Prentarinn - 01.03.1987, Side 22
Undir merki
vonarinnar. . .
Hvenær sem Amnesty International samtökunum berast
fregnir af pólitískum föngum eöa af fólki sem eigi yfir höföi
sér pyntingar eða dauðarefsingu einbeita þau sér fyrst að
því að kanna öll málsatvik.
Á alþjóðaskrifstofunni safna rannsóknarmenn öllum fá-
anlegum upplýsingum og sannreyna þær í smáatriðum til
að fá rétta mynd af þeim sem í hlut eiga og komast að
raun um hvernig og hversvegna þetta fólk hefur verið
handtekið. Því næst eru hafnar aðgerðir til hjálpar föng-
unum.
Ef í ljós kemur að fórnarlömbin séu
samviskufangar eru hin einstöku mál
falin einum eða fleiri hópum sem starfa
innan samtakanna um allan heim.
Hóparnir — en í þeim eru meðlimir
Amnesty International á hverjum stað
— rannsaka baksvið atburðanna, en að
því loknu er tekið til við að skrifa bréf
til viðkomandi ríkisstjórna með tilmæl-
um um að fangarnir verði þegar látnir
lausir án skilyrða.
Petta verk tekur marga mánuði og
oft mörg ár. Hvert bréfið á eftir öðru
fer til ýmissa ráðherra og fangelsis-
stjóra. Meðlimirnir reyna að fá fjöl-
miðla í sínu heimalandi til að vekja
athygli á samviskuföngum þeim sem
þeir hafa tekið að sér. Þeir ræða við
hlutaðeigandi erlent sendiráð eða versl-
unarfulltrúa í landi sínu. Þeir fá þjóð-
kunna menn til að undirrita áskoranir.
Ef þeim tekst að ná sambandi við fjöl-
skyldu fangans gefst kostur á að senda
honum gjafapakka og hefja bréfasam-
band við hann.
Þegar póhtískar fjöldahandtökur eiga
sér stað kann að vera útilokað að fá
vitneskju um hvern fanga fyrir sig. En
þar sem menn eru handteknir af póli-
tískum ástæðum hvetur Amnesty Int-
ernational stjórnvöldin til að virða rétt
þeirra til réttlátrar og skjótrar máls-
meðferðar fyrir dómstólum. Meðlimir
um heim allan berjast fyrir máli slíkra
fanga sem margir hverjir hafa verið
hafðir í haldi um langt árabil.
Samtökin Amnesty International
berjast einnig fyrir afnámi pyntinga og
dauðarefsingar hvaða fanga sem í hlut
eiga. í þessu felst m. a. að reyna að
koma í veg fyrir pyntingar og líflát þeg-
ar fólk hefur verið flutt í illræmdar
pyntingarstöðvar eða dæmt til dauða.
Þegar um slík mál er að ræða er sjálf-
boðaliðum í tugum ríkja gert viðvart,
og innan nokkurra klukkustunda byrja
símskeyti og áskoranir að streyma til
viðkomandi ríkisstjórna, fangelsa eða
fangabúða.
Hver er árangurinn?
Póstkorta-, símskeyta- og pakka-
sendingar komast raunverulega til
skila. Svarbréf berast út, og hefur
mörgum þeirra verið smyglað út úr
fangeslunum eða framhjá ritskoðurum
á flugvöllum.
í sömu viku sem ungur laganemi í
Austur-Evrópulandi hafði verið dæmd-
ur í þriggja ára fangelsi fyrir að safna
undirskriftum um frelsun pólitískra
fanga skrifaði faðir hans til Amnesty
International:
Áskorunin frá ykkur varð mér mikil
uppörvun, því þið hafið kveðið ykkur
hljóðs til varnar syni mínum . . . Amn-
esty International er lýsandi Ijós á okkar
tímum, einkumfyrir þá sem lifa í myrkri
eftir að fangelsisdyrunum er lokað að
baki þeim. Með starfi ykkar og fórnjysi
bregðið þið Ijósi inn í sístœkkandi hring
hinna þjökuðu.
Eitt af ótal mörgum öðrum fórnar-
lömbum var kennari í Rómönsku Am-
eríku. Meðan verið var að pynta hann
hjá lögreglunni var símasamband opn-
að milli heimilis fangans og pyntinga-
klefans, og eiginkona hans neydd til að
hlusta á sársaukaóp manns síns. Við
þessa þolraun lést hún af hjartaslagi.
Fanginn sjálfur lifði af prísundina og
fékk um síðir að fara í útlegð ásamt
börnum sínum. Hann skrifaði okkur:
Þeir drápu konu mína. Þeir hefðu einnig
drepið mig, en þið gripuð í taumana og
björguðu lífi mínu.
Sumir fangar eru látnir lausir
skömmu eftir að mál þeirra hefur verið
tekið fyrir, sumir losna þegar veitt er
almenn sakaruppgjöf, aðrir þurfa að
taka út refsitímann að fullu áður en þeir
öðlast aftur frelsi. Amnesty Internatio-
nal samtökin staðhæfa samt aldrei að
það sé þeim að þakka að nokkur fangi
sé látinn laus, jafnvel þótt þau hafi
rannsakað mál fangans og barist fyrir
frelsun hans. En hafi Amnesty Inter-
national tekið að sér mál einhvers sam-
viskufanga er tökunum aldrei sleppt.
Hreyfingin er orðin að líflínu, - sam-
tökum undir merki vonarinnar, sam-
tökum fyrir alla sem eru reiðubúnir að
berjast fyrir mannlegri reisn. Hún hefur
sannað að venjulegt fólk geti starfað
saman á ópólitískum grundvelli að því
markmiði að hamla á móti óhæfuverk-
um harðstjóranna.
í hverju felst sú hagnýta
aðstoð sem föngunum er
veitt?
Amnesty International leitast við að
veita þeim föngum sem það hefur tekið
að sér raunverulega hjálp. Mikilvægt er
að heimurinn fái vitneskju um hinar
erfiðu aðstæður fanganna. Einnig þarf
stöðugur straumur af bréfum og áskor-
unum að berast til hlutaðeigandi
stjórnvalda. Nefndir frá Amnesty Inter-
national eiga oft viðtöl við fanga og
taka stundum með sér lækni til að rann-
saka þá sem hafa sætt pyntingum.
Læknahópar Amnesty International
22
PRENTARINN 3.7.'87