Dagfari - 01.12.1961, Blaðsíða 15

Dagfari - 01.12.1961, Blaðsíða 15
Rætt við JÓNAS ÞORBERGSSON iim samvinnustefnu, sjónvarp — Þú ætlar þó ekki að fara að hafa við mig pólitískt viðtal? spyr Jónas Þorbergsson blaða- manninn. Ég get þá sagt þér það, vinur minn, að ég hef átt í stöðugum ófriði um ævina og illdeilum um áratugi. En nú er ég orðinn gamall — ég er kom- inn undir áttrætt — og nú vil ég fá að vera í friði. Hvað vildirðu annars spyrja um? — Áður en ég spyr um helztu æviatriði, vildi ég fá að heyra álit þitt á stækkun Keflavikur- sjónvarpsins. — Ég get sagt það, að ég er lítið hrifinn af því, að útlent sjónvarp eigi að verða hér alls- ráðandi. Ef ráðizt var í sjón- varp á annað borð átti það að vera byggt upp, kostað og rekið af íslendingum sjálfum. Sjón- varpið er mjög öflugt áróðurs- tæki og vandmeðfarið. Úr því sem komið er tel ég, að það minnsta sem íslendingar geti gert sé að stofnsetja sjónvarps- ráð til að líta eftir, hverju varpað er fyrir sjónir þjóðar- innar. — Hvað viltu svo vita um ævi mína? Uppvaxtarár — Fyrst um æsku þína og skólagöngu. Ég er fæddur 1885 að Helga- stöðum í Reykjadal, yngstur fjögurra bræðra. Við misstum móður okkar ungir og þá tvístraðist heimilið. Móðir mfn dó úr brjóstberklum, og sjálfur fékk ég berkla líka, en losnaði við þá í smalamennsku og við tíða útivist. Á fermingaraldri fékk ég magnaða kirtlabólgu í hálsinn og hafði hana til tvítugs. Þess vegna tók ég ekki út vöxt- inn fyrr en á þrítugsaldri. Ég var ekki stærri en meðalferm- ingarstrákur tuttugu og eins árs, en þá ákvað ég að fara í Gagn- fræðaskólann á Akureyri. Ég var þrjú ár í skólanum, — það er öll mín skólaganga. Ég var svo fátækur, að ég treysti mér ekki að halda áfram. — Þú hefur verið í skóla 1908, þegar átökin miklu urðu um „uppkastið"? — Já, ég man vel eftir því. Ég var svo frægur að vera á fundi á Akureyri, þegar þeir leiddu saman hesta sína Bjarni frá Vogi, Hannes Hafstein og Stefán skólameistari. Bjarni tal- aði á eftir Stefáni, og ég man að hann byrjaði ræðu sína þann- ig: Það er nú eins og vant er, að allt sem hann Stefán flytur um þetta mál eru sleggjur á axarsköftum! — Þá var mikill hiti í mönnum. — Hvert lá leiðin eftir gagn- fræðapróf? Kanada — Akureyri — Ég fór til Ameríku og var þar í sex ár. Við vorum fluttir til Leith með Vestu gömlu eins og útflutningshross, geymdir í efri lest en hestar undir okk- ur. Þegar styrmdi og hætta var á, að sjór gengi yfir þilfárið, vorum við læstir niðri með hestunum. Við fengum svo betra skip yfir hafið. 1 Kanada var ég aðallega við landbúnað. Islenzkir landnemar lifðu þar á rányrkju, skiluðu engu aftur til moldarinnar, og það blöskraði mér mikið. Ég var sem sé vanur að bera mykju á hóla. En þetta gekk nú vel hjá þeim, og það sýnir, hve moldin var frjó þarna. Ég festi engar rætur í Kanada. Þegar stríðið var byrjað og farið var að ganga ríkt eftir því, að menn gengju í herinn, ákvað ég að snúa aftur heim. Ég hafði andstyggð á styrj- öldinni og vildi heldur fara í tukthús en herinn. Ég sigldi heim með Goðafossi 1916. Það var fyrsta Ameríku- ferð skipsins — og jafnframt sú síðasta. Það fórst í ofsaveðri vestur á Straumnesi, en við far- þegarnir björguðumst allir. Skipsskrokkurinn hvílir þarna enn og er nú kominn á þurrt land. — Þá hefurðu aftur farið norður í land? — Já. Ég fór norður og kvænt- ist þar Þorbjörgu Jónsdóttur frá Arnarvatni. Hún andaðist úr og spíritisma berklum á jólanótt 1923 eftir fimm ára sambúð. Ég var rit- stjóri Dags á Akureyri frá 1920 til 1927, en tók þá við ritstjórn Tímans í Reykjavík. Árið 1925 kvæntist ég aftur núverandi konu minni, Sigurlaugu Garð- arsdóttur ættaðri úr Húnavatns- sýslu. — Hver var helzti stjórnmála- andstæðingur þinn á Akureyri? — Það var Gunnlaugur Tryggvi Jónsson, ritstjóri íslend- ings. Við vorum annars beztu kunningjar. Ég hafði þann sið að fara á nýársdag til hans með einhverja lögg í flösku og tók hann þá stundum í rúminu. Ég sagði honum, að nú skyldum við drekka skál liðins árs og láta allt vera gleymt, sem illt hefði orðið í milli okkar, drekka svo skál hins nýja árs, hefja baráttuna á ný og vera duglegir að skammast! — Þannig er nú stjórnmálabaráttan; hjaðninga- víg — stundum illskeytt, en gleymast fljótt. — Frá Tímanum fórstu til þess að stofna ríkisútvarp? — Já. Það varð úr, að mér var falið það verk. Og við út- varpið var ég í 23 ár. En ég er margbúinn að rekja þá sögu og ætla mér ekki að fara að gera það aftur. „Nu banker det“ — Þú hefur haft mikinn áhuga fyrir sálarrannsóknum um æv- ina. — Já, og það er nú eiginlega eina áhugamálið, sem ég á eftir. Ég hef raunar hugsað um þessi mál allt frá barnæsku. Móður- missirinn hafði mikil áhrif á mig. Og ég hef haldið minni barnatrú. Mér finnst órökrétt að gera ráð fyrir, að allt sé tilviljun háð hér í heimi. Það er einhver á bakvið, einhver allsherjar- stjórnandi. Líf eftir þetta líf er nauðsyn, ef við eigum að finna einhvern tilgang með tilveru okkar. — Hverjar sannanir hefurðu fengið áþreifanlegastar um fram- haldslíf? — Margar, blessaður vertu. Ég man til dæmis sérstaklega eftir því, þegar ég fór utan 1930 að kynna mér útvarpsrekstur. Þá hitti ég í Kaupmannahöfn miðil- inn Einar Nilsen, sem fékkst við sálarrannsóknir og lækning- ar. Ég var þá með meltingar- erfiðleika, og hann bauð mér að koma á stofuna til sín. Ég gekk þar inn í lítið herbergi með auð- um veggjum, þar sem aðeins var á gólfinu legubekkur og tveir Btólar. Einar sagði mér að leggj- ast á bekkinn og settist sjálfur á stól, tók í aðra hönd mína en lagði vinstri hönd sína á höf- uð mér. Að nokkurri stund lið- inni heyrðist bankað léttilega í vegginn. „Nú banker det“, sagði Einar. Og það var lengi bankað í þilið. Einar sagðist skilja merkjamálið og geta yfirleitt þýtt það, en að þessu sinni væru mörg íslenzk orð blönduð sam- an við, og ætti hann erfitt með að skilja þau. Hann spurði síðan aflið, sem þarna var að verki, hvort það gæti ekki gefið órækt merki um tilvist sína. En hann var varla búinn að sleppa orð- inu þegar orðbylgja skall af miklum þunga á mér, og var á- takið svo mikið, að legubekkur- inn og stóllinn, sem Einar sat á, ýttust tvo metra til hliðar og lentu upp við vegg. Því næst var bekknum lyft upp við höfða- lagið og vaggað til beggja hliða í lausu lofti, en bekkurinn síðan lagður niður. Þetta voru fyrstu áþreifanlegu sannanirnar, sem ég fékk. — Þú hefur haft nokkur af- skipti af þessum málum hér á landi, er það ekki — jafnvel ferðazt um? — Ég hef ferðazt nokkuð á- samt Hafsteini Björnssyni, miðli með fundi og skygnilýsingar. Hafsteinn er hæfileikamaður á heimsmælikvarða. Framhald á bls. 11. DAGFARI 15

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/967

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.