Aðventfréttir - 01.12.2010, Síða 8

Aðventfréttir - 01.12.2010, Síða 8
Trúboðssaga barnanna Öruggur staður Aveska býr í Port-au-Prince á Haítí. Fjölskyldan hennar bjó í íbúð sem var beint fyrir ofan búðina sem pabbi hennar átti. Lífið var bara fínt. Dag einn heyrði Aveska háværan dyn og húsið hennar byrjaði allt að hristast. Mamma greip litlu systkinin hennar Avesku og þau hlupu öll út. Jesús er að koma! Hugsaði Aveska þegar þau flýttu sér niður stigana. En í staðinn fyrir að sjá Jesús þegar hún kom út, sá hún allar hinar byggingarnar í kring hrynja niður í molum. Svo mikið var rykið í loftinu að hún gat varla andað. “Hvað gerðist?” spurði hún. “Jarðskjálfti”, sagði mamma, “Hræðilegur jarðskjálfti.” Líf undir plastdúk “Húsið okkar er farið núna” segir Aveska. “Núna búum við í skjóli gerðu úr plastdúk, í tjaldbúðum ásamt þúsundum annara sem hafa misst heimili sín.” Aveska og fjölskyldan hennar búa nú á skólalóð Aðvent háskólans á Haítí. Flestir sem þar eru hafa misst allt sem þau áttu. “Mér finnst ekkert gaman að lifa svona, það er ekkert næði. Það eai ekki nema nokkrir sentímetrar milli fjölskyldna. Ég get séð og heyrt í öllum í kringum mig og þau geta séð og heyrt í mér.” Sérstakur staður Tjaldbúðirnar sem Aveska og fjölskylda hennar búa eru í umsjá ADRA sem sjá fólkinu fyrir meira en mat, vatni, klósettum og sturtum. Þau sjá fólkinu líka fyrir áfallahjálp til þess að hjálpa þeim að komast yfir það tilfinningauppnám sem jarðskjálftinn olli þeim. Það er líka sér svæði fyrir bömin þar sem þau geta leikið sér frjálslega. Þar geta þau líka spjallað saman og haft gaman á öruggum stað. “Mér finnst skemmtilegast að teikna,” Segir Aveska með bros á vör. “Það er gott að geta bara hlegið og leikið sér. Þá get ég í smástund gleymt þeim slæmu hlutum sem hafa gerst hérna undanfarið og sorginni sem er allt í kringum okkur.” “Það hefur virkilega hjálpað mér að geta talað um tilfinningar mína varðandi jarðskjálftann.” “Ég er Jesús mjög þakklát að ég fæ ekki lengur martraðir þar sem hús falla niður í kringum mig og slasa fólk.” Einn af stafsleiðtogum tjaldbúðanna segir: „Markmið okkar fyrir bömin er að hjálpa þeim að komast aftur á þann stað sem þau voru á fyrir jarðskjálftann. Bömin sjá þetta sem skemmtilegan og ömggan stað í heimi sem er allt í einu hvorki skemmtilegur né öruggur.“ Halda í við skólann Enginn veit hvenær hægt verður að hefja skólastarfsemi á ný svo að börnin em hvött til þess að lesa og læra sjálfstætt. Avesku hlakkar mjög mikið til þegar skólamir byrja aftur. Hún hefur samt áhyggjur af foreldrum sínum. Munu þau geta fundið störf nú þegar búðin hans pabba er farin? “Ef ég ætti eina ósk þá mundi ég óska þess að mamma og pabbi fyndu störf svo að þau þyrftu ekki að vera sorgmædd. Síðan ætla ég að fara aftur í skóla svo að ég getir einhvern tímann orðið læknir. AÐVENTFRÉTTIR • DESEMBER 2oTÖ

x

Aðventfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.