Verktækni - 01.09.1995, Blaðsíða 1

Verktækni - 01.09.1995, Blaðsíða 1
VERKTÆKNI Stéttarfélag verkfræðinga • Tæknifræðingafélag Islands • Verkfræðingafélag Islands • 1. tbl. 1. árg. sept. 1995 Samið við ríki og Reykjavíkurborg Samningar Stéttarfélags verk- fræðinga og Kjarafélags tækni- fræðinga við ríki og Reykja- víkurborg voru undirritaðir þann fyrsta september síðastliðinn. Samningur þessi er hinn fyrsti sem gerður er sameiginlega milli allra þessara aðila. I honum felst samræming á stöðuheitum verkfræðinga og tæknifræðinga og röðun í launaflokka. Mikillar óánægju gætir hjá verkfræðingum og tæknifræð- ingum hjá Reykjavíkurborg vegna meðallauna þeirra í samanburði við þá sem starfa hjá ríkinu, að ekki sé talað unr annan markað. Þetta er augljóst hverjunr þeim er rýnir í kjarakönnun SV. Var því tvísýnt um niðurstöður atkvæða- greiðslna um samninginn, bæði hjá verk- og tæknifræðingum hjá borginni þar sem ekkert miðaði að viti í samræmingarátt við stöðu launantála hjá ríki. Saniningurinn var þó samþykktur með meirihluta atkvæða hjá báðum félögunum. A fundi verkfræðinga hjá Reykjavíkurborg komu ennfrem- ur fram óskir um enn meiri samræmingu í framkvæmd atkvæðagreiðslu tæknimannanna hjá borginni þannig að auðveld- ara væri að fjalla um samningana og greiða um þá atkvæði. A fundi verkfræðinga hjá ríkinu lýstu margir fundarmenn furðu sinni á framkomu samninganefnd- ar ríkisins og þess dráttar senr hefði orðið á samningi. Kom fram hjá samninganefnd SV að krafa hefði verið lögð fram í febrúar síðastliðnum en formleg viðbrögð voru lítil af hálfu ríkisins. Samn- inganefnd ríkisins lagði nokkrunr sinnum franr eins konar gagntilboð sem voru þannig úr garði gerð að í þeim voru villur, þau illa frágeng- in og í raun ekki nothæf plögg. Það var síðan þann 31. ágúst að eitthvað fór að miða á þessum fundum og kom þá í ljós að ekki yrði skrifað undir samning nenra gildistími væri frá undirskriftar- degi! Atti með þessu líklega að reyna að pressa samningamenn til hlýðni. Hækkun sem aðrir höfðu fengið fyrr á árinu stóð því okkar mönnum hjá ríki og Reykjavíkur- borg ekki til boða. Þó fór svo að samningur var undirritaður þann I. september eins og áður segir og skrifuðu allir viðstaddir samningamenn undir samninginn. Vegna samræmingarinnar er hækkun launa vegna samningsins nokkuð misjöfn en liggur á bilinu 9-10%. Hækkunin var í víð meiri hjá tæknifræðingum en verkfræð- ingum og almennt meiri hjá Reykjavíkurborg. í aðalatriðum þá er hækkun launatöflu 2,8%, stöðuheiti til og með yfirverkfræðingur 2 hækka um einn launaflokk hjá verkfræðingum en samsvarandi I -2 hjá tæknifræðingunr. Einnig er 3% hækkun um næstu áramót. Eins og áður segir er hækkun launa vegna samningsins á bilinu 9 - 10%. Jónas G. Jónasson Framkvœmdastjóri SV Viltu nálgast tæknimennina? ■ Auglýstu þá í VERKTÆKNI VERKTÆKNI er sameiginlegt fréttablað verkfræðinga og tæknifræðinga. Að útgáfunni standa Verkfræðingafélag íslands, Stéttarfélag verkfræð- inga og Tæknifræðingafélag Islands, en Lífeyrissjóður verkfræðinga og Félag ráðgjafarverkfræðinga styðja einnig útgáfuna. Félögin eru blaðinu sterkur málefnalegur og fjárhagslegur bakhjarl, sem tryggir reglulega og stöðuga útgáfu þess. VERKTÆKNI er því ekki gefin út í ágóðaskyni en sala auglýsinga er vissulega mikilvægur liður í því að fjár- magna útgáfuna. Verði auglýs- inga er stillt í hóf eins og framast er unnt. Blaðið er gefið út í 2500 eintökum og er dreift án endurgjalds til allra félagsmanna fyrrgreindra félaga. Þannig er ljóst að blaðið berst reglulega til næstum allra íslenskra verk- fræðinga og tæknifræðinga. Fyrir marga auglýsendur er þetta verðmætur markhópur og ekki aðgengilegur með öðrum auglýsingamiðlum. Leitið nánari upplýsinga hjá ritstjórn blaðsins í síma: 5688510. Símbréf: 5689703. Tölvupóstur: sv@centrum.is V EINKAVÆÐING I EFTIRLITSIÐNAÐINUM V MARKAÐSSETNING A HUGBUNAÐI V BREYTINGAR HJA IÐNÞROUNARSJOÐI V KJARAMAL V FRÆ FRA STAÐLARAÐI V ij UTSKRIFT I TÆKNISKOLANUM

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.