Læknablaðið - 01.04.1919, Page 31
LÆKNABLAÐIÐ
77
Þjóöverjar segja, aö gömul reynsla sé fyrir því, aö lungnabólgu fái í
influenza-sóttum vanalega 5—10% af öllum þeim, er sýkjast. í sóttinni
1890 var þaö í Þýskalandi 6—8%, og seinni sóttir hafa gefið 10%. —
Sumir telja lungnabólgur enn tiðari, 20—25% og enda 50%. En þá er
ætíð um smáar tölur að ræða og ekki taldir aðrir en þeir, sem læknis
er vitjað til eða eru lagðir á sjúkrahús. Af þeim t. a. m., sem árið 1890
voru lagðir á Friedrichshain sjúkrahús í Berlín höfðu 22% lungnabólgu,
á sjúkrahús í Köln 24%. Kemur það heim við þá sjúklingatölu, sem nefnd
er hér að framan. En lungnabólgan mun þó hafa verið tíðari hér, eins
og áður er bent á.
Aldur og kynferði lungnabólgusjúklinganna var svo sem hér segir:
Karlar Konur Samtals
0 —- 1 árs .... 5 3 8
1 — 10 ára . .... 18 22 40 •
10 — 20 — 20 12 32
1 £ 1 8 82 83 165
1 1 % 22 15 37
yfir 60 — ...., 4 6 10
151 141 292
Af þessu yfirliti má sjá, að meira en helnnngur af lungnabólgusjúkling-
unum (56,5%) er fólk á aldrinum 20—40 ára, og er það enda meira en
búast mátti við eftir sjúklingafjöldanum á þeim aldri, sem var tæpur
helmingur (48,9%) allra sjúklinganna.
Eins og áður er um getið, dóu 77 af þessum mínum sjúklingum og höfðu
þeir a 1 1 i r haft einhvern snert af lungnabólgu þegar eg skoðaði þá. Ekki
svo að skilja, að þessir allir 77 hafi dáið af lungnabólgunni, því að eg
veit til að 40 af þeim dóu af hinni „septisku infektion“, sem influenzunni
íylgdu, án þess að lungnabólgan út af fyrir sig væri banvæn. Auk þess
voru 2 kvenmenn af þeim sem dóu með lungnatæring og dóu af henni, 1
með morbus cordis og 1 með febris typhoidea. Af sjálfri influenza-lungna-
bólgunni dóu því ekki fleiri en 33. — Aldur þeirra og kynferði var svo
sem hér segir:
Konur Samtals
2 5
4 10
3 13
.. 3
1 2
23 10 33
Hrein inflúenza-lungnabólga hefir því orðið langtum fleiri karlmönnum
en kvenmönnum að bana, og fleiri dáið af henni á barnsaldrinum en full-
orðinsárunum. — Aftur á hinn bóginn hefir hin „septiska infektión“ orðið
fleiri kvenmönnum að bana og aldrei komið fyrir á barnsaldrinum, eins
og sjá má af eftirfarandi yfirliti:
Karlar
o — i árs ............. 3
1 — 10 ára ............. 6
10 — 20 — .............. „
20 — 40 — ............. 10
4o — 60 — .............. 3
yfir 60 — .............. 1