Verktækni - 01.09.1995, Síða 2
VERKTÆKNI
L E I Ð A R I N N
Sameiginleg útgáfa:
Liður í auknu samstarfi
félaga verkfræðinga og
tæknifræðinga
Flestum þeim, sem starfað hafa að félagsmálum innan
félagasamtaka verkfræðinga og tæknifræðinga, er ljóst
mikilvægi þess að félögin starfi sem allra mest og nánast
saman. Á síðustu árum hafa verið stigin stór skref í þessa
átt. Er stærsta skrefið án efa það að Tæknifræðingafélag
íslands flutti starfsemi sína í húsnæði Verkfræðingafélags
íslands, Verkfræðingahúsið við Engjateig. I
Verkfræðingahúsi höfðu þá þegar Stéttarfélag
verkfræðinga, Félag ráðgjafarverkfræðinga og Líf-
eyrissjóður verkfræðinga aðsetur. Nú er komin nokkur
reynsla á sambúðina og má fullyrða að hún hefur verið til
hagsbóta fyrir alla aðila. Annað mikilvægt skref er stigið
með sameiginlegri útgáfu félaganna á fréttablaði því sem
nú kemur út í fyrsta sinn.
Reynslan af sameiginlegum rekstri skrifstofa félaganna
er sem sagt góð, en spyrja má hvort þar sé kominn
æskilegur „lokapunktur“ eða hvort aðeins sé um að ræða
rökrétt skref í þá átt að sameina félögin. Án efa styður
ýmislegt fyrri kostinn en veigameiri rök eru fyrir þeim
síðari. Þess má geta að þegar hér er talað um sameiningu
er átt við sameiningu Verkfræðingafélags Islands,
Stéttarfélags verkfræðinga og Tæknifræðingafélags
íslands. Þannig myndu verkfræðingar og tæknifræðingar
starfa saman í einu öflugu félagi sem gæti haft yfir
tvöþúsund félagsmenn. Næðist þannig fram veruleg
hagræðing umfram það sem nú er. Leiða má líkur að því
að í félögunum þremur sé oft verið að ræða sömu hlutina
innan sömu fjögurra veggja samtímis og að oft sé verulegt
óhagræði af tvíverknaði og ósamræmi. Svipað hefur
verið uppi á teningnum víða annarsstaðar meðal
hagsmunasamtaka og má þar nefna iðnaðinn og
landbúnaðinn. Rökin fyrir stofnun Samtaka iðnaðarins
og Bændasamtaka Islands voru án efa svipuð og þau rök
sem reifuð eru hér að ofan. Þannig mælir flest með
sameiningu félaga verkfræðinga og tæknifræðinga í eitt
félag. Munurinn á verkfræðingum og tæknifræðingum
liggur að mestu í náminu, bakgrunni, áherslum og lengd
þess. Þar er hins vegar ekki um neinn grundvallarmun að
ræða sem réttlætt getur félagslegan aðskilnað. Þá eiga
kjara- og samningamál án efa heima innan sama félags og
fagmál og almenn hagsmunamál. Kjaramálin eru
hagsmunamál allra verkfræðinga og tæknifræðinga, hvar
í starfi sem þeir eru, sérstaklega ef staðið er að þeim
málaflokki eins og Stéttarfélag verkfræðinga hefur gert
síðasta áratug eða svo.
Hið nýja félag verkfræðinga og tæknifræðinga myndi
sinna brýnustu hagsmunamálum stéttanna, þ.á.m. kjara-
og samningamálum, starfsheitis- og löggildingarmálum,
menntamálum (þ.m.t. endurmenntun), atvinnumálum,
uppbyggingu jákvæðs almenningsálits o.s.frv. Félagið
yrði öflugur málsvari sem færi með HAGSMUNAMÁL í
þess orðs víðasta skilningi. Þá myndi félagið starfrækja
fagfélög og væri vettvangur félagslífs fyrir verkfræðinga
og tæknifræðinga. Innri uppbyggingu félagsins og
sjálfstæði einstakra viðfangsefna þyrfti auðvitað að skoða
vandlega, þannig að allir verkfræðingar og
tæknifræðingar gætu fundið „eitthvað við sitt hæfi“ innan
þess. Þarna mætti nýta sér reynslu Dana af sameiningu
félaganna þar í landi.
F.v. Jónas G. Jónasson framkv.stj. SV, Karl Ómar Jónsson fomi. VFÍ, Sigrún S. Hafstein, Páll Á Jónsson, form. TFÍ
Fylgt úr hlaði
Blað það sem þið nú hafið í
höndunum er afrakstur samstarfs
félagasamtaka verkfræðinga og
tæknifræðinga um útgáfu á
vönduðu fréttablaði. Nafn
blaðsins, VERKTÆKNI, kann að
hljóma kunnuglega í eyrum
sumra, en um er að ræða
algerlega nýja útgáfu, nýtt brot,
útlit og efnistök.
Ritstjóri blaðsins er Sigrún S.
Hafstein og bjóðum við hana
velkomna til starfa. Sigrún sinnir
ritstjórninni í hálfu starfi og hefur
viðveru á skrifstofu félaganna frá
kl. 9 til 12. Við viljum hvetja
félagsmenn til að leggja fram efni
í blaðið og koma með hugmyndir
varðandi efni og efnistök. Með
því móti verður Verktækni lifandi
og áhugaverður miðill.
Verktækni er ætlað að vera
öflugur málsvari verkfræðinga og
tæknifræðinga og miðill fyrir
upplýsingar sem varða þessar
stéttir. Lögð verður áhersla á
fjölbreytt efnistök til að þjóna
ýmsum þörfum og áhugamálum
tæknimanna, sem lítt er sinnt af
hinum almennu fjölmiðlum. Má
þar nefna fréttir af framkvæmd-
um, tækninýjungar, orku- og
umhverfismál, nýjungar í stöðl-
um, reglugerðum o.þ.h., atvinnu-
mál, kjaramál og hagsmunamál
stéttanna í þess orðs víðasta
skilningi. Þá mun blaðið einnig
fjalla um ýmis þjóðfélagsmál sem
stéttir tæknimanna telja sér skyld.
Að útgáfunni standa Verkfræð-
ingafélag Islands, Stéttarfélag
verkfræðinga og Tæknifræðinga-
félag Islands, en Félag ráðgjafar-
verkfræðinga, Lífeyrissjóður
verkfræðinga og Lífeyrissjóður
tæknifræðinga styðja útgáfuna
einnig. Þessir aðilar eru blaðinu
sterkur málefnalegur og fjárhags-
legur bakhjarl, sem tryggir reglu-
lega og stöðuga útgáfu þess.
Blaðið er gefið út í 2200 eintök-
um og er dreift án endurgjalds til
allra félagsmanna fyrrgreindra
félaga.
Það er von okkar að blaðinu
verði vel tekið og að lesendur
verði virkir í þeirri umfjöllun sem
fram fer á síðum þess. Lesendur
eru hér með hvattir til að snúa sér
til ritstjórans með efni og ábend-
ingar, ykkur mun örugglega verða
vel tekið!
Páll A. Jónsson, formaður TFl
Guðrún Olafsdóttir, fonnaður SV
Karl Omar Jónsson, fonnaður VFI
Nýr framkvæmdastjóri
Félags ráðgjafarverkfræðinga
Ráðinn hefur verið nýr
framkvæmdastjóri til Félags
ráðgjafarverkfræðinga í stað
Guðrúnar Zoéga sem gegnt hefur
starfinu síðastliðin 5 1/2 ár.
Magnús Baldursson lögfræðingur
og héraðsdómslögmaður var
ráðinn til starfans frá og með 1.
september s.l. Magiiús er 33 ára
gamall og starfaði áður hjá
Lögmannsstofunni Síðumúla 31,
Reykjavík. Magnús er í 50%
starfi fyrir félagið en mun að auki
sinna verkefnum sem lögmaður á
sama stað. Reglulegur opnunar-
tími skrifstofunnar er frá klukkan
9:30 til 12:00 alla virka daga
nema föstudaga. Sími á skrif-
stofunni er 553 4200 og símbréf
568 9703. Að öllu jöfnu verður
þó hægt að ná í framkvæmda-
stjóra félagsins utan þess tíma á
skrifstofu félagsins að Engjateig
9, Reykjavík.
VERKTÆKNI er gefin út af Verkfræðingafélagi íslands, Stéttarfélagi verkfræðinga og
Tæknifræðingafélagi íslands og er dreift ókeypis til félagsmanna. Upplag blaðsins er 2200 eintök.
Oheimilt er að nota efni úr VERKTÆKNI til birtingar annars staðar án leyfís ritstjórnar eða
greinarhöfunda í þeim tilfellum sem það á við. Skoðanir sem settar eru fram í blaðinu samrýmast ekki
endilega viðhorfum útgefenda.
VERKTÆKNI
Engjateigi 9 • 105 Reykjavík
Sími: 568 8510 • Símbréf: 568 9703
Tölvupóstur: sv@centrum.is
2