SÍB-blaðið - 01.01.1996, Side 6

SÍB-blaðið - 01.01.1996, Side 6
Hlutafélagavæðing ríkisbankanna: Avinningurinn óljós Sameining banka er nú enn og aftur í umræðunni og hefur bankamálaráðherra skipað sérstaka nefnd til að gera tillögur þar að lútandi. Leiðin sem á að fylgja virðist vera sú að breyta ríkisbönkunum, Landsbanka og Búnaðarbanka, í hluta- félög og selja síðan hluti til aðila í einkageiranum. Ef af verður er óljóst hvaða sam- einingarkostir verða ofan á, þó formaður nefndarinnar telji að sameinaðir Bún- aðar- og Landsbanki verði of stór og ráðandi eining. Rætt hefur verið um að fjárfestingarlánasjóðir og LÍN kunpi að lenda í deigl- unni. SÍB hefur enn ekki mótað stefnu um hvaða kosti sambandið telji væn- legasta, eða hvort SÍB telji breytingu á ríkisbönkunum í hlutafélög yfirleitt æskilega og óvíst er hvort stjórn SIB telji það í sínum verkahring. Hitt er Ijóst af þeim við- tölum sem SÍB-blaðið átti við nokkra starfsmenn Lands- og Búnaðarbanka að þeir eru uggandi um sinn hag og ekki eru allir sáttir við boðaðar breyt- ingar. Jóhanna Finnbogadóttir, deildarstjóri í lánadeild Búnaðarbanka. Hún hefur starfað í bankanum í 12 ár. Fáum skell í bakið 1) Ég veit ekki hvað skal segja, ég held að ríkið og við gætum haft mismunandi hagsmuna að gæta í bráð og lengd. Per- sónulega er ég ekki hlynnt þessum breyt- ingum og tel að við gætum átt eftir að fá skell í bakið. Ef við tökum Islandsbanka sem dæmi, þá hafa starfsmenn þar misst ýmis hlunnindi sem við njótum. SÍB-blaðið Iagði eftirfarandi spurningar fyrir nokkra starfs- nienn Búnaðar- og Landsbanka: 1) Telur þú að hugsanleg breyting á rekstrarformi Búnaðar- banka og Landsbanka í hlutafélög, sé þjóðhagslega hagkvæm aðgerð? 2) Hvort telur þú líklegra að lífeyrissjóðsréttindi starfsmanna Búnaðar- og Landsbanka haldist óbreytt, eða að niðurstaðan verði í anda samningsins um lífeyrismál starfsmanna Islandsbanka? 3) Verði af ofangreindum breyt- ingum, hvort telur þú líklegra að starfsmenn þurfi að hafa áhyggjur af launalækkunum, uppsögnum, tilfærslum í starfi eða öðrum rétt- indamissi, eða telur þú að upp rísi sterkari einingar sem bjóði starfs- fólki upp á betri kjör? 4) Álítur þú að SÍB hafi nægilega skýra og ákveðna stefnu í málinu til að vera viðbúið hugs- anlegri breytingu á rekstrarformi og hugsanlegri sölu bankanna og sé í stakk búið að verja óbreytt réttindi félaga sinna? 5) Telur þú að SÍB eigi að hafa stefnu varðandi rekstrarform banka og sölu? 2) Það er búið að lýsa því yfir að við eigum ekki að tapa neinu í lffeyrissjóðs- málum, en ég hef mjög sterkan grun um að við endum í Lífeyrissjóði VR, eins og íslandsbanki. Við höfum góðan líf- Jóhanna Finnbogadóttir. eyrissjóð og fáum fljóta afgreiðslu, að uppfylltum tilskildum skilyrðum, en í VR yrðum við aftast í röðinni og með verri kjör. 3) Starfsmannafjöldi stendur sennilega í stað til að byrja með, enda t.d. Lands- bankinn búinn að fækka starfsmönnum hressilega. En ég gæti trúað að menn yrðu færðir til í stöðum, deildarstjórar yrðu gerðir að þjónustufulltrúum með lægri launum o.s.frv. Ég held að við gætum lítið gert í því. 4) Nei. Ég held ekki að SÍB geti gert mjög mikið. 5) SIB er stéttarfélag okkar, en einnig starfsmanna Islandsbanka og Sparisjóð- anna. Það gæti gert að verkum að SIB eigi erfitt með að móta stefnuna. SIB á að fylgjast með og mér finnst að það eigi að vera samráð við SÍB á öllum stigum. Sigurður Þórðarson, þjónustufulltrúi í Búnaðarbanka, Háalcitisútibúi, með 13 ára starfsreynslu í bankakerfinu. Sé ekki tilganginn í sölu I) Nei, ég sé ekki hagkvæmnina. Ef við lítum á Islandsbanka, þá erum við reyndar búin að sjá fækkun starfsmanna og tilfærslur í útibúum, en það er ekki mikið sem hefur breyst. Skuldastaða fólks hefur ekki batnað, þetta hefur ekki skilað sér til almennings. Ef hugsað er um söluverðmæti fyrir rfkissjóð, þá hefur Búnaðarbankinn alla tíð skilað honum fé í Sigurður Þórðarson. kassann. Persónulega er ég ekki hlyntur þessum breytingum og sé ekki tilganginn í að taka velrekin fyrirtæki í eigu hins opinbera og setja í hendur annaiTa. 2) Ég tel ekki ólíklegt að það fari eins og hjá íslandsbanka. Væri alls ekki ánægður með það, starfsmenn hafa lagt mikið á sig til að halda réttindum sínum. Ég hef reyndar haldið uppi hugmyndinni um að bankamenn myndi allir einn sam- 6

x

SÍB-blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍB-blaðið
https://timarit.is/publication/979

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.