SÍB-blaðið - 01.01.1996, Síða 2
Fljótlega ákveðið hvort óskað
verður endurskoðunar á launalið
í samkomulagi SÍB og bankanna um gerð
kjarasamninga eru ákvæði í 4. grein, sem
heimila endurskoðun á launalið samningsins
einu sinni á samningstímanum.
Að undanfömu hafa nokkur stéttarfélög reynt að segja upp
gildandi kjarasamninguin á þeim forsendum að launastefna sú
sem ASI, VSI og ríkisstjórnin sömdu um í upphafi árs 1995 hafi
beðið skipbrot þar sem ákveðnir hópar hafi fengið umtalsverðar
bætur umfram aðra. 8,5% hækkun meðallauna, sem við starfsmenn
bankanna fáum út úr okkar samningi er því miður töluvert innan
við þá hækkun sem viðmiðunarhópar okkar innan BSRB og
BHMR fá á samningstímanum. Fjármálaráðherra hefur gefið það út
að meðalhækkun hjá öllum opinberum starfsmönnum að
frádregnum hækkunum kennara gefi 10,7% hækkun launa á
samningstímanum.
Þau ár sem ég hef unnið að gerð kjarasamninga fyrir okkur
bankastarfsmenn hafa kjör opinberra starfsmanna alltaf verið það
viðmið sem samninganefndir bankanna og SÍB hafa verið sammála
um að nota. Viðmiðun við starfsmenn ríkisins er líka mjög eðlileg
ef á annað borð á að taka þátt í viðmiðunarleiknum, sem er að
eyðileggja alla eðlilega kjarabaráttu. Samningar SÍB eru mjög
keimlíkir samningum opinberra starfsmanna, ýmiss réttindi og kjör
þau sömu, enda meirihluti félagsmanna í SIB starfsmenn í ríkis-
bönkum, hjá ríkisfyrirtækjum og sparisjóðum, þar sem fulltrúar
sveitarfélaganna eru að hluta við stjómvölinn.
Stjóm, samninganefnd og formenn starfsmannafélaganna munu
á næstu vikum koma saman og íhuga, á grundvelli gagna, m.a. frá
Þjóðhagsstofnun, hvort rétt sé að óska eftir viðræðum um hækkun
launa með tilliti til þróunar starfskjara hjá viðmiðunarhópum. Ef
samkomulag næst ekki innan þrjátíu daga frá því viðræður hefjast
skal ágreiningi skotið til gerðardóms, sem hefur einn mánuð til að
afgreiða málið. Það er von mín og trú að samninganefndirnar geti
náð niðurstöðu um málið án milligöngu gerðardóms.
Niðurstaðan úr þessum viðræðum, ef af verða, munu að
sjálfsögðu hafa mikil áhrif á undirbúning og afstöðu samninga-
nefndar SIB vegna komandi kjarasamninga næsta haust.
Sú endalausa, illskeytta og óforskammaða umræða sem bank-
arnir og starfsmenn þeirra hafa setið undir undanfarið er farin að
setja mark sitt á þolinmæði og þrautseigju bankastarfsmanna. Eftir
því sem meira er á okkur ráðist, vex baráttuþrekið. Aukið álag og
aukin sérþekking starfsmanna kalla á bætt kjör og viðurkenningu á
nauðsyn og mikilvægi bankastarfa.
Kjör bankastarfsmanna annars staðar á Norðurlöndum eru í
flestum tilvikum miklu betri en okkar kjör. Kollegar okkar í
þessum löndum eru hissa á langlundargeði okkar í baráttunni fyrir
bættum kjörum og hafa heitið okkur öllum stuðningi sem þeir geta
veitt í baráttu okkar. Gleðilegt ár og farsælt fyrir alla banka-
starfsmenn í baráttunni framundan.
Friðbert Traustason, formaður SIB.
SÍB -blaðíð
i.tbl. jais, 1996 i.ÁHc. MÁLGAGN BANKASTARFSMANNA
Útgefandi: Samband íslenskra bankamanna, SIB.
Abyrgðarmaður: Friðbert Traustason.
Ritstjóm: Margrét Bragadóttir formaður, Jóhann Olafsson, Indriði
Jónsson, Þórður Jónasson og Vilhelm G. Kristinsson.
Ljósmyndir: Róbert G. Ágústsson o.fl.
Prentun: Steindórsprent-Gutenberg hf.
Upplag: 4.100.
Skrifstofa SÍB er að Snorrabraut 29, 4. hæð.
Sími: 552 6944. Fax: 552 1644.
Starfsmenn: Vilhelm G. Kristinsson, framkvæmdastjóri, Eva Örn-
ólfsdóttir, fræðslufulltrúi. Anna Finnbogadóttir, fjármál og at-
vinnuleysisbætur, Steinunn Stefánsdóttir. fræðslufulltrúi Banka-
mannaskólans/Fræðslumiðstöðvar bankamanna.
2