimakröfur 328.129.877 265.478.346
Varanlegir rekstrarfjármunir :
Húsgögn, áhöld 14 76.707 69.939
Varanlegir rekstrarfjárm. 76.707 69.939
Fastafjármunir 328.206.584 265.548.285
EIGNIR ALLS 368.100.925 289.117.642
PRENTARINN 3.7.’87
19