Læknablaðið - 01.11.1919, Page 7
LÆKNABLAÐIÐ
165
verSur a 'ö k o m a upp s æ m i 1. h ú s a k jj n n u m, og ekki draga
þaö í langinn, eöa hætta þessu skólakáki aö öörtun kosti. Vönduð torfhús
ættu aö geta fullnægt, ef léttara þykir aö konta þeim upp og yröu líklega
hlýrri en niörg timbur- eöa steinhúsin. Annars væri það rétt, aö læknar
mældu stærö herbergja á hverjum staö þar sem farskólar eru, og gæfu
stutta lýsingu af hitun þeirra, búnaöi, gluggastærö, lengd kenslutímans
á degi hverjum, o. fl. sem máli skiftir. Væri þetta bæöi fróðlegt, ekki
síst fyrir eftirkomendurna, og mætti verða til þess að endurbætur yröu
geröar.
2) Til þess að vita, hvort kennari sé heill heilsu, þarf bæöi anamnesis
og skoðun. Minna nægir ekki, nema læknir þekki hann vel. Þá er ekki
hlaupiö aö því aö vita um heimilisfólkið, Síst ætti að gleyma gamahnenna-
fthisis. Leiðbeining er það og, ef börnin á heimilinu eru kirtlaveik.
3) Til greina kemur einkum berklaveiki, kláöi og lús. Til þessa þarf
aö láta þ ö r n i n f a r a ú r f ö t u m og s k o ö a ö 11 s e m g r u n s ö m
e r u. Þetta er auðvitað sjálfsagt, en þess vegna tek eg þetta frarn að
eg veit þess dæmi, að læknar hafa látið sér nægja með blátt áfram að
líta á börnin í öllum fötum, og hefir það að vonum hneyxlað húsráöendur
og kennara.
Þá er þaö sjálfsagt, aö börnin séu skoðuð mjög stuttu eftir
a ð þ a u k o m a á s k ó 1 a n n, helst strax.
Eg hverf nú frá þessum fáu atriðum, sem fyrirskipuö eru. Þau eru
auövitaö skylduverk, en sannleikurinn er þó sá, að úr því íslenskir læknar
hafa skólaeftirlit á hendi, þá megum vér ekki standa nágrönn-
um vorum aö baki i þessu efni, að svo rniklu leyti sem mögulegt
er. Helst þurfum vér að gera e i 11 h v a ö b e t u r, og ókleyft er það
ekki.
En hvaö gera þeir þá, skólalæknarnir á Noröurlöndum, og hvernig haga
þeir starfi sínu? Eg reyndi aö kynna mér þetta lítið eitt í utanför minni,
en er þó ófróðari en skyldi um sveitahéruöin.
Lögreglulæknir Sören Hansen (Höfn), sem sjálfur er skólalæknir, hefir
hagað starfi sinu þannig, aö einu sinni á ári mælir hann hæð og þyngd
barnanna og rannsakar nánar þau, sem grunsöm þykja. Siðan kemur hann
einu sinni á viku í skólann og senda kennarar til hans þau börn, sem þeim
jjykja grunsöm. Þau börn sem heilbrigð virðast færir hann ekki úr föt-
um. Að miklu leyti er því skoðunin inspe,ctio ein. Borgunin er og smá-
vaxin, ekki 50 aurar fyrir barniö. Likt mun þessu hafa verið hagað hjá
öörum læknum í sjálfri Kbh., en á Friöriksbergi hefir skoðunin veriö
miklu nákvæmari, og börnin mæld 4 sinnum á ári. Hann kvað um þaö
dcilt, hvort slikt skólaeftirlit kæmi aö notum eða ekki. Kennarar og önn-
ur skólavöld tóku eftirlitinu í fyrstu með opnum örmum, en þótti það bera
litinn árangur er fram í sótti.
Nú eru Hafnarbúar aö gera gagngerða breytingu á þessu skipulagi.
Læknunum verður gert að skyldu aö rannsaka öll börn í 1. bekk vand-
lega, öll í 4. bekk, og lita auk þess á börnin í öllum bekkjum tvisvar á
ári. Athuganir sinar skrifar læknir á heilbrigöisblað, eitt fyrir hvert barn.
Við skoðunina eru börnin færð úr aö ofan, en ekki úr buxum, nema sér-
stök ástæöa sé til. öll börn, sem ekki virðast heilsuhraust, eru hlustuð og