Verktækni - 01.08.2002, Blaðsíða 10
AC sfjórnarb<>r4i T?í
10
Frá fundi formanns TFÍ með tæknifræðingum í Vestmannaeyjum.
F.v. Davíð Guðmundsson (Tölvun), ívar Attason (Hitaveita Suður-
nesja), Eyþór Harðarson (ísfélag Vestmannaeyja hf.), Björgvin
Björgvinsson (Teiknistofa PZ).
NITO segir sig úr FEANI
Norska tæknifræðingafél-
gið NITO ákvað í lok
september að tilkynna
stjórn FEANI, evrópusam-
stökum tæknifræðinga og
verkfræðinga, að félagið
hafi ákveðið að segja sig
úr samtökunum frá 1. jan-
úar 2003. Meginástæða
úrsagnarinnar er sögð
vera að FEANI hafi ekki
tekist að vera það samein-
ingartákn tæknimanna í
Evrópu sem markmið geri
ráð fyrir. Þá hafi flutningur
höfuðstöðva FEANI til
Brussel ekki staðið undir
væntingum.TFÍ ogVFÍ eru
aðilar að FEANI og munu ræða stöðu
mála á næstunni. Þess má einnig geta
að norska verkfrærðingafélagið hefur
einnig ákveðið að segja sig úr samtök-
unum.
bndurskoðun á IST 30
TFÍ hefur fengið til umsagnar drög að
endurskoðun ÍST 30 er varðar almenna út-
boðs- og samningsskilmála um verkfram-
kvæmdir. TFI mun fara yfir drögin og
senda inn athuga-
semdir ef þörf verður
Áhugasamir tæknifræðingar, sem vilja
kynna sér drögin, geta haft samband við
Loga Kristjánsson framkvæmdastjóraTFÍ.
Stofnun Vestmanneyjadeildar
TFI í burðaliðnum.
Innan TFI og VFI starfa landshlutadeildir á
Norður- og Austurlandi. Megintilgangur
þessara deilda er að standa fyrir fundum
og öðrum viðburðum er varða hagsmuni
og áhugasvið tæknimanna á þessum
stöðum. Þá má geta þess að 25% af félags-
gjöldum viðkomandi tæknifræðinga renna
til viðkomandi deilda. Á fundi sem for-
maður TFÍ átti nýlega með tæknifræðing-
um íVestmannaeyjum kom fram áhugi á
stofnun slíkrar deildar í Eyjum og var
ákveðið að vinna að stofnun hennar á
næstu vikum. ÍVestmannaeyjum starfa 11
félagsmenn TFÍ.
3óhannes Benediktsson, formaður TFÍ.
Brýr og stólpar
-öruggur styrkleiki brúar biliö
Einingaverksmiðjan er framsækið fyrirtæki sem sérhæfir sig
í framleiðslu forsteyptra eininga. Tækjabúnaður og þekking
gerir okkur kleift að afgreiða stór og smá byggingaverkefni
fljótt og örugglega. Gæði framleiðslunnar er undir stöðugu
eftirliti, bæði innra gæðaeftirliti og opinberu eftirliti
Rannsóknastofnunar Byggingariðnaðarins, svo tryggt sé
að framleiðsluvörur fyrirtækisins uppfylli ávallt ströngustu
kröfur. Við veitum ráðgjöf og aðstoð við útfærslu teikninga
og gerð burðarþolsútreikninga. Auk þess veitum við þjónustu
við stærri framkvæmdir, s.s. flutninga, reistningu, öflun efnis
og leigu búnaðar.
Breiðhöfða 10
110 Reykjavík
Sími: 587 7770
Fax: 587 7775
e-mail: ev@ev.is
www.ev.is
EININGAVERKSMIÐJAN