Verktækni - 01.09.2005, Qupperneq 6
6 / VERKTÆKNI
Vísindin snerta þig
Vísindin snerta þig er samstarfs-
verkefni RANNÍS og fjölmargra
stofnana og fyrirtækja er láta sig
vísindi varða. Markmiðið er að
vekja almenning til umhugsunar
um mikilvægi rannsókna og vís-
inda í nútímasamfélagi og hvetja
ungt fólk til að leggja fyrir sig
starfsframa í vísindum.
A meðal atburða sem verkefnið
stendur fyrir er að kynna „Hetjur í
vísindum" fyrir ungu fólki. Mið-
vikudaginn 26. október sl. stóðu
RANNÍS, Hagsmunafélag um efl-
ingu verk-og tæknimenntunar,
Samtök iðnaðarins og Háskólinn í
Reykjavík fyrir námskeiði fyrir 10-
12 ára nemendur úr Hlíðaskóla í
Reykjavík og Salaskóla í Kópavogi.
Leiðbeinandi var Sir Harry Kroto, nóbels-
verðlaunahafi í efnafræði en hann hefur
sérhæft sig í að kynna vísindin fyrir ungu
fólki og hlotið heimsathygli fyrir árangur
sinn í að vekja áhuga þess á raunvísindum.
Sir Harry Kroto var staddur í Bandaríkjun-
um en leiddi börnin inn í undraheim vís-
indanna og leiðbeindi þeim við lausn
verkefna á lifandi og skemmtilegan hátt.
Vísíndakaffi
Verkefnið hefur einnig staðið fyrir svoköll-
uðu Vísindakaffi vikulega á þriðjudags-
kvöldum á Kaffi Sólon. Vísindafólk á ýms-
um sviðum kynnir þar rannsóknir sínar,
sem allar eiga það sameiginlegt að vera á-
hugaverðar og viðfangsefnin tengjast dag-
lega lífinu á einn eða annan hátt. Gestir
frá tækifæri til að spyrja og taka þátt í um-
ræðum og komast þannig að því hvað vís-
indamennirnir eru í raun að sýsla í vinnu-
tímanum og hvemig störf þeirra hafa áhrif
á daglegt líf okkar allra. Tilgangur Vísinda-
kaffis er að færa vísindin nær almenningi
og sýna fram á gagnsemi þeirra og áhrif á
líf nútímafólks á auðskiljanlegan hátt.
Vísindi - Minn vettvangur
Heilsíðuauglýsingar í blöðum
undir yfirskriftinni „Vísindi -
Minn vettvangur" hafa vakið
nokkra athygli en þar em kynntir
vísindamenn, ferill þeirra og við-
fangsefni. Þá má einnig geta þess
að grunnskólum býðst að fá starf-
andi vísindamenn í heimsókn í
skólastofuna til að örva áhuga
nemenda á náttúrufræðigreinum
og gefa þeim kost á að kynnast
áhugaverðum viðfangsefnum vís-
indanna.
Þess má geta aðVerkfræðinga-
félag íslands ogTæknifræðingafé-
lag Islands hafa frá upphafi átt
aðild að Hagmunafélagi um verk-
og tæknifræðimenntun. Félagið
var stofnað árið 2000. Markmið þess er að
efla verk- og tæknimenntun á háskólastigi.
Félagið hefur haldið kynningarfundi um
verk- og tæknifræði, hvatt ungt fólk til að
gefa raungreinum gaum og veitt viður-
kenningar fyrir raungreinakennslu.
Nánari upplýsingar um verkefnið Visindi
snerta þig er að finna á slóðinni:
http://wzvw.visindi2005.is/
Heimasíða Sir Harry Kroto er á slóðinni:
http://nobelprize.org/chemistry/laureates/
Danfoss tengigrindur fyrir hitakerfi
Sérhönnuð tengigrind fyrir íslenskar aðstæður
Vönduð vara úr ryðfríu efni
Áratuga reynsla stjórnbúnaðar við
íslenskar hitaveituaðstæður
Auðveld • Örugg • Fyrirferðalítil
Danfoss hf
Skútuvogi 6 104 Reykjavík
Sími 510 4100 • www.danfoss.is