Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.1916, Blaðsíða 5

Læknablaðið - 01.10.1916, Blaðsíða 5
LÆKNABLAÐIÐ 147 en alt annaö, aö hlutfallslega mikiö er um taugaveiki á íslandi, hafi ekki breyzt mikiö til batnaöar eftir 1910. íslenzku læknarnir hafa því mikiö og þarft starf fyrir höndum. Stefán Jónsson. Ljóslækningar. Eftir M. J ú 1. M a g n ú s. (Niöurlag.) Jungmann leggur sömu áherzlu á, aö Lupus sé ekki skoöaöur sem lokal sjúkd., heldur þurfi nákvæmlega aö athuga alt ástand sjúkl., og alt af aö hafa hinar nákvæmustu gætur á þvi. Mukosa, sem í y allra tilfella einnig er veik, þarf aö læknast jafnframt. Beina- og sina-affektionir má ekki yfirsjá, og þaö er mjög áríöandi, að vandað sje til allrar meöferöar á veikum kirtlum, sem oft eru annaðhvort orsök sjúkd., eöa siðar meir geta valdiö útbreiöslu hans. Hann segir svo um Heliotherapi (viö Lupus) : „Hún hjálpar betur en nokkuö annaö (Unterstútzende Faktor ersten Ranges), og hana ætti að nota viö alla sjúkl. meö endogen Lupus. Þaö er ekki aö eins aö „Allgemein-zustand“ sjúkl. batni, heldur hefir hún einnig mikil bætandi áhrif á „den Spitzenprozess". Á hverju ári eru sjúkl. (af „Verein Lupusheilstátte") sendir til Veglia og Valdoltra, og hafa komiö þaöan á góöum batavegi eöa jafnvel tilsýndar allæknaöir, þó þeir áður væru alveg refraktærir (einkum „kollicjuative Formen“). Revillet (Cannes), nefnir 11 tilfelli af Lup. vulg. og 34 meö scrofulu- derma. Af þessum 11 læknuöust 8 (tæp 73 pct.), 3 stationær. Af hinum 34 læknuöust 28 (82 pct.), 6 miklu betri. Sólargeislarnir voru látnir verka direkte á læsionirnar. Hann byrjaöi meö 2—3 kl.st. á dag, og jók tímann upp í 7—8 st. Til þess að forðast perebralar kongestionir voru sjúkl. látnir bera hvítar hettur meö breiöu skygni og blá gleraugu. J. Goodwin Tomkinson segir frá sjúklingi, sem haföi gengið meö Lup. faciei í 25 ár. Sjúkd. náöi yfir báöa vanga, niður á reg. submaxill. Allar mögulegar aöferöir, einnig Tuberkulin og Finsenljós, höföu verið reyndar árangurslaust. Miklar örmyndanir voru á báðum vöngum, en þó mátti finna þar lupushnúta, einkum í centrum. í submentalregioninni var fult af þeim. Tomkinson sendi þennan sjúkl. til Helouan í Egiftalandi, og þar var hann frá 1. jan. til 3. maí 1908. í þessa 4 mánuöi var fult sólarljós systematiskt látiö verka á andlitiö 5 kl.st. á dag. Við og við komu blöörumyndanir á andlitiö. Höfuðið var variö meö klút, og svart bindi haft fyrir augunum. Engar aörar lækningar voru reyndar viö sjúklinginn þennan tíma, en viö og viö þvoöi sjúkl. sér úr lindunum viö Helouan, sem innihalda brennistein og salt. Þegar sjúkl. kom aftur til Englands, var ómögulegt aö finna einn einasta lupushnút. Á einum eöa tveimur stööum mátti finna dálítinn roöa og á þeim stööum

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.