Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.01.1915, Side 22

Læknablaðið - 01.01.1915, Side 22
LÆKNABLAÐIÐ 16 strangur þykir mér hann vera við börn á 2. ári, sem hann bannar „kate- góriskt" aS eta ósoSna ávexti.! Þrátt fyrir þessi atriSi, sem aöfinsluverö kunna aö vera, er auövitaö margt gott og gagnlegt í bókinni. Höf. brýnir fyrir mæörunum, að gefa börnunum reglulegar máltíöir og kennir þeim, aö heilbrigö börn má venja á reglu og stundvísi; vissulega er þaö oftast mæörunum aö kenna, hve ungbörnin eru óþæg og fyrirhafnarmikil. Hugvekjan um böö og útivist er mjög þarfleg; oft mun þaö vera af vankunnáttu mæðranna, aö ungbörnin koma svo litiö undir bert loft. Höf. ætlar dúsunum alveg sérstakan kafla, og veitir ekki af, ef duga skal. En því miöur — „snuötútturnar" eru vist ósigrandi! Höf. tekst lofsamlega aö sneiöa hjá þvi, aö gera bók sína aö lækningabók, sem sjaldan nær tilgangi sínum, þótt auðvitaö veröi ekki hjá því komist, aö drepa á ýmis- legan sjúkleika, sem fyrir kann aö koma. GUNNLAUGUR CLAESSEN. Utanferðir héraðslækna. Sigurður Magnússon á Patreksfiröi hefir dvalið i Danmörku í vetur. Bjarni Snæbjörnsson gegnir embætti hans. Sigurður gegnir aöstoöar- læknisstarfi í sjúkrahúsi í Óöinsey. Ingólfur Gíslason í Vopnafirði er farinn til Noregs. Guöm. Ásmundsson gegnir fyrir hann. Sigurður og Ingólfur hafa báðir fengiö feröastyrk til þessara náms- feröa sinna. G. B. Laus læknishéruð. Síðuhérað, Jónas Jónasson settur. Hróarstunguhérað, héraöslæknir í Fljótsdalshéraöi settur. öxarfjarðarhérað, Björn Jósefsson settur. Húsavíkurhérað, Guöm. Thoroddsen settur. Höfðahverfishérað, Árni Helgason settur. Reykjarfjarðarhérað, héraöslæknir í Hólmavíkurhéraði ])jónar þvi em- bætti enn. G. B. Læknapróf í Febrúar 1915. Undir síöara hluta embættisprófs gengur nú i stúdent (Jóhannes A. Jóhannesson), og undir fyrra hluta embættisprófs sömuleiöis I stúdent (Jón Ólafsson). Verkefni í skriflegu prófi voru þessi: I lyflæknisfræði: Viö hvaöa sjúkdóma kemur sykur fyrir í þvagi? Lýsiö aöalrannsóknaraðferöum til aö finna sykur í þvagi og hve mikill hann er. í handlæknisfræöi: Hvaöa manneskjum er hættast við lær- haul? Hver eru einkenni hans? Hvernig má greina hann frá öörum sjúk- dómum? Hvernig eru horfurnar og hver meöferðin? 1 réttarlæknisfræði: Fosforeitrun. Prentsmiðjan Rún. — Reykjavík.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.