Læknablaðið - 01.11.1919, Qupperneq 17
LÆKNABLAÐIÐ
175
viðarolíu og láta skært rafmagnsljós skína á þaS. Meö smásjá (lítilli stækk-
un) má þá sjá háræðar. Þetta hafa hö. notaö til þess aö rannsaka roseoía
og exanthema viö skarlatssótt og mislinga. Roseola og scarlat. exanthem
orsakast af hyperæmi og útviökun háræöanna. Morbilli exanth. sýnir auk
þess ödem, og líklega stafar bláleiti liturinn af stasis, sem kemur af spas-
mus í smáæöum. (M. m. W. 1918).
Fréttir.
Kíghóstinn í Rvík. Eins og áöur hefir veriö skýrt frá í Lbl., hefir kíg-
hósti borist hingað til bæjarins frá Danmörku og breiðst út i bænum.
AIls hefir hann komið á 18 heimili, en af þeim má álíta, aö veikin sé um
garö gengin á 10—12 heimilum, þannig að börn þau srniti ekki önnur,
en er enn sem komið er fremur væg; nú geisar hér meg'nt kvef og
veröur því miklu erfiöara að bera kensl á veikina en ella, enda hefir það
komiö fyrir, aö læknar hafi tilkynt mér, aö kighósti væri kominn á
heimili, en eftir nokkra daga tjáö mér, að um einfalt kvef væri aö ræða.
Má því alt eins búast viö því, að samgönguvarúö, sem notuö hefir veriö
gegn útbreiðslu veikinni, fari í molum þegar svo stendur á, aö læknar
geta ekki diagnosticerað hana; — sumstaðar hefir veikin verið svo
væg, að börnin hafa ekki fengið sog, fólkið ekki sótt lækni fyr en seinf
og síðar meir (á einum stað eftir að barn haföi veriö veikt í 6 vikur).
J- Hj- S-
Ný lyfsöluskrá er komin út.
Læknar á þingi. Nýkosnir eru: Guöm. Guöfinnsson og Sig. H. Kvaran.
Sennil. ná þeir Halld. Steinsson og M. Pétursson einnig kosningu og mega
læknar sín þá nokkuö á þingi. Ifkki veitir af.
Heilbrigðisskýrslur fyrir árið 1918 ætlar landlæknir aö gefa út eftir ný-
ár, en þvi miður vantar enn ársskýrslur fyrir þaö ár frá sumutn læknum að
meira eða minna leyti. Það eru því áreiöanlega seinustu forvöö aö skila
þeim. Landlæknir hcfir verið ófús að halda aftur launum lækna, en auö •
vitáö verður ekki hjá þvi komist, ef ekki koma skýrslurnar, því a 11 a r
skýrslur frá ö 11 u m læknum eru ómissandi, er scmja skal fullkomna heil-
brigöisskýrslur fyrir alt landiö. Nú fellur og niður sú viöbára, aö ekki
veröi unnið úr skýrslunum.
Yfirlit yfir heilbrigði 1918 í Lbl. fellur auövitaö niöur.
Bráðabirgðalög um bann geg-n innflutningi brúkaöra fata o. þvíl., hefir
stjórnin nýlega gefið út.
Berklaveikisnefnd. Samkvæmt ályktun siöasta þings og aö tillögum
læknanefndar liefir stjórnin skipað Guömund Magnússon, Magnús Péturs-
son og Sigurð Magnússon, heilsuhælislækni, i nefnd til þess aö rannsaka
og gera tillögur um varnir gegn berklaveikinni. Væri óskandi að nefnd
þessi sæi einhver öruggari ráð en heilsuhæli ein.