Verktækni - 01.09.2005, Blaðsíða 4
AC sfjórnarbor4r 5V
Verkfræðingar
hreyfið ykkur!
Það er yfirleitt gaman að vera verkfræð-
ingur þessi misserin. Verkefnin mörg og
skemmtileg. Launaþróun stéttarinnar er þó
almennt úr fasa við ástandið. Verkfræðing-
ar eru greinilega alltof hógværir í launa-
kröfum sínum. Almennt er það þannig að
laun verkfræðinga sveiflast með efnahags-
ástandinu að minnsta kosti ef litið er til
síðustu ára. Það sem hins vegar hefur gerst
nú í uppsveiflu er að launin hafa lítið
hækkað. í því felst mikil mótsögn. Eins og
fram hefur komið í pistlum mínum íVerk-
tækni undanfarið eru nokkrar skýringar á
þessari óheillaþróun. Helst hefur verið
nefnd hagræðing hjá fyrirtækjum, inn-
flutningur á vinnuafli, lítil hreyfing milli
starfa og áhugaleysi verkfræðinga á launa-
málum sínum. Sóknarfærin eru hins vegar
mikil og felast einmitt í tveimur síðasttöldu
þáttunum. Sænska verkfræðingafélagið CF
rekur nú mikinn áróður meðal félags-
manna að þeir hreyfi sig milli starfa.
Launakönnun þeirra leiðir í ljós að fimmti
hver félagsmaður skipti um starf árið 2005.
Laun þeirra sem það gerðu hækkuðu mun
meira en hinna. Ég vil hvetja alla verk-
fræðinga til að gera eittvað í málinu. Ef
launaþróun hjá stétttinni er ekki eðlileg
fælir það ungt fólk frá því að leggja verk-
fræðina fyrir sig.
Árni B.Björnsson, framkvæmdastjóri SV.
Spuming wjána4arins hjá SV:
Hversu langur er
reynslutími ráðningar?
Svar:
Það er lang algengast á vinnumarkaði að
gagnkvæmur reynslutími sé þrír mánuðir.
Það hefur hins vegar borið á því að for-
stjórar ríkisfyrirtækja vilji hafa hann lengri,
jafnvel eitt ár. Samkvæmt lögum er hægt
að ráða starfsmenn tímabundið hjá ríkinu í
allt að tvö ár. Eftir það teljast þeir fastráðn-
ir. Almennt eiga starfsmenn ekki að sætta
sig við slík ráðningarkjör enda hefur þetta
mikil áhrif á rétt þeirra, svo sem veikinda-
rétt. Veikindaréttur verður til dæmis aldrei
lengri en ráðningu er ætlað að vara. Starfs-
maður sem veikist á síðasta degi tíma-
bundinnar ráðningar á engan veikindarétt.
Þetta gildir bæði um starfsmenn á almenn-
um vinnumarkaði sem og opinbera starfs-
menn. Á almennum vinnumarkaði er
sjaldgæft að ágreiningur um reynslutíma
komi upp enda algengast að ráðning sé
ótímabundin með þriggja mánaða upp-
sagnarfrest eftir reynslutíma sem er venju-
lega þrír mánuðir eins og áður sagði. SV
telur því að félagsmenn eigi ekki að sætta
sig við lengri reynslutíma en þrjá mánuði
nema í sérstökum tilvikum.
Atvinnuleysistölur
Samkvæmt upplýsingum fráVinnumála-
stofnun voru 9 verkfræðingar án atvinnu í
október síðastliðnum. Til samanburðar
voru 16 verkfræðingar á atvinnuleysisskrá í
sama mánuði fyrra árs. í október 2002 og
2003 voru 20 verkfræðingar án atvinnu en
heldur færri árin þar á undan eða 8 í októ-
ber 2001 og 7 í sama mánuði árið 2000.
Þess má geta að ef litið er á árið 2005 í
heild þá voru flestir verkfræðingar án at-
vinnu í janúar og maí, eða 18 í hvorum
mánuði.
Tilkynning frá Stéttar-
félagi verkfræöinga
Mjög mismunandi er hvernig stofnanir
raða störfum í launaramma og launa-
flokka.Verkfræðingar sem hyggjast ráða
sig hjá ríki og Reykjavíkurborg eru hvatt-
ir til að leita sér upplýsinga um röðun
hjá viðkomandi stofnun áður en þeir
ráða sig þangað til vinnu.
Frá Orlofssjóði Stéttarfélags
verkfræöinga:
Vetrarleiga OSV 2005/2006
Mikil eftirspurn er eftir orlofshúsum
OSV í Hraunborgum í Grímsnesi.
í vetur er einnig boðið upp á leigu á
Ólafshúsi í Stykkishólmi en það hús var
leigt félagsmönnum síðastliðið sumar og
naut mikilla vinsælda. Um er að ræða
helgarleigu sem og vikuleigu.
Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð
að ræða fyrir vetrarleigu en áhugasamir
eru beðnir að snúa sér beint til skrifstofu
SV.Tölvupóstfang: inga@sv.is og sími:
568-9986.
Vísinda- og starfsmenntunarsjóöur
hjá Ríki
Haldnir eru stjórnarfundir reglulega, að
jafnaði síðasta miðvikudag mánaðanna:
mars, júní, september og síðasti fundur
ársins um miðjan desember. Næsti
fundur verður haldinn um miðjan des-
ember. Umsóknareyðublöð má nálgast á
heimasíðu SV: http://www.sv.is/.
Hægt er að sækja um styrki sem nema
allt að kr. 390.000. Árið 2000 var aftur
farið að veita styrki til tölvukaupa. Skilyrt
er að minnst fjögur ár líði á milli styrk-
veitinga til tölvukaupa. Upphæð tölvu-
styrkja er kr.130.000. Styrkir eru veittir
til að sækja námskeið og ráðstefnur, til
kaupa á bókum, tölvum o.fl.
Starfsmenntunarsjóður hjá Reykja-
víkurborg og sveitarfélögum
Haldnir eru stjórnarfundir reglulega að
jafnaði síðasta föstudag mánaðanna:
mars, júní, september og síðasti fundur
ársins um miðjan desember. Næsti fund-
ur verður haldinn um miðjan desember.
Upphæð hámarksstyrkja er kr. 390.000.
Réttindi aukast um kr. 130.000 á ári sé
ekki greiddur styrkur. Sjóðfélagar eru
hvattir til að sækja um.
Vakin er athygli á því að þeir verk-
fræðingar sem starfa hjá sveitarfélögum
sem gefa Launanefnd sveitarfélaga um-
boð til samninga við SV eiga aðild að
sjóðnum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á
heimasíðu SV: http://www.sv.is/.
Styrkir eru veittir til að sækja nám-
skeið og ráðstefnur, til kaupa á bókum,
tölvum o.fl. Upphæð tölvustyrkja er
kr.130.000.