Prentarinn - 01.03.1987, Blaðsíða 21

Prentarinn - 01.03.1987, Blaðsíða 21
Skýrsla bókasafnsnefndar Frá síðustu ársskýrslu bókasafnsnefndar í 2. tbl. Prentarans 1986 er helst frá því að segja, að safninu hafa borist góðar bóka- gjafir. Auk þess hefur það keypt nokkuð af fagbókum. Vísast til bókasafnsfrétta um það efni í 1. tbl. Prentarans 1987. Auk þeirra bóka sem þar er getið, hafa safninu borist tvö viðbótarbindi af þjóð- sögum Sigfúsar Sigfússonar frá bóka- útgáfunni Þjóðsögu. Þá hafa því borist íslensku tímaritin fyrir árið 1986. Félagið á nú tvö heil eintök af Prentar- anum gamla og að sjálfsögðu hinum nýja, sem nú er orðinn 7 ára gamall. Er hvorttveggja í bandi. Að öðru leyti hefur lítið verið bundið af bókum á síðasta ári. Auk skráningar á viðbót safnsins var ráðist í að greina og búa um skjalasögu Bókbindarafélagsins og Grafiska sveina- félagsins og fyrir þá vinnu var greitt af fé bókasafnsins. Er þá eftir að vinna skjala- safn Prentarafélagsins, sem er mest að vöxtum og að sjálfsögðu fjárfrekast. Bókasafnsnefnd hefur enn ekki ákveðið hvort það verður unnið í áföngum eða í einni lotu, en það ræðst af því hvað bóka- safninu verður ætlað mikið fé til umráða. Þau verkefni sem nú blasa við eru fyrst og fremst skráning nýrra bóka, ma. bókaarfs Þórðar Pálssonar, aukin vinna við myndasafn félagsins o.m.fl. Reynt verður sem fyrr að fylla í eyður íslenskra ritraða og halda áfram að gera innkaup í erlendum fagbókum. Þótt aflað hafi verið nokkurra mynd- banda um fagleg efni, er nauðsynlegt að bæta þar um betur. Koma þar til nota hinar stórmyndarlegu gjafir frá félags- fólki í FBM í tilefni af 90 ára afmæli sam- taka bókagerðarmanna, sjónvarp og myndband, auk hinnar verðmætu gjafar prentsmiðjueigenda, sem er mynda- tökuvél fyrir ofangreind tæki. Vissulega ættu þessi tæki að verða okkur hvatning til að afla meira fræðsluefnis um hinar fjölmörgu nýjungar, sem eru að gerast á sviði bókagerðar. Hinar ágætu og miklu breytingar, sem nú hafa verið gerðar á húsi FBM og fé- lagsheimilinu ættu að koma öllu okkar félagsstarfi til góða. Og ekki er um að tala, þótt hinar háværu framfarir hafi raskað störfum bókasafnsins um alllangt skeið. Skilyrði ættu nú að vera fyrir hendi til að efla fræðslu- og menningar- starf félagsins að miklum mun. - Bókasafnsnefnd. PRENTARINN 3.7.'87 21

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.