Bræðrabandið - 01.06.1944, Qupperneq 1
KNÝR OSS/
11. árg. Reykjavík, 2. ársfj. 1944 Nr. 2
GUÐS SANNI SÖFNUÐUR JÍ VORUM DÖGUlí
Ungur maður stáð á gatnamótum og litaðist um, efabland-
inn og spyrjandi. Þaðan sem hann stóð, gat hann séð margar
kirkjur með gnæfandi turnum, og hann skyggndist \im, fram og
aftur. Oft hafði hann verið viðstaddur guðsþjónustu í kirkj-
um þessum, og hver og ein þeirra hafði boðið honum að samein-
ast sínum sérstaka söfnuði. Allar t&ldu þær sig fylgja hinni
sömu Biblíu. Hvað átti hann að gera? Hvers vegna eru svona
margir söfnuðir, hugsaði hann, þar sem ekki er nema ein Bibl-
ía? Hvernig mundi þetta verða í himninum?
Sumir líta svo á, að engu máli skipti, hvaða söfnuði
menn tilheyri. Þessu til skýringar er oft bent á mannflutn-
ingalest, er samanstendur af mörgum vögnum. Lestin flytur
farþegans^ til eins og sama staðar. Mismuninn telja menn að—
eins þann, að þægilegra sé að ferðast í sumum vögnum en öðr-
um, en takmarkið sé hið sama. í sumum söfnuðiua er leyft að