Verktækni - 01.09.2005, Qupperneq 8
8 / FUNDIR
Kynningarfundur
um sameiningu
Þann 9. nóvember sl. var haldinn sameiginlegur kynningarfundur VFÍ, TFÍ og SV
um hugsanlega sameiningu félaganna. Fundurinn var ágætlega sóttur en fundar-
menn voru á bilinu 120-130. Rétt er að ítreka hér það sem kemur fram á blað-
síðu þrjú að atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna VFÍ um sameiningu félaganna
hefur verið frestað fram yfir áramót.
Lisbeth Kaas Andersen.
Langur aðdragandi í Danmörku
Lisbet Kaas Andersen verkefnisstjóri hjá
IDA, danska verkfræðinga- og tæknifræð-
ingafélaginu sagði frá sameiningu félag-
anna þar í landi. Hún rakti aðdraganda
sameiningarinnar sem spannaði 30 ár.Var
áhugavert að heyra hversu margt virðist
líkt með framvindu þessara mála þar í
landi og hér.
Dönsku félögin voru sameinuð árið 1996
í þriðju atkvæðagreiðslunni um málið. Þá
höfðu ýmsar breytingar orðið sem stuðl-
uðu að því að sameiningin náði fram, eins
og til dæmis breytingar á danska mennta-
kerfinu og skipulagi félaganna. Einnig
hafði samstarf félaganna aukist eftir því
sem árin liðu.
í raun voru þrjár „gerðir" tæknimanna í
Danmörku með mismunandi menntun.
„Civilingeniörar", þ.e. þeir sem höfðu lok-
ið M.Sc. gráðu í verkfræði, sérstaklega eldri
félagar, höfðu minnstan áhuga á samein-
ingu. Meðal annars af þeirri ástæðu að þeir
töldu hana leiða til þess að þeir myndu
lækka í launum og að menntunarleg sér-
staða þeirra og jafnvel virðing í þjóðfélag-
inu myndi þverra.
I Danmörku var nokkuð meiri áhugi fyr-
ir sameiningu hjá tæknifræðingum en
verkfræðingum. Þess má geta að kannanir
hafa sýnt að sama er upp á teningnum hér
á landi.
Yngri félagsmenn voru hvatamenn að
þriðju atkvæðagreiðslunni sem leiddi loks
til sameiningar félaganna. Um ástæður
þess að sameiningin tókst þá sagði Lisbet
að þar bæri helst að nefna breytingar á
menntun tæknimanna, m.a. hefði „teknik-
um ingeniörar" náð því að fá nám sitt við-
urkennt sem háskólanám á launaskala
hins opinbera, í tímans rás hefði vinnu-
markaður hópanna orðið svipaður, sam-
vinna hafi aukist milli félaganna og
strúktúr þeirra orðið svipaður og síðast en
ekki síst þá megi fullyrða að félagsmenn
hafi vanist tilhugsuninni um eitt félag. -
Hugmynd sem í fyrstu virtist fjarstæð.