Verktækni - 01.09.2005, Page 11

Verktækni - 01.09.2005, Page 11
VERKTÆKNI / 11 hefur verið fjárfest í. Nýlega var farið að afgreiða þessi kerfi í jarðýtur og veghefla. Pessi nýja GCS lína, telst vera mikið framfaraskref og góð viðbót við BladePro og SiteVision kerfi frá Trimble, sem hafa verið vinsæl hérlendis og margir verktakar nota með góðum árangri. A þessu ári setti Trimble á markað nýja Alstöð sem nefnist S6 og hefur vakið mikla athygli um allan heim vegna tækninýj- unga. Meðal nýjunga sem má nefna í þessari stöð, er til dæmis svokallað „sure lock" sem gerir það að verkum að þótt þrí- fótur með stöðinni renni til og sígi meðan á mælingu stendur, þá leiðréttir stöðin sig þegar í stað fýrir skekkjunni. Stöðin getur nýtt sér venjulega spegla (prismur) en einnig fylgir með svokallað „1D unit" sem sendir frá sér merki sem stöðin nemur. Pað veldur því að að engin hætta er á að stöðin læsi sig á rangan spegil jafnvel þótt margir séu að vinna á sama verksvæði. Margar fleiri nýstárlegar nýjungar er að finna í S6 Alstöðinni sem hægt er að fá nánari upp- lýsingar um hjá fsmar. Ný GPS-tungl Hvað varðar nýjungar í framþróun GPS kerfisins, og annarra gervihnattakerfa, ber hæst ný GPS tungl sem eru send upp í stað þeirra sem úreldast. Með þar til gerð- um tækjum er hægt að nýta fullan styrk á L2 hluta GPS merkisins þannig að tækin munu halda betur inni GPS merkinu til dæmis þegar truflanir eru í jónahvolfunum m.a. vegna sólgosa. Trimble hefur þegar sett á markað tæki sem nýta sér þessa tækni og er talsvert af þeim í notkun hérlendis. Nefnast þessi tæki R8 eða R7, eftir því hvers konar bún- aði notandinn óskar eftir. Þessi nýju tæki líta eins út og hin vinsælu 5800 og 5700 tæki en eru með möguleika á að nýta sér L2C (þ.e. burðarbylgjuna á L2). í dag selj- ast 5800/5700 tækin jöfnum höndum með R8/R7 tækjunum. Sagan Pað var um 1990 sem fyrstu nákvæmnis GPS tækin voru seld hérlendis en þá festi Norræna Eldfjallastöðin kaup á fullkomn- asta búnaði sem völ var á á þeim tírna, 4000SST tækjunum frá Trimble. Síðan hef- ur sala og þjónusta á alls kyns landmæl- ingatækjum, vélstýringum, lasertækjum og skyldum búnaði vaxið mjög hjá ísmar og í dag sérhæfir fyrirtækið sig í sölu og þjón- ustu á slíkum tækjum og hugbúnaði. Enda hefur aukist mjög notkun þessarar tækni hjá íslenskum verktökum, verkfræðistofum og öðrum framkvæmdaaðilum. Radiomiðun og ísmar sameinast Þann 22. nóvember sl. sameinuðust fyrirtækin Radiomiðun ehf. og ísmar ehf. og er nafn hins nýja fyrirtækis Radiomiðun-ísmar ehf. Bæði fyrirtækin hafa verið í eigu eign- arhaldsfyrirtækisins Eykis hf. frá árinu 2000, en stærstu hluthafar þar eru Kristján Gíslason, Olís hf., Eagle Investment Holding S.A., Brú Venture Captial hf. og MP fjár- festingabanki. Radiomiðun-ísmar ehf. mun einbeita sér að sölu og þjónustu á landmælingatækjum, búnaði fyrir verktaka, siglinga- og fiskileitartækjum, gervihnattafjarskiptum og hug- búnaðarlausnum fyrir skip. Við sameiningu fyrirtækjanna verður til öflugasta fyrirtæki landsins á sínu sviði þar sem til staðar er fjárhagslegur styrkur, heimsþekkt umboð og áralöng reynsla og þekk- ing starfsfólks, sem er forsenda þess að hægt er að byggja upp enn sterkara fyrirtæki. JónTryggvi Helgason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Offsetþjónusta Samskipta Við prentum a||tfynrþig Samskipti hefur fest kaup á mjög fuilkominni offsetprentvél. Þetta þýðir einfaldlega að nú getum vió boðió viðskiptavinum okkar heildarlausn í öllu sem viðkemur prentun. Þetta mun án vafa leiða til aukins hagræðis og þæginda fyrir vióskiptavini Samskipta. S4/HSKIPTI >S< prentlausnir fyrir skapandi fóll Síðumúli 4 S: 580 7800 • Hverfisgata 33 S: 580 7860 • Hæðasmári 4 s: 580 7880 • Smiöjuvegur 1 s: 580 787

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.