SÍB-blaðið - 01.01.1996, Qupperneq 12
Veikindi
Talsvert hefur verið um fjarvistir vegna veikinda í bankakerfinu að undanförnu og
margar fyrirspumir borist skrifstofu SIB um það efni.
Samkvæmt grein 6.1.2. í kjarasamningi eiga fastráðnir starfsmenn rétt á fullum
launum í 3 mánuði og hálfum launum í aðra 3. Eftir 10 ára starf 4 mánuðum á fullum
laununt og 4 mánuðum á hálfurn launum. Eftir 15 ára starf 6 mánuðum á fullum laun-
um og 6 mánuðum á hálfum. Eftir 20 ára starf 12 mánuðum á fullurn launurn.
Lausráðnir eiga rétt á fullum launum í 30 daga og hálfum í 30 daga.
Það skal tekið fram, að við talningu fjarvistardaga vegna veikinda er skoðað síðasta
12 mánaða tímabil (ekki almanaksár).
1. Lausráðinn starfsmaður spurði hve langan veikindarétt hann ætti, þar sem hann
hafði orðið veikur þann I. mars s.l. t tvær vikur og kom til vinnu þann 15. mars.
Hann er síðan frá vegna veikinda í ágúst í 8 daga og aftur 4. til 19. desember.
Svar: Samkvæmt ofanrituðu um lausráðna starfsmenn á viðkomandi rétt á fullunt
launum í 30 daga. Þegar hann veikist þann 4. desember skoðunt við 12 mánuði
aftur í tímann. Hann var fjarverandi í mars í 10 vinnudaga, í ágúst í 8 daga. Þá
hefur hann notað 18 daga veikindarétt og á þá eftir 12 daga á fullum launum. I
desember er hann fjarverandi í 11 daga. Hann hefur því verið fjarverandi alls í
29 daga og á því rétt á fullum launum allan veikindatfmann.
2. Barnshafandi kona spurði um rétt sinn til veikindadaga. Hún hefur starfað í
banka í 9 ár í fullu starfi. I byrjun september fær hún vottorð frá lækni um að
hún megi aðeins vera í 50% starfi. Síðan hættir hún alveg vegna veikinda urn
miðjan október. Fæðingarorlofið hefst hins vegar ekki fyrr en um miðjan janúar.
Svar: Réttur hennar eru 3 mánuðir á fullum launum og 3 á hálfum launum. Hún hefur
verið veik í 4 mánuði og þar af verið 1 'h mánuð í 50% starfi. Þannig hefur hún
notað 1 'h mánuð á hálfum launum og 2 mánuði á fullum launum og á þá eftir
1 'h mánuð á hálfum launum og 1 á fullum launum. Ef hún hins vegar veikist í
fæðingarorlofinu veitir það ekki rétt á lengingu orlofsins.
3. Starfsmaður spyr hvort veikindaréttur flytjist á milli banka. Hann hafði unnið í
sparisjóði í 4 ár, fer í læknisaðgerð og er í veikindafríi í maí og júní. Bytjar 1.
september í öðrum sparisjóði og þarf nokkru síðar að fara í veikindafrí.
Svar: Nei, veikindarétturinn er kostaður af hverju fyrirtæki fyrir sig.
Tekið skal fram að ef starfsmaður þarf að hætta vinnu vegna varanlegrar örorku sem
stafar af veikindum, þá á viðkomandi rétt á greiðslu launa f 4 mánuði. Grein 7.1.3. á
aðeins við um varanlega örorku vegna slyss.
Rétt er að ítreka það hér að réttur vegna veikinda bama yngri en 13 ára eru samtals 7
vinnudagar á ári, enda verði annarri umönnun ekki við komið. Heimild þessi hefur ekki
áhrif á annan veikindarétt starfsmanns.
Eva Örnólfsdóttir, frœðslufulltrúi SÍB.
Eva Örnólfsdóttir.
SÍB -blaðið
i.TBL. jAYim i.árc. MÁLGAGN BANKASTARFSMANNA
Launakönnun
í undirbúningi
SÍB mun fljótlega efna til
launakönnunar meðal fél-
agsmanna samtakanna.
Könnunin verður unnin á
vegum Félagsvísindastofn-
unar Háskóla íslands.
Markmið könnunarinnar er að afla
sem bestra upplýsinga um raun-
veruleg launakjör félagsmanna, enda eru
slíkar upplýsingar forsenda raunhæfra
vinnubragða við gerð kjarasamninga.
Vandað verður til allrar útfærslu og
framkvæmdar könnunarinnar.
Könnunin verður gerð með þeim
hætti að félagsmenn fá sendan spum-
ingalista, sem þeir verða beðnir að
svara. Könnunin verður nafnlaus og öll
úrvinnsla hennar á vegum Félagsvís-
indastofnunar.
SIB hvetur félagsmenn sína til þess
að bregðast vel við könnuninni og svara
spurningum nákvæmlega. Mjög mikil-
vægt er fyrir SÍB að hafa sem nákvæm-
astar upplýsingar um kjaramál félags-
manna sinna og er mikilvægt að félags-
menn geri sér glögga grein fyrir því, að
þvílíkar upplýsingar auðvelda samtök-
unum að ná betri árangri í kjarabar-
áttunni.
I nóvember var hrint af stokkunum
vísnasamkeppni í SÍB-tíðindum. Þátt-
taka var mjög góð og því ákvað rit-
stjóm að halda henni áfram í hinu nýja
málgagni.
Síðasti fyrripartur var svona:
Bjóðast núna bankar tveir
bráðlega til sölu.
Besti botninn að mati ritstjómar
barst frá höfundi undir dulnefninu
Kvintus:
Fyrir lítið fara þeir
Framsókn býr til tölu.
Kvintus getur gefið sig frarn á
skrifstofu SÍB og sótt verðlaun sín.
Fyrriparturinn að þessu sinni er svona:
Horfi ég Faxa út á flóa
fegri engin gefst mér sýn.
Sem fyrr em verðlaunin 5 þúsund
krónur fyrir besta botninn. Skilafrestur
er til 16. febrúar.